Tölvumál - 01.12.1988, Page 25
Mótaðilar
Engin gagnaskipti eiga sér stað án mótaðila. Því fleiri sem þeir eru,
þeim mun hagkvæmara. Skilyrði fyrir því er reyndar að allir noti
svipaðar aðferðir. Þrátt fyrir staðla verður að fara í gegnum ákveðin
atriði með hverjum aðila, og negla þau niður í "samningi um viðskipta-
gagnaskipti milli tölva". (sjá einnig: lögfræðileg hlið).
öryggismál
Menn hafa eðlilega áhyggjur af öryggishliðinni, þar með talin leynd
upplýsinganna. Skrifaðar hafa verið fjölmargar bækur um þessi mál,
en vil ég bara nefna fáein atriði sem skipta mestu máli við viðskipta-
gagnaskipti. Eitt er að nota ber pakkaform, Það auðveldar sendand-
anum að afmarka að hvaða gögnum móttakandinn hefur aðgang. Annað
er að nota lvkilorð og/eða viðeigandi brenglunaraðferðir. allt eftir verð-
mæti sendinganna. Við fjármálafærslur ber að nota margar aðferðir
samtímis.
Lögfræðilega hliðin
Hér koma upp spurningar eins og hvenær og hversu bindandi er pöntun
sem send er frá tölvu til tölvu, hvað þarf til að endurskoðendur viður-
kenni reikninga og önnur bókhaldsgögn sem aldrei eru í pappírsformi,
o.fl. Það er algjört frumskilyrði að fyrirtæki sem láta tölvur sínar
skiptast á viðkiptagögnum, geri ítarlegan samning um hvaða reglur
skuli gilda um þessi samskipti. Menn geta auðveldað sér gerð slíkra
samninga, með því að vinna margir saman að grunn/rammasamningi.
Breytt verklag
Þegar pappírsflæði breytist í rafeindaflæði gagna, hlýtur innri starfsemi
fyrirtækja að breytast verulega. Til að dæmið gangi upp þurfa að
koma til markvissar verklagsbreytingar. Óvenju margir starfsmenn
verða fyrir áhrifum af hinni nýju tækni. T.d. þarf viðkomandi yfirmaður
að "skrifa undir skjöl" á gjörbreyttan hátt, þ.e.a.s. með hjálp tölvunnar.
Hvað á að senda
Það getur verið gott að vita hvers konar gögn maður ætlar sér að
senda. Flest fyrirtæki byrja á því að senda pantanir og/eða reikninga
milli tölvanna. Auk þess koma til greina skjöl eins og tollskvrslur.
pantanasoár. fiármagnsflutningar. (greiðsla reikninga eða bankafærslur),
og hvers kyns upplýsingar um flutnings/afgreiðslustöðu.
TÖLVUMÁL 25