Vísir - 10.05.1962, Blaðsíða 16

Vísir - 10.05.1962, Blaðsíða 16
VISIR Ný ódæðis- verk í Oran Ekkert virðist ætla að geta ' stöðvað hin æðisgengnu hryðju I verk OAS-manna í Oran. Þau hófust að nýju í morgun . snemma og fyrir kl. 10,30 eftir fslenzkum tíma höfðu þeir drep ið 11 Múhammeðstrúarmenn, þar af 7 konur. Ennfremur særð ust 3 Múhammeðstrúarmcnn. Flest hryðjuverkin voru unn- 1 in í miðhluta borgarinnar. Hann i hefur nú verið umkringdur ör- ( yggisliði. Fréttir í stuttu máli ► Ben Khedda forsætisráðherra al- sírsku útlagastjórnarinnar flutti út- varpsræðu í gær og bað landa sína enn að gæta stillingar — kvað þá þegar hafa unnið sér aðdáun og virðingu með öllum þjóðum fyrir sjálfsaga sinn, þolinmæði og still- ingu. ► Alls voru vegnir í Alsír f gær 47 menn, þar af 28 í Algeirsborg. Allir nema 4 voru Múhameðstrúarmenn. Líkan af hinni nýju slökkvistöð séð frá Reykjanesbraut. Stöðin er teiknuð af Einari Sveinssyni og Sigurjóni Sveinssyni. Jón Sigurðsson, slökkviliðsstjóri. Kennedy ræðir Berlín og Laos Kcnnedy forseti sagði á fundi með fréttamönnum í gær, að Banda ríkjastjórn væri staðráðin í að Ieita samkomulags um Berlín með við- ræðum við sovétstjómina, þrátt fyr ir bölsýni Adenauers kanslara Vestur-Þýzkalands og óvissu um árangurinn. Kennedy kvað Adenauer ekki hafa hafnað hugmyndinni um al- þjóðaeftirlit með samgöngum við Berlín, heldur aðeins einstökum til- lögum varðandi slfkt eftirlit. Forsetinn ræddi einnig ástand og horfur í Laos og kvað hann það von sína, að vopnahléð kæmist á aftur, en það væri greinilegt, að það hefði verið rofið með töku bæjarins Tam Tha fyrir nokkrum dögum. Það voru kommúnistar, sem hertóku þennan bæ, en hann er norðarlega f landinu og hernaðar lega mikilvægur. verður reist i « e Á þriðjudaginn samþykkti borgarráð uppdrætti að nýrri slökkvistöð í Reykjavík og og verður nú hafizt handa um að ljúka vinnuteikningum af henni og sfðan að hefja bygg- ingu hennar eins fljótt og auð ið er. Nýja slökkvistöðin verður við Reykjanesstöðina norðan í Öskjuhliðinni á svæðinu milli skrifstofa Loftleiða og Shell-benzínstöðvarinnar. — Birtist hér líkan af hinni fyr- irhuguðu stöð, sem var iagt fram með teikningum á borg- arráðsfundum. Vísir hafði tal af slökkviliðsstjóra, Jóni Sigurðssyni f gær vegna þess- arar mikilvægu ákvörðunar og lét hann í ljósi mikla ánægju vegna þessa. Sérstaklega var hann ánægð ur með staðarvalið, sem hann sagði miklu heppilegra en hinn staðinn, sem komið hefur til greina, á lóð gömlu slökkvistöðvarinnar. „Hér er miklu rýmra um okkur og um- ferð í hin ýmsu bæjarhverfi greið- ari. Það sem veldur okkur mest- um erfiðleikum núna er hin mikla umferð á Hverfisgötunni, sem tef- ur allar ferðir okkar í austurhluta bæjarins. En frá þessum nýja stað er greiðfært í allar áttir eftir Reykjanesvegi, Hringbraut, Löngu- hlíð og Bústaðavegi." í hinni nýju slökkvistöð er gert Bæjarstjórnarkosningar / Englandi og Wales Mikilvæg vísbending um sfjórnmálahorfur í Breflandi í dag fara fram bæjar- og sveitar stjórnarkosningar í Englandi og Wales. Mesta athygli vekur, að Frjálslyndi flokkurinn reynir nú af alefli, að treysta aðstöðu sína, og teflir fram fleiri frambjóðendum en nokkurn tfma fyrr, en ef flokknum yrði verulega ágengt S þessum kosningum mundi það bæta að mun aðstöðu hans í aukakosningum og næstu almennu þingkosningum. Frambjóðendur flokksins nú eru helmingi fleiri en f næstu bæjar- og sveitarstjómarkosningum á und an. Kosningar fara fram í borgum og í bæjum og úti á landi. Kosnir verða alls í dag 4239 bæjarstjórnarfulltrúar og eru frambjóðendur alls yfir 10.000. Aldrei hafa fleiri frambjóðendur verið £ kjöri studdir af stjórnmála- flokkum en nú, en að vanda eru líka margir óháðir frambjóðendur. Kosið var í allmörgum kjördæm- um s.L mánudag, Opinberlega liggja ekki fyrir skýrslur um úr- slit þeirra, en sagt er að jafnaðar- menn hafi unnið 33 sæti. Hinir flokkarnir hafa engar upplýsingar gefið um fylgi sitt til þessa. Úrslitanna er beðið með mikilli óþreyju um allt Bretland og búizt við mikilli kosningaþátttöku. Með kosningaúrslitum er og fylgzt af meiri áhuga en vanalega erlendis, ekki sízt vegna þess, að Frjálslyndi flokkurinn hefur unnið mikið á I seinni tíð, einkum þótti sigur hans í Orpington mikilvægur (þar fór fram aukakosningar til þings). Allmjög er víða á Bretlandi r " um þann möguleika, að Fr, . Framhald a ráð fyrir einnar hæðar byggingu sem snýr út að Reykjanesbraut og getur hún geymt fjóra dælubíla og fjóra minni blla, þ.e. sjúkrabíla. í aðalbyggingu sem er tveggja hæða og kjallari er varðstofa, æfingasal- ur og skrifstofur. Loks kemur bak- bygging, þar sem eru þvottahús fyrir bílana, viðgerðarverkstæði, slönguhreinsun og slöngugeymslur og þar verður.12 metra turn, sem verður ætlaður til stigaæfinga. Aðstaðan verður öll önnur en i gömlu slökkvistöðinni, sagði Jón Sigurðsson, en þar hefur verið svo þröngt að við höfum þurft að geyma tvo bíla úti í bæ, og þegar nýr dælubíll bætist við í næsta mánuði þurfum við að geyma þrjá úti í bæ. Gamla slökkvistöðin er 50 ára á þessu ári, og því kominn tími til að fá nýja. Fjármagn til hinnar nýju stöðvar er tryggt, því að ágóði af Húsatryggingum bæj- arins rennur til hennar, enda mun ekkert stuðla að jafn góðum bruna- vörnum eins og góð nýtízkuleg slökkvistöð. Fegurðarsamkepp nin á laugardag Fegurðarsamkeppnin 1962 fer fram í Austurbæjarbíói nk. laugardag og lýkur með krýningarhátíð um kvöldið í Næturklúbbnum. Sex stúlkur koma fram og keppa um tiltil inn. Ungfrú Island 1962 en einnig verður valin Ungfrú Reykjavík árið 1962. Sigríður Geirsdóttir krýnir fegurðar- drottningamar. Myndir af þessum tíu stúlkum hafa birzt i Vikunni að undanförnu, og hafa lesendur og dómnefnd nú valið þær sex til úrslitanna, sem fram fara í bíóinu. Þar koma stúlk- urnar bæði fram í kjólum og sund- fötum sömu gerðar, af hinni svo- nefndu Canterstegund, en verk- smiðjan Dúkur framleiðir hana, og er það nýjasta baðfatatízkan í dag. Auk sjálfrar fegurðarsamkeppn- innar verður margt til skemmtun- ar i Austurbæjarbíói, og má þar einkum nefna glæsilegar tízkusýn- ingar karla og kvenna, en þær ann- ast Tízkuskólinn í Reykjavík fyrir herradeild P.Ó. og Bernhard Lax- dal. Karl Guðmundsson mun skemmta með gamanþætti, Guð- mundur Jónsson, óperusöngvari, með léttum lögum, Sigrfður Geirs, fegurðardrottning með dægurlögum og hljómsveit Jóns Páls aðstoðar ásamt Elly Vilhjálms. Verðlaunin, sem stúlkurnar keppa urn, eru þessi: 1. verðlaun: Ferð á Miss International á Langa- sandi og þátttaka í kepppninni að 'ri. 2. verðlaun: Þátttaka í Miss iverse keppninni nú í júlimánuði. erðlaun: Þátttaka í Miss Europe ..eppninni í Beyruth að ári. 4. verð- laun: Þátttaka í Miss World keppn- inni í London í nóv. n.k. 5. verð- laun: Vandað gullúr frá Magnúsi Baldvinssyni. Að lokinni skemmtuninni í Aust- urbæjarbíói kl. 7, sem verður að- eins ein að þe^su sinni, hefst krýn- ingarhátíð kl. 9 með dansleik og tízkusýningum að Glaumbæ og Næt urklúbbnum, og skemmtir þar m. a. hljómsveit Jóns Páls með að- stoð Elly Vilhjálms til kl. 2 eftir miðnætti. Gera má ráð fyrir mikilli aðsókn að skemmtunum þessum, og hafa ráðstafanir því verið gerðar til þess, Framh á 5 síðu Ræðismaóur í Álaborg látinn Ræðismaður íslands í Aalborg, hr. Póvl K. I. Christensen, andað- ist 2. þ.m. 61 árs að aldri. Bana- mein hans var hjartaslag, er gerð- ur var á honum uppskurður við botnlangabólgu. Jarðarför hans fór fram 5. þ.m. Povl Christensen hafði gegnt ræðismannsstörfum fyrir ísland i Aalborg síðan árið 1957. X

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.