Vísir - 25.05.1962, Side 16
WÍSSHj Saarar fjölskvidu 3200kr.
Föstudagur 25. maí 1962.
Áætlun borgarstjórnar Reykjavíkur um lagningu
hitaveitu í öll skipulögð hverfi borgarinnar á fjórum
árum er stærsta verkefnið á næsta kjörtímabili og
mesta hagsmunamál borgarbúa.
Er nú þegar unnið að framkvæmd fyrsta áfanga
þessa verks, þar sem nú er verið að leggja hitaveitu
í Laugarneshverfið.
Öll hús á þessu svæði hafa verið hituð með olíu
en hitaveitan er sérstaklega mikið hagsmunamál fjöl
skyldnanna, vegna þess hve miklu ódýrari hún er
en olíukyndingin.
Samanburður á olíu og hitaveitu
Það er áætlað að til þess að hita
meðalstóra íbúð í Reykjavík þurfi
4500 lítra af olíu á ári. Sú olía
kostar um 7 þúsund krónur.
Til að hita sömu íbúð þarf 770
rúmmetra af hitaveituvatni á ári,
sem kostar 3800 krónur.
Sparnaður af notkun hitaveitunn
ar fyrir hverja fjölskyldu er því
3200 krónur á ári.
Hitaveitunni fylgja ennfremur
mikil þægindi, menn losna við
viðhaldskostnað og eftirlit með
olíukyndingu og andrúmsloftið í
íbúðarhverfunum verður hreinna
en áður.
Af- öllu þessu má sjá, hvílíkt
hagsmunamál hitaveitan er fyrir j
bæjarbúa.
Tryggið framkvæmd áætlunar
Á síðasta kjörtímabili hefur hita
veita verið lögð í Hlíðarnar, Höfða
hverfið og Teigana í Laugarnesinu.
Með þeirri viðbót bættust 8000
manns við á hitaveitusvæðið.
Og nú á næstu þremur árum
verður framkvæmdunum hraðað
meir en nokkru sinni fyrr, þannig
að hitaveita verði komin í öll skipu
Iögð hverfi borgarinnar fyrir árs-
lok 1965. Hafa Sjálfstæðismenn í
borgarstjórninni haft forustu um
samningu hitaveituáætlunarinnar
og munu þeir vinna ötult að fram-
kvæmd hennar á næsta kjörtíma-
bili Reykvíkingar munu bezt
tryggja örugga framkvæmd áætlun
arinnar með því að veita lista
Sjálfstæðismanna fylgi í borgar-
stjórnarkosningunum.
Samkomuhg við
vetkammm
í gær tókust samningar milli
Vinnuveitendasambands íslands og
Verkamannafélagsins Dagsbrúnar
um nýjan kauptaxta verkamanna,
þar sem kaup þeirra hækkar um
Húsmæður
og
hitaveitan
íbúarnir í raðhúsahverfinu
við Otrateig eru meðal þeirra
sem munu fá hitaveitu f hús sfn
á þessu ári. En þó er þetta að-
eins fyrsti áfanginn í þeirri víð
tæku hitaveituáætiun, sem Sjálf
stæðismenn f borgarstjóm hafa
beitt sér fyrir, um hitaveitu f
alla Reykjavík á næstu fjórum
árum. Myndina sem hér birtist
tók I.M. ljósmyndari Vfsls í
morgun og sýnir hún húsmæð-
ur vera að virða fyrir sér hita-
veituframkvæmdirnar á Otra-
teig.
SC0TT HVÍLIST EFTIR
VEL HEPPNABA GEIMFÖR
Ovissan í gær um lendingu géim-
farans Carpenters og afdrif hans
snerist í mikinn fögnuð, er kunnugt
var, að hann var heill á húfi.
Fagnaðar- og jafnframt þakklæt-
istilfinning er efst f huga allra
Bandaríkjamanna, segir f fréttum
þaðan í morgun, yfir hversu vel
lyktaði geimför Scotts Carpenters,
en enginn vissi neitt fulla þrjá
stundarfjórðunga um það, hvort
lending hans hefði tekist.
Geimfarið lenti á sjó 200 km
norðvestur af Puerto Rico. Vísinda
mönnum í tilraunastöðinni á Flor-
S/álfstæðismenn
Sjálfstæðisflokkurinn þarf á sem flestu starfsfólki að halda
á kjördag og fyrir. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins,
ungir sem aldnir, er- vinsamlega beönir að setja sig hið
allra fyrsta í samband við skrifstofu flokksins, sem aug-
Iýstar eru á öðrum stað hér í blaðinu.
Skráning starfsfólks fer fram i Sjálfstæðishúsinu frá
kl. 9 til 12 og 13 til 19, og i hverfaskrifstofum flokksins,
frá kl. 14 til 22. Látið skrá ykkur strax I dag.
idaskaga tókst fljótlega með að-
stoð rafheila og annarra tækja, að
komast að raun um hvar geim-
farið mundi hafa lent, og var nið-
urstaða allra útreikninga hin sama.
Flugvélar voru sendar á vettvang
og herskip, en allt að fjögurra
stunda sigling var á lendingarstað-
inn, sem var um 320 km þaðan,
sem lending hafði verið ráðgerð.
Það er talið, að það hafi verið
vegna bilunar á hemlaútbúnaði, að
lending fór ekki fram sem ráðgert
var, — varð 15 sekúndna bið á,
að Carpenter sjálfur gæti kveikt
á hemlaeldflaugunum, og rátt á
eftir dofnaði sambandið milli Cana
veral og Carpenters.
/Flugvél fan. geimfarið og sást
einnig maður á gúmmífleka rétt hjá
geimfarinu, þar sem það flaut á
sjónum, og bjargaði þyria honum
eftir að hann hafði hafzt við á
flekanum í 3 klst. og flutti til flug-
vélaskipsins Intrepid, þar sem
fyrsta læknisskoðun fór fram, ,og
fannst ekkert athugavert við Scott.
Nú er Scott Carpenter kominn
til Great Turk Island í Bahama-
eyjaklasanum og hvílist þar í tvo
sólarhringa, undirgengst frekari
læknisskoðanir og segir nánar frá
geimferð sinni.
6.54% — 9.06%, mest hjá þeim
verkamönnum sem tii þessa voru
lægst launaðir.
Hin áður umsamda 4% kaup-
hækkun, sem ganga átti í gildi 1,
júní n.k. er innifalin í framan
greindri hækkun. Auk þessa, sem
hér er greint er einnig um nokkra
tilfærslu til hækkunar milli ein-
stakra flokka að ræða.
Samkvæmt því samkomulagi
sem náðst hefur gildir samningur
þessi til 15. nóvember n.k. og hafi
honum þá ekki verið sagt upp með
mánaðar fyrirvara framlengist
hann sjálfkrafa um sex mánuði,
og svo áfram á meðan honum
verður ekki sagt upp. Þó er heim-
ild til að segja kaupgjaldsákvæð-
um samningsins upp með eins
mánaðar fyrirvara hvenær sem er
til 15. nóv. n.k. ef vísitala fram-
færslukostnaðar hækkar um 5
stig eða meira. Á sama hátt er
hann uppsegjanlegur frá 15. nóv.
til 15. maí að ári, ef vísitala hækk-
ar á þvf tímabili um 7 stig eða
meira.
Ætlazt er til í þessum samningi
að mánaðarkaup hækki hlutfalls-
lega við umakaupið.
SAMIÐ VIDIDJU
Samningar náðust í gær milli
Iðju, félags verksmiðjufólks og |
iðnrekenda. Eru þeir samningar
svipaðir og þeir sem Dagsbrún
hefir náð, og ekki óhagstæðari,
eftir því sem Vísir fékk upp-
lýsingar um í morgun. Gert er
ráð fyrir því að hinir nýju
samningar gildi til 1. júní 1963.
Allsherjaratkvæðagreiðsla mun
fara fram bæði í félögum iðn-
verkafólks og vinnuveitenda um
samkomulag þetta næstu daga.
» Rússneskt skip, Ingul, hefir
komið með 1500 lestir alls konar
sovétvopna til Casablanca í Mar-
okkó — aðra sendinguna á tveim
mánuðum.
t Tuttugu Júgóslavar, sem voru á
iðnaðarsýningunni í Hannover fyrir
.íokkzu, fengu hæli sem pólitískir
fióuamenn í V.-Þýzkalandi,