Vísir - 21.05.1962, Blaðsíða 7
Mánudagur 21. maí 1962.
VISIR
Borg í örum vexti
eftir Gíslœ HaHdórsson, arkitekt
Byggingar-
framkvæmdir.
því kjörtímabili, sem nú
er að ljúka, hafa fleiri
íbúðir verið fullgerðar í
Reykjavík en nokkru sinni
fyrr. Húsnæðisvandræði þau
er voru hér fyrir nokkrum
árum eru því brátt úr sög-
unni. Þessi árangur hefur
náðst að verulegu leyti fyrir
þá aðstoð er borgarstjórn
lætur nú í té einstaklingum
svo og félögum er hér hafa
byggt á undanförnum árum.
En veigamesti þátturinn til
útrýmingar herskálaíbúða er
byggingarstarfsemi borgar-
innar, en þær •framkvæmdir
nema nú um 10% af íbúðar-
byggingum hér.
Á síðasta kjörtímabili voru
byggðar 2788 íbúðir en frá
árinu 1954 hafa verið full-
gerðar 5478 íbúðir í Reykja-
vík. Fólksfjölgun hefur orðið
á sama tíma um 11000
manns. Ef miðað er við að í
þessum íbúðum búi að með-
altali 3.5 manns, sem er lágt
reiknað þar eð talið er að nú
séu um 4 manns í meðalfjöl-
skyldu, hefðum við þurft að
byggja um 3143 íbúðir fyrir
fjölgunina. Hafa því verið
byggðar hér 2335 íbúðir á
þessum árum til þess að út-
rýma húsnæðisvandræðum
og herskálum. Þessar íbúðir
hafa því leyst húsnæðisvanda
mál 9.000 manns.
Einn merkasti þáttur bygg
ingarmála hér er byggingar-
framkvæmdir borgarinnar,
sem miða að því að útrýma
öllum herskálaíbúðum og
öðru heilsuspillandi húsnæði.
Um tveir áratugir eru nú
síðan þessi starfsemi hófst,
en árið 1957 mun ávallt
marka tímamót í þróun þess-
arar starfsemi. Þá var sam-
þykkt í borgarstjórn tillaga
borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins um að byggja 800
íbúðir til þess að útrýma her-
skálum og öðru lélegu hús-
næði. Um leið og þessi sam-
þykkt var gerð var ákveðið
að stofna sérstakan bygging
arsjóð til þess að tryggja
framgang þessarar stórhuga
áætlunar.
Stofnfé sjóðsins var 42
millj. króna og verður fyrst
um sinn varið úr honum fé
til útrýmingar herskála og
lélegra íbúða i borginni.
Á því tímabili sem nú er
senn á enda, hefur borgar-
stjórn úthlutað 229 íbúðum
til kaupenda, en jafnframt er
hafin bygging á 128 íbúðum
við Álftamýri. Þar sem þess-
ar íbúðir eru nú margar langt
komnar í byggingu, mun
þeim verða úthlutað nú í
sumar, jafnframt því sem
hafnar verði framkvæmdir
við nýjan áfanga.
Fyrir 4 árum voru hér 466
íbúðir í herskálum, en vegna
hinna miklu byggingarfram-
kvæmda borgarinnar, eru nú
aðeins eftir um 170 íbúðir í
þeim. En byggingarsjóðurinn,
sem nú er orðinn 72 millj.
kr„ mun tryggja enn aukna
byggingarstarfsemi svo út-
rýmt verði öllum herskála-
íbúðum á næstunni.
Skipulag.
|Jndirstaðan fyrir ört vax-
andi byggingarstarfsemi
er skipulag borgarinnar. Til
þess að tryggja það að öll
byggingarstarfsemi geti hald-
ið áfram- að þróast á farsæl-
an hátt, hefur verið lögð auk
in áherzla á öll skipulagsmál.
Á meðan ekki voru hér í
smíðum fleiri en 2—300 í-
búðir á ári, var þetta ekki
svo mikið vandamál, en þeg-
ar 2000—2500 íbúðir eru í
smíðum á einu ári, auk ann-
arra stórbygginga, verður
þessi þáttur stöðugt veiga-
meiri og flóknari í fram-
kvæmdum borgarinnar.
Þá þarf að gera áætlanir
langt fram í tímann fyrir
slík svæði, um umferð, skóla,
verzlanir, leiksvæði, dagheim
ili o. fl. til þæginda fj'rir í-
búana. En jafnframt því þarf
að áætla og leggja vatn, raf-
magn, holræsi og götur um
hverfin.
Auðvitað telja allir að slíkt
sé, og er sjálfsagt, en þegar
þessi svæði sem eru í bygg-
ingu á einu ári hér í borg,
eru orð:n stærri en t. d. Ak-
ureyrarbær, sést.hversu um-
fangsmikið starf verður að
vinna áður en sjálf bygging-
arstarfsemin getur hafizt.
Segja má, að fyrsta stóra
hverfið sem skipulagt var fyr
ir utan Hringbraut, hafi
verið Hlíðarnar, og var síð-
an haldið áfram með Melana
og Hálogalandshverfið. Er
það um 40 ha. að stærð með
um 1200 íbúðum. 1 lok síð-
asta kjörtímabils var svo allt
Háaleitishverfið skipulagt fyr
ir um 3000 íbúðir. En það
hverfi er nú að byggjast upp.
Fyrir tveimur árum sam-
þykkti svo borgarstjórn, sam
kvæmt tillögum Geirs Hall-
grímssonar borgarstjóra, á-
lyktun um það að heildar-
skipulag yrði gert fyrir
næstu 20 ár. En jafnframt
yrði tekin upp náin samvinna
við næstu bæjarfélög um
þetta mikilvæga mál.
Til þess að tryggja að hinir
hæfustu menn ynnu að þess-
um málum var samþykkt að
ráða einn færasta skipulags-
sérfræðing Norðurlanda Pet-
er Bredsdorff, prófessor, til
þess að starfa með íslenzk-
um skipulagsmönnum að
þessu mikilvæga verkefni.
Verkefni þetta má telja þrí
þætt. En það er skipulag mið
bæjarins, skipulag Fossvogs
og heildarskipulag.
Um skipulag Miðbæjarins
er það að segja, að unnið hef
ur verið að nokkrum tillög-
um á þessum tveim árum og
hafa uppdrættir verið til at-
hugunar hjá borgarráði. Eitt
höfuðvandamálið við skipu-
lag Miðbæjarins er hin sí-
aukna umferð sem mun verða
hér á næstu árum, en sýnt
Gísli Halldórsson, arkitekt.
Sjálfstæðisflokksins.
er að bifreiðaeign borgarbúa
mun allt að því fimmfaldast
á næstu tuttugu árum.
Þessar tillögur eru nú svo
langt komnar að telja má
víst ,að endanlegar tillögur
verði tilbúnar á þessu ári.
2788 íbúðir á kjörtímabilinu
Þetta eru fyrstu húsin sem byggð voru hér í borginni samkvæmt Byggingaráætlun
Reykjavíkurborgar.
Hann skipar 3. sætið á lista
Fljótlega eftir að farið var
að vinna að skipulaginu á
svo breiðum grundvelli, sem
raun ber vitni um, var sam-
þykkt í borgarstjórn að láta
fara fram hugmyndasam-
keppni um svæðið í Fossvogs
dal og suður að flugvelli.
Öllum skipulagssérfræðing
um á Norðurlöndum var
heimil þátttaka í þessari hug
myndasamkeppni. Var þetta
gert m. a. til þess að tryggja
að verulegur fjöldi arkitekta
ættu þess kost að vinna að
lausn þessa máls og setja
fram tillögur, sem gætu verið
leiðarvísir að endanlegu
skipulagi.
Nokkrum arkitektum og
verkfræðingum hefur nú ver-
ið falið að gera endanlega
uppdrætti að Fossvogsdaln-
um svo og öðrum svæðum
er falla inn í heildarskipu-
lagið. Þessa skipulagsupp-
drætti vinna þeir í samvinnu
og undir stjórn skipulags-
nefndar, borgarverkfræðings
og skipulagsstjóra borgarinn-
ar.
Jafnframt þessu hefur svo
verið unnið að heildarskipu-
lagi bæjarins fyrir næstu 20
ár, en þó höfð um leið nokk-
ur hliðsjón af væntanlegum
vexti borgarinnar fram til
ársins 2000.
Fjölgun íbúa.
gamkvæmt áætlun Hagstof-
unnar mun árleg fjölgun
landsmanna verða um 2% á
Framh. af 10. síðu.
MB