Vísir - 21.05.1962, Blaðsíða 9

Vísir - 21.05.1962, Blaðsíða 9
Mánudagur 21. maí 1962. VISIR 9 : ; : V Hér í Hvassaleiti rís stærsta viðskiptamiðstöð borgarinnar á næstu misserum. Framkvæmda- stjórinn verður Sigurður Magnússon. Bætt þjónusta verzlun- arinnar við borgarbúa SpíaBlað við Sigurð Magnússon, formann Kaupmannasamtakanna Snemma á laugardags- morguninn tók ungur maður ásamt félögum sínum, fyrstu skóflu- stunguna á opnu svæði uppi við Hvassaleiti, þar sem stærsta verzl- anamiðstöð borgarinn- ar mun rísa af grunni á næstu misserum. Þessi ungi maður var Sigurð- ur Magnússon, 10. mað- ur á lista Sjálfstæðis- flokksins við borgar- stjórnarkosningarnar. Sigurður verður fram- kvæmdastjóri þessarar m i k 1 u viðskiptamið- stöðvar. Við það starf hefir hann langa reynslu að baki sér. Um árabil hefir hann rekið verzlunarfyrirtæki hér í bæ og fyrir ári sýndu íslenzkir kaupsýslu- menn honum þann trún að að kjósa hann sem formann samtaka sinna, KaupmannaSamtaka ís- lands. Og nú hefir hann verið kjörinn til þess starfs í annað sinn. Cigurður Magnússon er aðeins k"7 33 ára að aldri, en hann á óvenju viðburðaríkan starfs- feril að baki, þótt aldurinn sé ekki hár. Eins og margir borg- arbúar er Sigurður fæddur og uppalinn úti á landi. Hann er frá Reyðarfirði og eru foreldrar hans Rósa Sigurðardóttir og Magnús Guðmundsson verzlun- armaður. Eftir fermingu kom Sigurður hingað til bæjarins og innritaðist í Verzlunarskólann. Á skólaárunum vann hann alla algenga vinnu eins og gengur og gerist, og vai m.a. mat- sveinn á skipum og í landi. Ár- ið 1948 gerðist hann fram- kvæmdastjóri íþróttabandalags Reykjavíkur og gegndi því starfi samfleytt í fimm ár. Þar fékk Sigurður sín fyrstu kynni af félagsstarfsemi, sem hann hefur síðan tekið svo rík- an þátt í á ýmsum sviðum. Starfs síns fyrir íþróttabanda- lagið minnist Sigurður með ánægju og gleði. — Innan íþróttahreyfingar- innar er að finna marga af okk- ar allra beztu og mætustu mönnum, segir hann. Kynni mín við þá hafa verið mér ómetanleg, bæði meðan ég starfaði óskiptur fyrir íþrótta- hreyfinguna í bænum og jafnan siðan. Eignaðist ég þar marga af mínum beztu vinum. Og á þessum árum lágu leið- ir Sigurðar og Gísla Halldórs- sonar ,sem skipar þriðja sætið á framboðslistanum, fyrst sam- an. Samhliða þessu framkvæmda stjórastarfi vann Sigurður mikið að þjálfarastörfum, sér- staklega i handknattleik. Fór hann keppnisferðir með hand knattleiksliðum sem þjálfari þeirra, bæði innanlands og ut an. Og ennþá stundar Sigurður íþróttir í frístundum sínum. Þó ekki handknattleik eins og hér áður fyrr. Nú eru það aðallega laxveiðar og golf yfir sumar- tímann, þegar tækifæri gefst til. En frístundirnar eru ekki ýkja margar. Sigurður er kvæntur Sigrúnu Sigurðardótt- ur. Heimili þeirra stendur í Vesturbænum, að Melhaga 16. Tvo drengi hafa þau hjónin eignazt, og þann yngri aðeins fyrir fáum mánuðum. Hann heitir Jóhann. Sá eldri er orð- inn 5 ára og heitir í höfuðið á pabba sínum, Sigurður Rún- ar. Tjegar Sigurður Iét af störf- um hjá l.B.R. hóf hann sjálfstæðan verzlunarrekstur. — Fyrst verzlaði ég, segir Sigurður, í gömlu húsi á Berg- staðastígnum, númer 15. Var það verzlunín Blanda, sem margir muna eftir. Húsið var gamalt, eins og ég sagði, og óhentugt sem húsnæði fyrir matvöruverzlun, svo ég flutti verzlunina eftir nokkra hríð inn í Skipasund. Þar rak ég hana um tíma, en fluttist síðar í Vesturbæinn, og stofnaði Mela- búðina á Hagamelnum. Síðan kom að því að ég réðst í að stofna fyrirtækið Austurver á mótum Miklubrautar og Stakka hlíðar, ásamt aðilum úr öðrum verzlunargreinum. Nú er Sigurður framkvæmda stjóri Austurvers og Melabúð- arinnar. En eins og fyrr segir, þá hefur hann ekki látið hér staðar numið. Fyrir þremur ár- um sótti hann og félagar hans um lóð undir verzlunarrekstur í hinu nýja Hvassaleitishverfi. Bæði Austurver og Melabúðin starfa í leiguhúsnæði og því töldu þeir félagar æskilegt að fyrirtækið kæmist í eigið hús- næði. Hin nýja viðskiptamið- stöð er, eins og áður segir, í Hvassaleiti við Háaleitisbraut, sunnan Miklubrautar. Verða þar hvers kyns þjónustufyrir- tæki til húsa fyrir íbúa hverfis- ins. Sigurður hefur lagt mikið starf í að kynna sér slíkar við- skiptamiðstöðvar (shopping- centres), en hér á landi eru þær enn ókunnar. Hefir hann farið erlendis og skoðað slík fyrirtæki og setið ráðstefnur, þar sem rætt hefur verið um ýmsa þætti þeirra. Gerir Sig- urður ráð fyrir því að þessi mesta verzlanamiðstöð bæjar- ins verði byggð á ca. einu og hálfu ári og mun hún auðvitað bæta úr mjög brýnni þörf í Hvassaleitishverfinu, þar sem mjög skortir nú verzlanir. Hver er maðunnn? i"Wg Sigurður hefur alla tíð ^ verið mjög félagslyndur maður og sjálfur segir hann svo frá, að hann hafi allt frá önd- verðu haft mikla ánægju af að vinna að sameiginlegum hags- munum verzlunarmannastéttar- innar. Fyrsta trúnaðarstarfið, sem honum var falið á þeim vettvangi var formennska í Fé- lagi matvörukaupmanna. Því starfi gegndi Sigurður í tvö ár, en tók sér frí frá félagsmálun- um, er hann vann að stofnsetn- ingu Austurvers. En í maí síðasta ár var hana síðan kjörinn formaður Kaup- mannasamtaka íslands. Eins og að líkum lætur er það mikið starf og fjölþætt. I samtökun- um eru 17 aðildarfélög úr hin- um ýmsu verzlunargreinum, en alls eru um 500 fyrirtæki og stöfnanir meðlimir. Eru þau fyrirtæki flest staðsett hér í Reykjavík og nágrenni, en einn- ig úti um land. Sem formaður samtakanna telur Sigurður það sitt höfuðhlutverk að vinna að þeim málefnum verzlunarinnar í landinu, sem snúa að hinu op- inbera og skapa verzluninni sem bezta aðstöðu í þjóðfélag- inu. Er þar um mörg mál að véla og eitt hið stærsta verk- efni hans er að halda á sjónar- miðum verzlunarstéttarinnar gagnvarl ríkinu, m.a. í tollamál- um, verðlagsmálum og skatta- málum, svo eitthvað sé nefnt. Að auki er stór hluti starfs hans að fjalla um innbyrðis skipulag og fullkomnun verzl- unarfyrirtækja almennt. — Því hefur oft verið hald- ið á lofti, segir Sigurður, að kaupsýslumannastéttin stæði ekki þétt saman. Staðreyndin er hins vegar sú, • að þetta á ekki lengur við, vegna þess að félagssamtök þeirra vaxa nú ár frá ári og innan samtakanna er fjallað um öll hagsmunamál stéttarinnar af fyllsta skilningi og tillitssemi. Þannig fyrir- finnst ekki lengur sundur- þykkja milli smásölu og stór- sölu. Þvert á móti vinna þess- ir aðilar nú mjög vel saman og hafa í same.iningu lyft Grettis- tökum. Nægir þar að benda á stofnun Verzlunarsparisjóðsins, sem nú er orðinn banki, og Tollvörugeymslunnar. 'l/'ið spyrjum Sigurð hver verða munu helztu hugðar- efni hans 1 borgarstjórn Reykja víkur. Hann svarar: — Eins og að líkum lætur þá hef ég vegna míns starfs og afskipta af málefnum kaup- sýslumanna mikinn áhuga á þv£ að vinna að endurbótum og skipulagningu á öllu, sem lýtur að verzlun og vörudreifingu í borginni. í þeim efnum er ekki hvað minnst um vert að gæta þess að fyrir staðsetningu verzl unarfyrirtækja sé svo séð að Framh. á 3. síðu. Á heimili Sigurðar Magnússonar að Melhagal6. Kona hans, Sigrún Sigurðardóttir heldur á yngri drengnum, Jóhanni, þriggja mánaða. Sigurður litli Rúnar er fimm ára. (Ljósm. I.M.).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.