Vísir - 11.05.1962, Síða 7

Vísir - 11.05.1962, Síða 7
Föstudagur 11. maí 1962. VISIR Þessi mynd var tekin í vetur af boruninni eftir neyzluvatni við Bulluaugu rétt hjá Grafar- holti í Mosfellssveit. Þar er búið að bora tvær holur, sem gefa 120 og 70 sekúndulítra og verið að bora þá þriðju. Til samanburðar má geta þess, að í Gvendarbrunnum fást 700 sek..l \ -J '. 'y,' Orð og efndir Sjálfstæðismenn munu nú eins og áður gefa út bláa bók þar sem rifjað verður upp það sem lof- að var í byrjun kjör- tímabilsins og jafnframt greint frá því, sem á- kveðið er að fram- kvæma á næsta kjör- tímabili. Andstæðingun- um er illa við þessa bók, sem vonlegt er, þvi menn þurfa ekki annað en líta í hana í lok kjör- tímabilsins, til þess að ganga úr skugga um, hvort loforðin hafi verið efnd. Og þá getur líka verið býsna fróðlegt að ALU AFABRÓDIR bera staðreyndirnar saman við skrif og ann- an áróður andstæðing- anna. Að þessu sinni skal rifjað upp, hverju Iofað var í bláu bókinni fyrir 4 árum um framkvæmdir í vatnsveitu- málum: 1. Að Reykvíkingum verði tryggt nægilega mikið af góðu neyzlu- vatni. Á kjörtímabilinu hefur ver- ið unnið stöðugt að þessu og stórframkvæmdir gerðar sem samtals var varið til um 18 millj. kr. 2. Að hraðað verði sem’ mest byggingu dælu- stöðvar við Gvendar- brunna, í því skyni að aukið verði mjög vatns- rennsli til bæjarins Dælustöðin var' oyggð og tekin í notkun í nóvember 1959. Við það jókst vatns- magn til borgarinnar um 200 lítra á sekúndu, eða nálega 40%. 3. Að dreifikerfi eldri bæjarhluta verði endur- bætt, jafnframt því að kostað verði kapps um að sjá nýjum bæjarhverf um fyrir fullnægjandi leiðslum. Á kjörtímabilinu 1954— 1958 höfðu vatnsæðarnar ver ið auknar um 19,7 km. en á sama tíma voru lagðar nið- ur vatnsæðar, sem ekki voru fullnægjandi, tæpir 2 km. Á því kjörtímabili, sem nú er að ljúka, hafa verið lagðar nýjar leiðslur um 16 km. — Auk þess hafa eldri leiðslur verið endurnýjaðar og dælu- stöðvar byggðar innanbæjar. 4. Að hafizt verði handa um byggingu vatns- geyma. Framkvæmdir eru hafnar við byggingu 10 þús. rúm- metra vatnsgeymis á Litlu- Hlíð, og mun sá geymir auka afkastagetu Vatnsveitunnar um 17%. 5. Að athugaðir séu möguleikar á enn frek- ari öflun neyzluvatns frá Gvendarbrunnum eða annars staðar frá, ef hentugra þætti. Fram hefur farið víðtæk vísindaleg rannsókn á þeim vatnsbólum, sem til greina koma í borgarlandinu og á- ætlun gerð um virkjun Bullu- augna, en sú virkjun mun auka vatnsmagnið um 500 sekúndulítra, eða 70%, en það er nægilegt fyrir 50—60 þús. íbúa aukningu á vatns- veitu svæðinu, sem nær, eins og kunnugt er, yfir Kópavog og Seltjarnarnes, auk sjálfr- ar Reykjavíkur. Þessum fram kvæmdum verður lokið á næstu 2—3 árum. 6. Að spornað sé við óhóflegri vatnseyðslu svo sem frekast er unnt. Heildarvatnsnotkun hefur aukizt gífurlega síðari árin og ber margt til. íbúum á vatnsveitusvæðinu hefur fjölgað mjög mikið, og auk þess hefur risið upp ýmis konar starfsemi, sem krefst mikillar vatnsnotkunar. Má par t. d. nefna að fiskvinnsla í bænum hefur aukizt mjög. Nokkur misbrestur mun einn ig vera á því, að fólk fari eftir þeim tilmælum borgar- yfirvaldanna, að eyða ekki vatni að óþörfu. Þess vegna hafa verið gerðar ýmsar ráð- stafanir til þess að draga úr óþarfri vatnseyðslu, svo sem að setja upp vatnsmæla hjá vatnsfrekum iðnaði og stuðla að byggingu vatnsgeyma hjá slíkum fyrirtækjum. Þá hefur almenningur feng ið aðstoð gegn vægu gjaldi til viðgerða á vatnsæðum og hreinlætistækjum, og allt hefur þetta stuðlað að mjög bættu ástandi í vatnsveitu- málunum. Eins og sjá má af því, sem sagt er hér á undan, hefur fullkomlega verið staðið við þau loforð, sem gefin voru í bláu bókinni 1958 um þess- ar framkvæmdir. Svo er einn ig á öðrum sviðum, eins og síðar mun verða rifjað upp hér í bláðinu. í langflestum tilfellum hefur stefnuskráin verið framkvæmd, nema ó- viðráðanleg atvik eða breytt- ar aðstæður hafi valdið töf- um eða breytingum, sem ekki vorú fyrirsjáanlegar, þegar gengið var frá stefnu- skránni, og í ýmsum þáttum hennar er stefnan einnig mörkuð lengra fram í tímann en sem nemur einu kjörtíma- bili. En breytingarnar eru líka á þann veg, að meira hefur verið gert í sumum greinum en fyrirheit voru gef in um og ný verkefni leyst, sem ekki var gert ráð fyrir að leysa svo fljótt. Og ef kjós endur kynna sér það sem gert hefur verið, munu þeir komast að raun um að kjör- tímabilið, sem er að enda, er eitt mesta framfaratímabilið í sögu Reykjavíkur. Unnið að lagningu Vesturbæjarleiðslunnar undir Hringbraut.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.