Vísir


Vísir - 25.05.1962, Qupperneq 4

Vísir - 25.05.1962, Qupperneq 4
VISIR Föstudagur 25. maí 1962. Yngsti frambjóðandinn i Lang-yngsti frambjóð- andinn, sem líkur eru á að kjörinn verði í borg- arstjórn, er í 8. sæti á lista sjálfstæðismanna. Hann er Birgir ísl. Gunn arsson, héraðsdómslög- maður, 25 ára gamall Reykvíkingur sem þrátí fyrir ungan aldur á að baki glæsilegan feril í félags- og stjórnmálum. jgirgir býr að Fjölnisvegi 15 hér í borg ásamt konu sinni Sonju Bachmann og tveim börnum þeirra, Björgu Jónu 5 ára og Gunnari Jóhanni, sem er á öðru ári. Birgir er fæddur og uppalinn hér í Reykjavík, sonur hjón- anna Jórunnar Isleifsdóttur og Gunnars heitins Benediktsson- ar hrl., sem lengi veitti Ráðn- ingarstofu Reykjavikurbæjar forstöðu. Birgir varð stúdent árið 1955 og lögfræðingur á s.l. ári með hárri einkunn. Fyrir nokkrum dögum lauk hann flutningi próf mála fyrir héraðsdójni og öðiað- ist þar með réttindi sem hér- aðsdómslögmaður. Hann var formaður Vöku fé- lags lýðræðissinnaðra stúdenta 1956 — 57 og formaður Stúd- entaráðs Háskóla íslands 1957 — 58. Hann hefur verið í stjórn Heimdallar í 6 ár og formaður félagsins s.l. 3 ár. Hann er rit- ari Sambands ungra sjálfstæð- ismanna og á sæti í stjórn Full- trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík og flokksráðs Sjálf- stæðisflokksins. Á vegum Há- skólans og samtaka stúdenta hefur hann sótt fundi og ráð- stefnur erlendis þ. á m. í Banda ríkjunum og Noregi. Eins og margir námsmenn stundaði Birgir ýmiss konar vinnu á sumrin á skólaárum sínum. Vann hann m. a. lengi í bæjarvinnunni, einkum í garð- yrkjunni undir verkstjórn Sig- urðar Sveinssonar og síðar Hafliða Jónssonar garðrykju- stjóra. Var þar eins og endra- nær unnið að mörgum fram- kvæmdum til að fegra og bæta útlit borgarinnar og kveður Rætt við Birgir ísleif Gunnarsson hdl» Birgir það hafa verið sérstak- lega ánægjulegt að leggja hönd á plóginn í því efni. \7ísir ræddi fyrir nokkrum dögum við Birgi um ýms áhugamál hans og snerist talið, sem von var mjög um borgarmál efni Reykjavíkur og stjórnmál almennt. Enda þótt engin vissa sé fyr- ir því, að Sjálfstæðismenn haldi meirihluta sínum, leyfð- um við okkur þá bjartsýni að ganga út frá því, að Birgir næði kosningu í borgarstjórn og spurðum hann, að hvaða málum maðurinn ? um félagasamtökum og gæta þess vel, að starfsemi þessara aðila rekist ekki á, þannig að fé og starfskraftar nýtist sem bezt. Til greina gæti komið að setja ákveðin skilyrði fyrir því sálfræðideild fyrir skólabörn og við Heilsuverndarstöðina tók til starfa geðverndardeild, sem einkum er ætluð yngri börnum. Þá hefur verið hald- ið uppi sérkennslu fyrir treg- gáfaða nemendur og heima- kennslu fyrir sjúk börn. Þessu starfi verður að sjálfsögðu haldið áfram en jafnframt verð- ur að athuga önnur úrræði til að hjálpa þeim, sem einhverra hluta vegna eiga ekki samleið með öðrum. 1 íþróttamálum er nú unnið að ýmsum stórframkvæmdum eins og byggingu sundlaugar í Með fjölskyldunni — Björg Jóna fimm ára gömul dóttir Birgis og Sonju, situr vinstra megin við borðið en Gunnar Jóhann, eins og hálfs árs sonur, situr hjá móður sinni. (Ljósm. Vísis I. M.) hann hyggðist þar helzt vinna. — Að sjálfsögðu vinna borg- arfulltrúar sameiginlega að þeim málum, sem að höndum bera, sagði Birgir, en í fjölmenn um meirihlutaflokki er eðlilegt að höfð sé nokkur verkaskipt- ing, og hefði ég mestan hug á því að vinna að þeim málum, er varða æsku borgarinnar. Enda þótt mikið hafi verið gert í þeim málum, eru mörg verkefni framundan. Hina fjölbreyttu starfsemi Æskulýðsráðs þarf enn að efla, en jafnframt verð- ur að örfa og styrkja æskulýðs- starf það, sem unnið er af ýms- Sinstæð skólaslit Eins og skýrt var frá í Vísi fyrir nokkru, eru nú liðin 100 ár frá upphafi samfelldrar barnafræðslu í Reykjavík, og er þess minnst með ýmsum hætti. Um síðustu helgi voru haldnar sýningar á vinnu barna í öllum barnaskólum í borg- inni, og munu um 20 þúsund manns hafa skoðað sýningarnar, sem haldnar voru í 17 skólum. Sameiginleg skólaslit Næst verður það, að síðasta maí, sem er uppstigningardagur, fara fram í Laugardal sameiginleg skóla slit allra barna- og unglingaskóla Reykjavíkur. Samkoman hefst kl. 2:45 e.h. með því að lúðrasveitir leika. Þá verður leikfimissýning pilta úr Laugarnesskólanum undir stjórn Skúla Magnússonar. Síðan ganga nemendur, kennarar og skólastjórar fylktu liði inn á ieik- vanginn, fyrst lúðrasveitir skól- anna, þá fánaberar, þá elzti barna- skólinn, Miðbæjarskólinn og síðan barna- og gagnfræðaskólar í ald- ursröð. Það sem þá fer fram, er þetta: Menntamálaráðherra Gylfi Þ. Gíslason, og séra Bjarni Jónsson vígslubiskup flytja ávörp. Dr. Páll ísólfsson stjórnar fjöldasöng og Guðmundur Jónsson syngur ein- söng, en Lúðrasveit Reykjavíkur og iúðrasveitir skólanna leika. Loks eru skólaslit, sem Jónas B. Jóns- son fræðslustjóri hefir með hönd- um að þessu sinni. Öll athöfnin að samtök, sem vinna að æsku- lýðsmálum, fái styrk úr borgar- sjóði, en jafnframt væri lögð nokkur skylda á borgaryfirvöld in að styrkja slíka aðila ef þeir uppfylla þær kröfur, sem gerð- ar eru. Skóia- og fræðslumál eru meðal þeirra, sem mestu varða fyrir æsku borgarinnar á hverj- um tíma. Um leið og haldið er áfram framkvæmd hinnar stór- huga áætlunar sjálfstæðis- manna um skólabyggingar og fræðslumál þarf að kanna nýj- ar leiðir í þessum efnum. Á s.l. kjörtímabili var stofnuð sérstök verður kvikmynduð. Fylkingin, sem gengur inn á leik- vanginn, verður í fjórum röðum og allt að 2 km. á lengd, því að þátttakendur verða líklega 7 — 8 þúsund. Þó verða 7, 8 og 9 ára börn ekki með í göngunni. Og þar eð ekki eru tök á að flytja þau öll inn í Laugardal, er það ósk fræðsluyfirvaldanna, að sem flest- ir foreldrar þeirra barna komi með þau, svo að þau geti einnig verið viðstödd þessi einstæðu skólaslit. Tekið skal fram, að 10 og 11 ára börn úr þeim skólum, sem fjarri eru Laugardalsvellinum, verða sótt af viðkomandi skólum og þeim skil að þangað aftur. Eldri nemendur verða að sjá um sig sjálfir inn eftir og verða að vera komnir þangað í síðasta lagi kl. 2:30. Undirbún- ing skólaslitanna hefir Stefán Kristjánsson fimleikakennari haft með höndum. Laugardal og smíði íþrótta- og sýningarhúss á sömu slóðum. Auk þess vinna íþróttafélögin að gerð leiksvæða og félags- heimila og njóta til þess styrkja úr borgarsjóði. Ég tel, að sú stefna, sem mörkuð hefur verið í þessum málum sé sú eina rétta. Annars vegar vinnur borgarfélagið að því beint að leysa hin stærri verkefni, en á hinn bóginn styrkir það og örf- ar einstaklinga og samtök til að leggja fram krafta sína. 'T'alið berst nú að þátttöku unga fólksins í borgar- stjórnarkosningunum. Birgir kveður fulla ástæðu til bjartsýni í þvi efni. Hann segist aldrei á þeim árum, sem hanri hefur verið í stjórn Heim dallar hafa orðið var við eins mikinn áhuga ungs fólks á því að ganga í félagið og starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn eins og nú að undanförnu. Fólk streymir inn í félagið, enda þótt engin „herferð“ eða skipu- lögð starfsemi hafi verið rek- in til að fá nýja félaga. Það er áberandi, segir Birgir, hve ungt fólk virðist hafa mikla þekk- ingu og glöggan skilning á borgar- og þjóðmálum. Á því er enginn vafi, að það fólk, sem nú er komið yfir 18 ára aldur hefur ekki minni þekkingu og þroska í þessum efnum en þeir sem náð höfðu 21. árs aldri á þeim tíma, þegar sá kosninga- aldur var ákveðinn. Því er ég eindregið fylgjandi þvi að ald- urslágmarkið verði fært niður í 18 ár og er sannfærður um, við eignuðumst fleiri ábyrga að það myndi stuðla að því að borgara og hæfari til að taka afstöðu í stjórnmálum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur fyrir löngu viðurkennt í verki, að hann treystir ungum mönn- um fyrir hinum mesta vanda og hefur þetta ekki sízt komið í ljós í málum Reykjavíkur- borgar. Bjarni Benediktsson varð borgarstjóri aðeins 32. ára gamall. Gunnar Thoroddsen tók við því starfi 36 ára að aldri og Geir Hallgrímsson var 33ja ára þegar hann varð borgar- stjóri. Ungu fólki ætti að vera það sérstök hvöt ti að fylkja sér um lista sjálfstæðismanna, að borgarstjóraefni hans er ungur og glæsilegur maður, sem þegar hefur unnið álit og traust með störfum sínum. TTinar stórstígu framfarir, sem orðið hafa í Reykjavík, segir Birgir að lokum, bera þess merki að Sjálfstæðisstefn- an hefur lengi notið meirihluta- fylgis í höfuðborginni. Dug- miklir einstaklingar hafa feng- ið að njóta sín og framtaks- semi þeirra blasir hvarvetna við. Jafnframt hafa verið við stjórn framtakssöm borgaryfir- völd og hin glæsilega höfuð- borg, sem unga kynslóðin tekur við, er arfur frá þessum aðil- um, sem henni ber skylda til að auka og varðveita. Sögusýning : búning hennar hefir annazt Gunn- Lokaþátt' • þessarar aldarminn-: ar M. Magnúss. Sýning þessi verð- ingar verður svo sögusýning í Mið- ur mjög umfangsmikil, verður yfir bæjarskólanum 8. júní, sem sýnir sögulega þróun fræðslumála í Reykjavik frá 1862, en nær þó að nokkru yfir 200 ára skeið. Undir- í 14 stofum skólans og að auki í fimleikasal, búningsherbergjum og á göngum. Verður nánar sagt frá henni síðar. Fékk afhentar 1000 kr. vegna mistaka í gærdag kom maður i hús hér í bæ og keypti barnakerru. Hann kvaðst fyrst í stað aðeins hafa 1000 kr. seðil til að greiða með og spurði hvort hægt vœri að skipta. Húsmóðirin, sem seldi kerruna fór í hirzlu, sem peningar /oru geymdir í í bv> 't>'vni tð nf 1 oen- i inga til að gefa til baka. Á meðan j á því stóð kallaði maðurinn til hennar, að hann hefði handbæra nákvæmlega þá upphæð, sem kerr- i an kostaði. Konan hvarf þá frá | hirzlunni til að ganga frá kaup- 1 unum. Hélt maðurinn því þá fram, ð hann hefði af: ..rnt konunni 1000 Framh. á bls 13

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.