Vísir - 21.05.1962, Side 2

Vísir - 21.05.1962, Side 2
2 Vormót IR Vormót ÍR í frjálsum íþróttum fór fram á Melavellinum í gærdag í ágætis veðri að öðru leyti en því að nokkur vindgola var, en hún hafði skemmandi áhrif á öll hring- hlaupin. Árangur var yfirleitt mjög lof- andi á þessu fyrsta frjálsíþrótta- móti sumarsinr. T.d. má nefna lang stökk Þorvaldar Jónassonar úr KR en hann stökk nú fyrsta sinni yfir 7 metra og setti nýtt unglingamet. Við erum líka á góðri leið með að eignati góða 100 metra hlaupara. Allir drengirnir sem kepptu eru bráðefnilegir og fengu góða tíma. Kristleifur er í góðu „formi“ með sínar 8:54,7 mín. I 3000 m og lofar góðu fyrir sumarið. Valbjörn var ekki í essinu sínu í stangarstökk- inu, en hann kom í það beint úr 100 metra hlaupinu og tókst aldrei al- mennilega að ná góðri tilraun við 4 metrana, en líklega verða þeir ekki neitt vandamál í sumar. Orslit á mótinu urðu annars þessi: Þorvaldur Jónasson KR VISIR Mánudagur 21. maí 1962. jr jr \ ____ i“J QTní. "T W//4Mm//4MZ7////á „Það átti hvorugt liðið B 9 f ®f • ÆÆ skilsð ssð vinna leikinn — sögðu menn eftir 0:0 Fram og KR lofar góðu 100 metra hlaup Valbjörn Þorláksson iR 11,2 Úlfar Teitson KR 11,3 Þórhaliur Sigtryggsson KR 11,5 400 metra hlaup Kristján Mikaelsson, ÍR 55,9 Sigurjón Kristjánsson IR 62,9 3000 metra hlaup Kristleifur Guðbjörnss. KR 8:54,7 Agnar Leví KR 9:10,1 Halldór Jóhannson HSÞ 9:31,3 4x100 metra boðhiaup iRa 46,1 - KR 46,6 - ÍRb 47,7 100 metra hlaup drengja Skafti Þorgrímsson IR 11,5 Birgir Ágeirsson IR 1,7 Ólafur Ottósson IR 11,9 Jón Þorgeirsson ÍR 12,3 (aðeins 14 ára gamall). Kúluvarp Gunnar Huseby KR 15,31 Guðm. Hermannsson KR 15,18 Jón Pétursson KR 14,61 Kringlukast Hallgrímur Jónsson Á 47,25 Gunnar Huseby KR 44,72 Jón Pétursson KR 44,49 Lángstökk Þorvaldur Jónasson KR 7,01 Úlfar Teitsson KR 6,80 Einar Frímannson KR 6,72 Stangarstökk Valbjörn Þorláksson ÍR 3,70 Magnús Jakobsson felldi byrjun- arhæð. Frá hinum þófkennda knatt-' spyrnuleik í gær. Geir (Fram), er kominn út úr markinu og i knötturinn virðist vera á leið' í markið, en Guðjón bjargar á, línu, sendingunni, sem hafðii komið frá Sigþóri (KR). Leikur-| inn endaði með jafntefli, 0:0., KR OG FRAM voru heldur dauf- gerð í vorsólinni á Melavellinum í gær, þar sem á 4. þúsund manns var komið til að horfa á hörð átök liðanna, enda leikurinn nokkurs konar úrslitaleikur. Eftir að jafn- tefli er tilkomið hcfur Valur misst alla von um að vinna Reykjavík- meistaratignina í ár, en áður voru möguleikar á að Fram ynni KR og Valur síðan Fram og hefðu þá öll þrjú verið jöfn. Leikur Vals og Fram sfðar í vikunni verður því mjög afgerandi. Vinni Fram verða KR og Fram jöfn að stigum, en verði jafntefli eða Valur vinni, hef- ur KR hlotið sigur í Reykjavíkur- mótinu að þessu sinni. ★ Hálfgerð einstefna að KR-markinu Fyrri hálfleikurinn leiddi í ljós nokkra yfirburði Fram og yfir leitt voru það Framarar sem sóttu. Hallgrímur Scheving varð fyrstur, til að reyna að skora á 11. mínútu er hann „sneið“ boltann fallega á lofti, en tókst ekki að halda hon- um alveg nógu vel niðri. Fyrsta tilraun KR kom ekki fyrr en á 29. mínútu, en þá átti Jón Sigurðsson gott skot af vítateig nokkra sentí- metra frá stöng. Á 32, mínútu skaut svo Ásgeir Sigurðsson í stöngina í einni skemmtilegustu þvögu leiksins og þar á eftir fékk Hallgrímur S.cheving boltann, en Heimir varði gott skot hans fallega. ★ KRlheppnin dugaði ekki til Og enn hélt Fram áfram að sækja heldur á KR í síðari hálf- leiknum og stórhætta var við KR markið á 12. mínútu, þegar Baldur Scheving náði rúllandi bolta upp við endamörk og gaf fallega fyr- ir, en enginn var þó nógu nærri marki af framlínumönnum Fram, en Framarar héldu áfram að pressa. KR-heppnin gat jafnvel ekki gert betur en að gefa liði fnu eitt stig, því Fram tókst að bjarga á marklínu sinni á 17. mín. og Geir tókst 5 mínútum síðar að slá hættulegan skallabolta Ellerts Schram yfir þverslá. Heimir varði svo ágætt skot frá Ásgeiri Sigurðs- syni, hinum unga og skotglaða Framara á 25. mínútu. Guðmundur Óskarsson sannfærði menn svo á 40. mín. að liðið gæti ekki skorað mark er hann fékk færi 4 metra frá marki, er Baldur hafði gefið fallega fyrir, — hann brenndi af. ★ Framarar nær markinu Það var heldur nær Framur- um að skora í þessum leik eins og sjá má af þessu „regitri" yfir helztu sóknaraðgerðir leiksins. En það var sem vantaði einhvern kraft til að binda endahnút á sóknirnar. Grétar Sigurðsson, ekki ólíklegur kandidat í landslið í sumar, var t.d. góður upp að vítateig, en þar vantaði yfirvegunina og grimmdina jafnframt til að geta skorað, Hall- grfmur og Ásgeir eru skemmtilegir leikmenn og eru, sem betur fer, alls óhræddir við að skjóta ef ávo ber undir, og það kunna þeir. Hrannar Haraldsson bar mikið uppi sóknaraðgerðir Fram og átti góðan leik. Beztur í vörninni var Halldór Lúðvfksson. KR hafði nú bætzt við kraftur þar sem Gunnar Felixsson kom inn, en þó var hann heldur daufur og bar lítið á honum sem öðrum framlínumönnum KR í þessum Ieik. Beztur í framlínunni var Jón Sigurðsson, en Sigurþór á v. kanti, sem í öllum leikjum KR í vor hefur sýnt góða leiki, fékk nú vart að koma við boltann, gleymdist algjör lega. KR saknaði líka manns þar sem Halldór Kjartansson er, einn af þremur nýjum leikmönnum, sem verið hefur í umferð hjá KR að undanförnu. Er greinilegt að mikið munaði um hann í framlínunni. Garðar átti ágætan leik og er að komast á strik og Sveinn átti all- góðan leik í framvarðarstöðunni. Vörn KR var ekki veigamikil, en Heimir var henni mikill styrkur. Magnús Pétursson dæmdi leik- inn og gerði það ágætlega. Reykvíkingar tóku alla íslandsmeistarana f sundi .'lundmeistaramót íslands fór fram í björtu og fögru veðri um helgina að Laugaskarði, hinni ágætu 50 metra keppnissundlaug Hvergerðinga. Áhorfendur voru margir, einkur.i í gær. Margir ár- angranna sem náðust voru góðir, enda þótt met væru ekki sett, því þau eru yfirleitt sett í 25 metra laugum. Guðmundur Gíslason fékk af- hentan afreksbíkar mótsins, Páls- bikarinn, gefinn af Forseta íslands, fyrir 100 metra skriðsund, sem gef ur 810 stig. Hörður B. Finnsson átti 2, og 3. bezta afrekið, en þau voru 100 og 200 metra bringusund- in. Ágústa Þorsteinsdóttir fékk svo afhentan svonefndan Kolbrúnarbik ar, sem gefinn hefur verið til minn ingar um hina kunnu sundkonu Kolbrúnu Guðmundsdóttur. Fær Ágústa bikarim fyrir bezta afrek- ið á síðasta ári í kvennasundunum, en þaö var 100 metra skriðsund hennar, 1:05,2 sem gefur 912 stig. Úrslit á mótinu urðu þessi: 100 m skriðsund karla Guðm. Gíslason, SRR 54,4 Trling Georgsson, SH 1:04,4 Helgi Björgvinsson, UMFS 1:08,3 100 r.i bringusund karla Hörður B. Finnsson, ,'IRR 1:16,3 i Árni Þ. Kristjánsson, SH 1:18,0 Ólafur B. Ólafson, SRR 1:23,4 I 4x100 m fjórsund karla SRR-a sveit 5:03,9 SRR-b sveit 5:40,6 1500 m frjáls aðferð karla Guðm. Gíslason, SRR '20:49,0 Davíð Valgarðsson, ÍBK 21:45,2 Guðm. Þ. Harðars., SRR 22:39,4 40n metra skriðsund karla Guðm. Gíslason, SRR 5:00,3 Davíð Valgarðsson, ÍBK 5:24,3 Júlíus Júlíusson, SH 5:50,5 100 m baksund karla Guðm. Gíslason, SRR 1:11,0 Þorsteinn Igólfsson, SRR 1:30,8 200 metra bringusund karla I Hörður B. Finnsson, SSR 2:48,9 Árni Þ. Kristjánsson, SH 2:50,9 Ólafur B. Ólafsson, SRR 3:05,3 4x100 m skriðsund karla SRR-a sveit 4:34,3 SRR-b sveit 4:47,8 SH 5:09,8 200 m bringusund kvenna Hrafnhildur Guðm.d., SRR 3:09,9 Sigrún Sigurðard., SH 3:15,7 Kolbrún Guðm.d., SRR 3:30,5 Framh. á bls. 5 / dag Þróttur og Víkingur leika í kvöld kl. 8:30 á Melavellinum um hvort liðið lendir á botninum í Reykja- víkurmótinu, en hvorugu liðinu hef ur enn tekizt að sigra, Þróttur tap- að með litlum mun, en Víkingur tvisvar með stórri tölu.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.