Tölvumál - 01.12.1988, Page 13
Bandtæknin mun þróast í átt að
þeim aðferðum sem beitt er á
myndböndum (Helical Scan) og
þannig mun geymslurýmd banda
aukastgífurlega. Notkunbanda sem
nota þessa aðferð mun aukast 1989.
DAT og 8 mm videobönd munu
einnig eiga sinn þátt í þessari þróun.
Annar búnaður
Fax á tölvur hefur átt erfitt
uppdráttar vegna hás verðs á
myndskönnum. Allt bendir til þess
að verð þeirra muni áfram lækka og
minnka þann mun sem nú er á verði
almennra FAX tækja og tölvuFAX
tælg'a.
LaserFaxSkannerinn sem er
draumur margra mun ekki verða
viðráðanelgur á árinu en í Svíþjóð á
sér stað þróun sem gæti leitt til slíks
tækis fyrir almennan markað 1990.
Net- og samtengingar
Hugbúnaður netanna mun halda
áfram að verða betri og fullkomnari.
Með lækkanadiminnisverðum verður
ekki óalgengt að sjá vélar með 100 -
200 MB vinnuminni sem miðlara.
Þetta mikla vinnuminni verður
notað í stað diska til hraðvirkrar
miðlunar ágögnum. Diskamirverða
þá í hlutverki afritageymslu.
Forrit sem vinna á miðlaranum
munu koma fram og skilin á milli
fjölnotendatölva og nettengdra
einmenningstölvukerfa minnka.
IBM mun tilkynna um 100 Mb/s
tókahring undir lok ársins en sú
tilkynning mun ekki hafa afgerandi
áhiif á einmenningstölvunotkun á
næstu árum. Þær eru einfaldlega
ekki enn nógu hraðvirkar til að
fullnýta slíkan flutningshraða.
Sú þróun sem hefur verið í átt til
aukinnar og einfaldari samtengingar
á ólíkum tölvum mun halda áfram.
Árið 1988 var ár yfirlýsinga í þessu
sambandi en árið 1989 verðu ár
fr amkvæmdanna.
Grafík
Litur, þrívið grafik og grafísk
notendaskil munu krefjast aukins
reikniafls á komandi árum. Ekki er
líklegt að núverandi skjátæknl muni
þróast mikið enn að þvi er varðar
leysni skjáa. fremur er að búast við
betri skjáum með skarpari mynd.
Tækni til að taka ljósmyndir á
disklinga með lj ósmyndavélum mun
leiða til einfaldari myndvinnslu í
útgáfustarfi, þar sem hægt verður að
lesa myndir beint af disklingi inn á
tölvumar.
Hugbúnaðurinn
Hugbúnaðurinn er afl þess sem
gera skal með tölvunni. Með lækkandi
verði á minni, hraðvirkari segul- og
geislageymslumiðlum verður hægt
að hafa öflugari forrit. Áherslan
verður á forrit sem með einföldum
hætti laga sig að notandanum, sem
er ánægjuleg þróun.
Notendaskilin verða betri með
auknu reikniafli og bættri grafík og
langir aðlögunartímar notenda að
nýjum hugbúnaði munu styttast.
Þekkingarkefi munu loks ná flugi
vegna þeirrar þróunar sem átt hefur
sér stað í þekkingarkerfum fyrir
TÖLVUMÁL13