Tölvumál - 01.12.1988, Síða 17

Tölvumál - 01.12.1988, Síða 17
HELSTU FUNDIR OG SAMKOMUR SKÝRSLUTÆKNIFÉLAGSINS ÁRIÐ 1988 Alls komu 1004 á fundi og ráðstefnur Skýrslutæknifélagsins á liðnu starfsári. Dagskráin var eftirfarandi: FLÖSKUHÁLSAR í STAÐARNETUM. Félagsfundur, 12. janúar á Hótel Loftleiðum. Fyrirlesari: Ólafur Guð- mundsson, tölvufræðingur. 40 þátttakendur. TÖLYURÁÐGJÖF, ER ÞÖRF Á UPPSTOKKUN? Félagsfundur, 28. janúar í Norræna húsinu. Fyrirlesari: Halldór Kristjánsson, verkfræðingur. 50 þátttakendur. HUGBÚNAÐARGERÐ OG ÁÆTLANIR. Félagsfundur, 25. febrúar í Norræna húsinu. Fyrirlesari: Dr. Oddur Benediktsson, prófessor. 36 þátttakendur. AFMÆLISHÁTÍÐ - FRAMTÍÐARSÝN. Ráðstefna 6. apríl í Borgartúni 6, í tilefni 20 ára afmælis Skýrslu- tæknifélagsins. 17 fyrirlesarar. Ráðstefnustjóri: Páll Jensson, próf- essor. 200 þátttakendur. FÉLAGSFUNDUR MEÐ PHILIP H. DORN, dálkahöfundi hjá DATA, 18. apríl að Hótel Loftleiðum. 72 þátttakendur. KYNNING Á TÖLVUNÁMI. Kynning á námsleiðum í upplýsingatækni 29. maí. Yfir 20 aðilar tóku þátt í kynningunni sem haldin var í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Verkefnisstjóri: Anna Kristjánsdóttir, dósent. Þátttakendur 190. STAÐLAR. Félagsfundur 15. júní í samvinnu við Tölvuráð á Hótel Loftleiðum. Erindi: Helgi Jónsson, deildarstjóri o.fl. 35 þátttakendur. NORDUNET 88. Ráðstefna, 22. september á Hótel Sögu í samvinnu við SURÍS. Ráð- stefnustjóri: Jóhann Gunnarsson, deildarstjóri. 120 þátttakendur. TÖLVUMÁL 17

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.