Vísir - 26.04.1962, Síða 13

Vísir - 26.04.1962, Síða 13
> '■ ! - r ímmtiíctagiirinn 2b. april iyt>2. VIStR 13 Maðurinn frá Holmenkollen — ísland hefur eitthvert undarlegt og ómótstæðilegt að- dráttarafl. Ef maður kynnist því og fólkinu sem á því býr, þá getur maður ekkí slitið sig lausan. Ég er búinn að koma hingað fimm sinnum og í sjötta skiptið núna. Ég myndi helzt viija eiga hér heima. Þannig fórust ungum Norð- manni, Mats Wibe Lund, orð í viðtali við Vísi, en hann er fréttaritari Vísis í Osló og hef- ur sent blaðinu fréttir og grein- ar bæði frá heimalandi sínu og eins frá Þýzkalandi, þar sem hann hefur dvalizt að undan- förnu. Mats Wibe Lund er barnung- ur maður. Hann kom hingað fyrst 1954 og vann þá við forn- minjauppgröft í Skálholti. En þá tók hann ástfóstri við ís- land og telur sig ekki geta slit- ið sig úr tengslum við það fram ar. Hann er Ijósmyndari að at- vinnu ,en hefur auk þer.s mikla. blaðamennskuhæfileika og hef- ur skrifað fjölda greina í blöð og tímarit. Sérgrein hans er: ísland, og um land okkar og þjóð fjalla allar hans greinar. — Mývetningar segja, segir Mats Wibe Lund — að ég hafi tekið ástfóstri við ísland, og sér í lagi við Myvatnssveit, vegna þess að ég hafi dottið niður í hver í Námaskarði. Það er talsverður sannleikur í þessu þó skrítið sé og ótrúlegt. Ég lá í margar vikur á eftir, fyrst á sjúkrahúsi og síðan á heimili norður í Mývatnssveit. Sú dvöl varð til þess að ég kynntist ís- lendingum fyrir alvöru og síðan hef ég metið þá. Það er gott að vera hjá ykkur og mér þykir vænt um hverina, þó ég vilji helzt ekki detta í þá framar. — Hverra erinda ert þú hér að þessu sinni? — Eins og endranær að viða að mér efni um ísland og Is- lendinga. Ég hef lofað ýmsum blöðum og fréttaaðilum efni héðan, þ.á.m. Politiken og Bull’s fréttaþjönustunni í Dan- mörku, Handels- og Sjöfarts- ridende í Gautaborg og fjölda dagblaða, vikublaða og tímarita í Noregi. — Þetta er í sjötta skipti, sem þú kemur til íslands? — Ég kom fyrst 1954, næst 1956, en síðan 1959 og á hverju ári úr því. Hef dvalið hér leng- ur eða skemur f hvert skipti, en aldrei komið að vetrarlagi fyrr en nú. — Hvernig líkar þér við Vet- ur konung hinn fslenzka? — Mæta vel. Mér hafði ekki komið til hugar áður að svona gott vetrarveður gæti verið til á íslandi. Ég vissi heldur ekki að ísland væri svona fallegt í vetrarham eins og raun ber vitni. Ég þarf að komast hérna á skíði til að kanna ísland sem skíðaland. — Þú ert náttúrlega góður skíðamaður. Sú íþrótt er Norð- mönnum í blóð borin. — Ég er ekki neinn keppnis- maður. En mér þykir gaman á skiðum ,enda alinn upp við þá íþrótt, því heimili mitt er á Holmenkollen við Osló, þar sem Mats Vibe-Lund kunnustu skíðamót á Norður- löndum eru jafnan haldin. Vestur-íslenzk almanök Áður hefur verið skýrt frá rim- tölum, og almanökum, prentuðum til siðustu aldamóta, í þættinum um gamlar bækur og bókamenn. Áður en skilizt verður við mál þetta að fullu skal vikið að hlut- deild frænda vorra - Vestur-ís- iendinga — í útgáfu almana-'a, en þeir voru síður en svo eftirbát- ar okkur hér heima. Einkum stóð þessi útgáfa þeirra með miklu fjön fyrir og um aldamótin síðustu. enda þótt hún hafi nú lognazt út af að fullu að því er ég bezt veit. Að því er Ragnar H. Ragnars. söngstjóri á ísafirði og mikiil'sér- fræðingur í vestur-íslenzku bóki- og blaðaprenti, hefur tjáð mér, kom fyrsta almanak þar vestra út í Lundi á Nýja íslandi árið 1879, var 32 síður að stærð og flutti ýmsar greinar, m.a. um landnám Vesfur- íslendinga. Útgefendur voru Jó- hann Briem og Bergvin Jónss.m. Þetta almanak kom aðeins út i eht ár og telur Ragnar það vera eitia fágætustu bók prentaða vestan hafs. Næst kemur út Almanak Lög- bergs árin 1888 og 1889. Prentuð í Winnipeg, 20 sfður að stærð hvort árið. Merkast' allra vestur-íslenzku almanakanna var Almanak Ólafs Thorgeirssonar, það hóf göngu sina 1895 og kom óslitið út til 1954 að það hætti fyrir fullt og allt. t því er m.a. gagnmerk heimild úm land- námssögu íslendinga í Vesturheirni. Áuk fjölmargra annarra fræðandi greina, sem það flutti, svo og einn- ig nokkurt skemmtilestrarefni. Skömmu fyrir aldamótin íóf S. B. Benedictsson útgáfu á almanaki þar vestra, sem kom út árlega 6 fyrstu árin, en síðan eitt 30 árum seinna, eða 1934 og þar með lag5i það upp laupana. Loks má geta lítils tímarits sem kom út í Vesturheimi árin 1897 tii 1898. Jafnframt þvi að vera ai- manak átti það að leiðbeina u n verkleg málefni og var útgefan"’ þess Stefán B. Jónsson, einn af tæknibrautryðjendum okkar íslend inga. Þetta rit heitir „Stjaman" Úr því að farið hefur verið inn I á þá braut, að skrifa um Vestur-1 íslenzk almanök þykir hlíða að geta síðasta almanaksins sem ég veit til að þar hafi komið út, enda þótt það hafi ekki verið gefið út. fyrr en eftir aldamótin. Það hét „íslenzkir mánaðardagar" og var : útgefandi þeirra síra Rögnvaldur Pétursson. Þeir komu út í 12 ár | samfleytt eða frá 1916 — 28 og var | í löngu og mjóu broti, eitt blað fyrir hvern mánuð. Á þessum blöð- um voru auk dagatalsins, ýmist ljóð íslenzkra öndvegisskálda, á-! samt myndum af þeim, eða — og I raunar flest árin — ævisögur | merkra íslendinga með myndum af , þeim. Tvö almanökin voru heiguð æviminningum Vestur-íslendinga. Lítið hefur sést af þessu dagatali 1 hérlendis. Þá er upptalið það sem ég veit um rimbækur og almanök fram til síðustu aldamóta, en úr því kem • i ur fram þvíiíkt ógrynni af daga- tölum í ýmissi mynd að legio ma teljast. Þ. J. Til þess að bera ísland saman við Noreg sem skíðaland notaði ég tækifærið að fara til Akur- hugsað mér að fara til Akur- eyrar um páskana og vera þar á skíðalandsmótinu. Það var mjög gaman. — Þú hefur gert mikið að því að kynna island í heima- iandi þínu? — Ég hef skrifað samtals um 70 greinar, sem birzt hafa i ýmsum blöðum og ritum, en auk þess liggja nokkrar greinar hjá ritstjórum ýmissa blaða og biða birtingar. — Hefurðu nokkuð unnið að islenzkri landkynningu í öðrum löndum fram til þessa? — Lítils háttar í Þýzkalandi, en þar hef ég dvalið undanfarin tvö ár við ijósmyndanám. Ég hef rabbað um ísland, haldið smátölur og sýnt litskugga- myndir á fundum þýzkra stúd- enta við Kölnarháskóla. Að- sókn hefur verið mjög góð sem bendir til hins mikla áhuga sem Þjóðverjar hafa á Islandi. Ég hef einnig unnið að glugga útstillingum í landkynningar- skyni fyrir Ferðaskrifstofu rík- isins og Flugfélag íslands í Köln og loks var ég beðinn að hafa með höndum nokkurs konar íslenzka dagskrá með hvers konar upplýsingum um Island, ferðalög hingað og íslenzku þjóðina í brezka hermannaút- varpið £ Köln. — Er nokkuð fleira framund- an á þessu sviði? — Félag Islandsvina í Köln, Deutsch-islandische Gesellschaft en það er öflugur félagsskapur undir forystu Max Adenauers borgarstjóra, sonar ríkiskanzl- arans þýzka, ætlar að efna til veglegrar og mikillar íslands- sýningar £ Þýzkalandi á hausti komanda. Ég hef verið beðinn um aðstoð við þessa sýningu, Iæt henni myndir £ té og hef lofað að ganga frá sérstökum þætti um Mývatnssveit £ frá- sögn og myndum. — Hefur þú kynnzt Adenau- er borgarstjóra? — Já, ég hef kynnzt honum nersónulega. Hann er mikill og einlægur fslandsvinur og hefur auk þess manna bezt aðstöðu til að beita áhrifum sfnum. — Þú segist kunna vel við þig hér. — Geypilega vel. Ég held lika að það sé yfirleitt raunin með alla Norðmenn, sem dvalið hafa á íslandi og kynnzt þvi til nokk urrar hlftar. Þeim finnst undan- tekningarlitið að þeir eigi hér heima. — Hvað finnst þér skemmti- iegast við íslendinga? — Auðvitað stúlkurnar. Hvað annað? — Eru þær nokkru betri hér en heima hjá þér í Noregi? — Norskar stúlkur eru reynd ar ágætar, en ég held að þær íslenzku séu þó betri. Þær hafa suma kosti fram yfir þær norsku, meira og hættulegra blik í auga, kunna betur að laga tízkuna eftir sér, í stað þess að þær norsku laga sig eftir tízk- unni. Þær eru enn eðlilegri í framgöngu og bros þeirra hýr- legra. Og krakkarnir á íslandi! Þeir eru ógleymanlegir. — Skemmtilegustu börn í víðri veröld. — Finnst þér Reykjavík hafa tekið nokkrum breytingum síð- ustu árin? — Vissulega. I einu tilliti þó mest, en það er hvað þessi höf- uðborg ykkar hefur á skömm- um tíma eignazt marga bráð- failega og dásamlega skemmti- staði. Engin borg af áþekkri stærð, sem ég þekki til, kemur þar til samanburðar. Osló, þótt stærri sé, á ekki þvflíka skemmtistaði. — Segðu mér að siðustu hvað þér þykir miður fara eða siæmt í fari íslendingsins? — Góði bezti, við skulum ekki tala um gallana. Það er nóg til af geðvondu fólki, sem hefur allt á hornum sér og þarf að nöldra og kvarta, þótt ég sé ekki í þeirra hópi. Ég er lifs- gíaður og hamingjusamur og sé fegurð í öllu, og sérstaklega á þessu fallega landi ykkar — íslandi. Þ. J. Áskriftarsími Vísis er 11660

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.