Vísir - 25.05.1962, Blaðsíða 3

Vísir - 25.05.1962, Blaðsíða 3
Föstudagur 25. maí 1962. VISIR 3 Verðandi knattspyrnuhetjur við félagsheimili Ármanns. Unnið fyrir æsku borgarinnar Drengir að leik við Vals-heimilið. Æskan er vaxtarbroddur borgarinnar og að henni verð ur áð búa sem bezt. Iþrótt- irnar eru snar þáttur í upp- eldi heilbrigðrar og lífsglaðr- ar æsku og framsýn borgar- yfirvöld skapa þau skilyrði að unga fólkið í borginni geti eytt tómstundum sínum við holia Ieiki og íþróttir. Á síðustu fjórum árum veitti borgarstjórnin 1.4 mill- jónir króna til íþróttasvæða og heimila víðsvegar um borg ina. Áður höfðu íþróttafélög- unum verið látnar Ióðir í té og þær skipulagðar á kostn- að borgarinnar. Með þessum fjárstyrk og öðrum fyrr hafa félögin komið sér upp mynd- arlegum heimilum og íþrótta- svæðum. Fjögur íþróttafélags heimili hafa risið í borginni, 2 stórir íþróttavellir, 4 gras- vellir, 5 malarvellir og nú verður nýi golfvöllurinn brátt fullgerður. Við þessar fram- kvæmdir hafa íþróttafélögin sýnt frábæran dugnað. Birt- um við hér í Myndsjánni í dag myndir af þremur íþrótta heimilanna, sem reist hafa verið með stuðningi frá þorg- aryfirvöidunum. Auk þessa veitti borgin 2 milljónir króna síðustu árin til íþróttanámskeiða, sem far- ið hafa fram á félagsvöllun- um fyrir ófélagsbundið æsku- fólk. Sjálfstæðismenn hafa þann ig haft forystu um að veita æsku Reykjavikur stórbætt skilyrði til íþróttaiðkana og þeir munu halda því áfram. Sundlaug Vesturbæjar er full gerð og íþróttasvæðið í Laug- ardal verður brátt fullgert með stærstu sundlaug lands- ins. Vélfryst skautasvell verð ar byggt og nýr Malarvöli- ur gerður. Þannig munu framkvæmd- ir fyrir æsku borgarinnar enn auknar af hálfu Sjálfstæðis- manna í borgarstjóm.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.