Tölvumál - 01.12.1988, Side 27

Tölvumál - 01.12.1988, Side 27
íslenskt starf Nýlega var stofnaður hérlendis vinnuhóour um viðskiptagagnaskipti milli tölva. Þetta er opinn hópur sem ætlað er að vinna undirbúnings- starf á breiðum grundvelli. Verkefni hans er að heimfæra allt ofantalið upp á ísland, og gera þannig tillögur um hagnýtingu viðskiptagagna- skipta milli tölva hér á landi. Eins og fyrr segir er þetta opinn vinnuhópur á breiðum grundvelli, og eru allir hugsanlegir hagsmunaaðilar hér með hvattir til að hafa samband við greinarhöfund varðandi þátttöku í starfinu. Ég vil ljúka þessu með að minna á það sem Bandaríkjamaður sagði hér um árið: "If you’re not in EDI within two years, you’re dead". Þorvarður Kári Ólafsson, tölvunarfrœðingur, er starfsmaður UT-staðlaráðs frá 1. ágúst 1988. Hann hefur aðsetur hjá Reiknistofnun Háskóla íslands, sími 694754. AF ÚTGÁFU ÍSLENSKRA STAÐLA í UPPLÝSINGATÆKNI ÍST/ISO 8859-1 tók gildi 1. desember s.l. Staðallinn skilgreinir alþjóð- legt 8-bita táknróf í einu bæti, til notkunar í hinum vestræna heimi. Upprunalega kom þessi staðall frá samtökum evrópskra tölvuframleiðenda (ECMA) og bar heitið ECMA 94-1. Árið 1987 var hann samþykktur sem alþjóðastaðall. Sama ár tók gildi Evrópustaðallinn ENV 41503, sem viðurkennir eingöngu ISO 4873, ISO 8859-1 og ISO 6937-2 fyrir tölvusamskipti innan V-Evrópu. ISO 4873 er 7-bita ASCII, og inniheldur eingöngu enska stafrófið, alls 82 tákn. í ÍST/ISO 8859-1 hafa öll tákn eitt sæti, alls 191 tákn, en í ISO 6937-2 hafa t.d. broddstafir tvö sæti, og telur hann alls 328 tákn. Ef engar séríslenskar hindranir koma í ljós, má búast við að bæði ENV 41503 og ISO 6937-2 verði fljótlega gerðir að íslenskum stöðlum. ISO 4873 er of þröngur til notkunar hérlendis. 26 frumvörp að Evrópustöðlum í upplýsingatækni hafa nú verið birt til gagnrýni í Lögbirtingablaðinu. Auglýsingar birtust 4. og 23. nóvember. Flestum þessara frumvarpa er ætlað að staðfesta ISO-staðla um forrit- unarmál, OSI-Iíkanið, viðskiptagagnastök, samskiptasnið textaskjala, persónu-, samrása- og viðskiptakort, disklinga og geisladiska. Þar að auki hefur frumvarp að samræmingarskjali og nokkur forstaðlafrumvörp verið auglýst. Er þar um að ræða leiðarstaðla í tölvusamskiptum (funct- ional standards). -þkó. TÖLVUMÁL 27

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.