Tölvumál - 01.12.1988, Page 15
Einmenningstölvur
björt framtíð
Ráðstefna um bjarta framtíð
einmenningstölva var haldin að
Hótel Loftleiðum, föstudaginn
9. desember síðastliðinn og
hófst hún klukkan 13.20.
í setningarræðunni voru
ráðstefnugestir hvattir til að horfa
fram á við og gleyma áhyggjum
dagsins því framtíð
einmenningstölva væri vissulega
björt. Ráðstefna var ein
fjölmennasta ráðstefna ársins og
sóttu hana um 140 manns.
í erindi Hauks Oddssonar,
forstöðumanns rafreiknisviðs
Iðnaðarbankans komfram að þeir
hafa aflað mikillar reynslu og
þekkingar á einmenningstölvum,
en bankinn er að hanna eigið
afgreiðslukerfi, byggt á
einmenningstölvum og
staðametum. Vakti hann athygli
á því hversu langt netbúnaður
hefur þróast en er þó að sumu
leyti einnig stutt á veg kominn.
Friðrik Sigurðsson,
framkvæmdastjóri hjá
TölvuMyndum, lagði áherslu á
að grafík væri oftast
önnur gerð
framsetningar á
gagnagmnni og sýndi
dæmi um verkeíni sem
Tölvumyndir hafa
unnið. Einnig lagði
hann áherslu á
skiptingu hugbúnaðar í
framsetningarhluta og
gagnagrunnshluta.
Jóhann Þór
Magnússon, verkfræðingur hjá
Rafhönnun flutti fróðlegt erindi
um stöðu einmenningstölvunnar
í stýrikerfum. Taldi hann líklegt
að hlutur hennar myndi aukast á
næstu ámm, en hann er þegar
orðinn nokkur. Stýrivélarnar
sjálfar munu þó að öllum
líkindum verða sérsmíð áfram.
Augu margra opnuðust íyrir
því hvað þekkingarkerfi em, í
stórfróðlegu erindi Páls
TÖLVUMÁL 15