Tölvumál - 01.12.1988, Page 12

Tölvumál - 01.12.1988, Page 12
Vígvæðing UNIX manna í tvær fylkingar mun draga úr mlkilvægi þess á næsta ári, meðan notendur gera upp við sig hvor fylkingin verður ofan á. Líklegast er að samsteypa IBM, Digital, HP og íleiri beri sigur úr býtum. Notendaskil UNIXverða að batna og á árinu munum við sj á fleiri grafísk notendaskil í ætt við Macintosh umhverfið. OSF mun taka upp myndræn notendaskil (UNIX) NexT tölvu Steven Jobs. Inntakstæki Helsti þröskuldurinn í gagnaúrvinnslu eru tæki til inntaks á gögnum. Með tilkomu Neural neta sem líkj a eftir hæfileika mannsins til að læra af reynslunni verður auðveldara að búa til tölvur sem geta skilið mælt mál, þó hratt sé talað, og greint myndrænar upplýsingar með aðstoð rafeindaaugna. Sjáandi og hlustandi tölvur verða þó varla raunhæfar fyrr en á árinu 1990. Prentarar Hefðbundin prentaratækni mun ekki þróast að mun. Á liðnum árum höfum við séð miklar endurbætur á nálar- og blekdæluprenturum. Þar er nú náð ákveðinni fullkomnun sem ekki verður slegin út á árinu. Megináherslan verður lögð á að auka afköst geilsprentaranna með því að búa þá RISC örgjörvum til hraðvirkari úrvinnslu á PostScript skjölum. í dag er þetta helsti þröskuldurinn í notkun þessarar gerðar prentara. Litaprentarar byggðir á geislatækni munu koma fram en ekki verða fáanlegir fyrr en undir lok 1989 eða 1990. Litaprentun mun, a.m.k. 1989, að mestu byggjast á blekdæluprenturum. Vistunartæki - geislamiðlar Takmarkanir geisladiska felast í tiltölulega löngum söknartíma og lágum gagnaflutningshraða. Framundan eru diskar með 20 - 40 ms aðgangstíma og gagnaflutningshraða af stærðargráðunni 10-15 Mb/s. Þetta er nauðsynlegt vegna þeirrar þróunar að nota geisladiska fremur til vistunar myndrænna upplýsinga en hreinna gagna. Geisladiskar munu ekki verða notaðir sem almennir geymslumiðlar fyrr enn upp úr 1989. Vistunartæki - segulmiðlar Tilkynnt verður um 3.5" seguldísklinga með allt að 20 MB geymslurými og 3.5" fasta diska með geymsluiými allt að 100 MB. Á sama hátt munu koma fram í lok ársins, eða í upphafi árs 1990, 5.25" fastir diskarmeðalltað 1 GBgeymslurýmd. Þetta byggir þó hvoru tveggj a á því að segulhausamir verða að komast nær miðlinum og líklegt að í þessu skyni verði glerskifur notaðar í stað álskífa. Á árinu munu 2" og 2.5" tommu disklingar og fastir diskar koma fram, fyrst og fremst vegna kröfunnar um léttari og öflugari fartölvur. Slíkir diskar hafa verið til frá 1987 en munu öðlast sess á árinu. 12 TÖLVUMÁL

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.