Vísir - 25.05.1962, Page 7
Föstudagur 25. maí 1962.
v.v.
VlSIR
v.w.v.v.v.v.v.v.v
I ■ (I ■ ■ ■ ■ I
l■■■■oa■■■■aa■■aai
Heilbrigðismál
hvergi betri
Verna Jóhannsdóttir og Hall-
dór Auðunsson, sem búa í
Faxaskjóli 18, hafa án efa eitt-
hvert skemmtilegasta útsýni i
Reykjavik. Þau eiga þrjú börn,
á aldrinum 12 til 26 ára og eru
tvö þeirra gift. Við spurðum
nýlega Vernu hvað hún vildi
segja um útlit bæjarmáianna.
„Þegar maður er spurður
svona dettur manni nú fyrst í
hug það sem aflaga kann að
- ' '■■■>% > "g>"
\
jfti
s
Verna Jóhannsdóttir
Úr smábœ i stórborg
í
í
Gisli Marteinsson er 25 ára
að aldri. Hann hefur meðal
annars verið framkvæmdastjóri
Skóbúðar Reykjavíkur urn
nokkurt skeið og starfar nú á
skrifstofu hjá Friðrik A. Jóns-
syni í Garðastræti 11.
„Eitt ;.að mikilvægasta sem
Sjálfstæðisflokkkurinn hefur á-
orkað, á undanförnum árum, er
hið aukna frelsi í viðskiptamál-
um. Það skilur enginn, sem
ekki hefur fengizt við það,
hversu miklu hagkvæmara er
að gera viðskipti nú en fyrir
nokkrum árum síðan.
Öll okkar viðskipti og at-
vinnuvegir byggjast svo mikið
á innfluttum vörum, bæði hrá-
efnum og fullunnum vörum að
það verður ekki metið til fjár,
hversu miklu frjálsara þetta er
orðið. Það sem þarna er að
þakka, eru efnahagsaðgerðir
ríkisstjórnarinnar, sem hafa
stórbætt aðstöðuna. Ekki má
heldum gleyma því, að því
frjálsari sem innflutningur
verður, því meiri verður sam-
keppnin. Bein afleiðing henn-
ar hlýtur alltaf að verða hag-
kvæmari innkaup því að ekki
þýðir að vera með dýrari vörur
en aðrir.
Breytingarnar eru raunar svo
örar núna að maður fylgist
varla með þeirn.
Það mál sem ég álít eitt það
stærsta í borgarmálunum, eru
hitaveituframkvæmdir Á und-
anförnum árum hafa stór svæði
fengið hitaveitu, en nú eru ráð-
gerðar enn stórstígari fram-
kvæmdir. Að þær komist í
framkvæmd er ekkert vafamál,
þar sem fjármagn til þeirra er
þegar fyrir hendi.
Hver er sú fjölskylda sem
bíður ekki með óþreyju eftir að
fá hitaveituna? Það er ekki að-
eins að þar sé um þægindi að
ræða, heldur einnig stórvægi
legan sparnað.
Reykjavík hefur nú vaxið ú)
smábæ í stóra borg á nokkrum
áratugum, undir stjórn Sjálf-
stæðisflokksins. Óhætt er að
fullyrða að hvergi á landinu
hafi hagur fólks verið betri en
hér á þessum tíma. Ég tel að
þessi reynzla sé næg trygging
fyrir því að Reykjavík sé bezt
borgið undir stjórn Sjálfstæðis-
flokksins.“
fara. Ég hef ýmislegt við
rekstur bæjarins að athuga, en
ég vil taka það fram að ég tel
engar líkur til að það myndi
batna ef skipt væri um stjórn
á borginni og andstæðingar
Sjálfstæðisflokksins tækju við.
Það veldur okkur nokkrum
vonbrigðum að við erum í
seinni hluta þeirra sem fá hita-
veituna og nýjar götur, en það
geta ekki allir verið fyrstir.
Það sem ég tel til sérstakrar
fyrirmyndar hér í bænum er
fyrirkomulag heilbrigðismála.
Ég er sannfærð um að hvergi
er betur séð fyrir þörfum borg-
aranna í þeim efnum, en hér i
Reykjavík. Borgin rekur hér
Heilsuverndarstöðina, sem er
ákaflega góð stofnun og veitir
margvíslega og nauðsynlega
þjónustu.
Þá má ekki gleyma nýja
fæðingarheimilinu, sem bætti
úr brýnni þörf á sínu sviði og
nýja Borgarsjúkrahúsinu, sem
er að rísa í Fossvoginum.
Ég er borin og barnfædd hér
í Vesturbænum og hef séð þá
ótrúlega hröðu fjölgun, sem
átt hefur sér stað í borginni.
Það er ótrúlegt fyrir fólk sem
er að vaxa upp núna hvað
breytingarnar hafa verið örar.
Braggaíbúðir eru nú alveg að
hverfa og hefur borgarstjórn
mikið gert tii að hjálpa fólki
sem í þeim bjó til að eignast
íbúðir. Hitaveitan fer nú að
koma um alla borgina, stór-
stígar gatnaframkvæmdir eru
nú í uppsiglingu og á öllum
öðrum sviðum hefur orðið stór-
stíg þró’ n.
Ég er þess fullviss að borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
hafa gert sitt bezta til hags-
bóta borgurunum. Maður sér að
vísu ýmislegt sem gæti verið
betra, en það verður að hafa f.
huga að ekki er hægt að gera
alla hluti í einu. Ég held að
fjölgunin í Reykjavík hefði orð-
ið eitthvað minni, ef það væri
eins slæmt ástand hér og and-
stæðingar borgarstjórnarinnar
halda fram.
|.
ijsBBi
Ólafur Júlíusson í vinnusalnum
Ánœgður með
bœjarmálin4 ‘
Ólafur Júlíusson er verkstjóri
í Hraðfrystistöð Reykjavíkur
þar sem nú er fryst síld af
kappi. Hann hefur þetta að
segja um borgarmálefni.
„Ég hef nú haft lítinn tíma
til að hugsa um þessi mál að
undanförnu. Þegar síldin er, eru
stöðugar hringingar, hvort sem
er á nótt eða degi, til að vita
hvort við viljum ekki síld.
Eitt er þó augljóst, að það
hafa orði miklar framfarir hér
í borginni. Fjölgunin hefur ver-
ið geysileg og því margt þurft
að gera til að taka við henni.
Það má segja að ráðin séu meSt
hér til að taka við fólkinu, en
það kostar mikið að byggja alla
hluti upp. Raunar er ekki hægt
að bera Reykjavík saman við
neinn annan stað hér á landi,
vegria stærðarmunar.
Annars er það sem ég hef
mestan áhuga fyrir athafnalíf-
ið. Það er verið að tala um að
það sé siæmt að dreifa frysti-
húsum og fiskvinnslustöðum
frá höfninni. Segja menn að
bílakosturinn sé svo mikill við
að aka fiskinum frá höfninni
Við erum hér alveg við höfn-
ina, en verðum samt að nota
bíla. Ég fæ ekki séð að það
breyti miklu að aka fiskinum
3-5 mínútum lengra, þegar
hann á annað borð er kominn á
bíl, enda er bílakostnaður ekki
stór hluti af verðmæti afurð-
anna.
Á þessu máli er önnur hlið
Það er óþægilegt að vera með
matvælaframleiðslu við höfn-
ina, þar sem allt er fullt af skít
og ryki. Það má að vísu segja
að rykið minnki, þegar búið er
að steypa allar götur hér í
kring
Það breytir þó ekki því að
það er mikill munur fyrir starfs
fólkið að geta farið út fyrir
húsið i matar og kaffitímum.
Til þess að það sé hægt þarf
að vera eitthvað annað land-
rými en gatan. Það munar ótrú
lega miklu hvað fólk er glaðara
og hressara við vinnu sína ef
það sér annað slagið til sólar.
Annars er það mjög mikil-
vægt að byggja sem mest upp
atvinnuvegina. Hjá okkur í
frystihúsunum er vinnan alltof
gloppótt. Það er óvenju slæmt
núna vegna togaraverkfallsins,
en síldin bjargar málinu nokk-
uð.
Ég tel mig ekki hafa ástæðu
til annars en að vera ánægður
með gang bæjarmálanna í
heild.“
■
.VV.V.V .■.■.’.V.V.V.V.V.V
Gísli Marteinsson
kjördegi
ÞEIR stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem vilja aka
fyrir flokkinn á kjördegi, eru beðnir áð láta skrá sig
fyrst í síma 20124 eða 17100.
■ ■■■■■ I
>■■■■■■■■■1