Tölvumál - 01.10.1989, Blaðsíða 3
Tölvumál október 1989
TÖLVUMÁL
FRÉTTABRÉF SKÝRSLUTÆKNIFÉLAGS ÍSLANDS
7.tbl. 14. árg. október 1989
Skýrslutæknifélag íslands:
Skýrslutæknifélag íslands er félag allra áhugamanna um upplýsingamál og
upplýsingatækni á íslandi. Skýrslutæknifélag íslands, skammstafað SÍ, var
stofnað 1968. Stofnendur voru liðlega 100 manns. Nú eru félagar nær 1000
talsins.
Markmið félagsins er að vinna að eflingu upplýsingatækni á íslandi.
Starfsemin er aðallega fólgin í að halda ráðstefnur, námsstefnur, félagsfundi
með fyrirlestrum og umræðum og námskeið um sérhæfð efni og nýjungar í
upplýsingatækni, oft í samvinnu við aðra aðila.
Aðild er öllum heimil. Skýrslutæknifélag íslands er opinn félagsskapur.
Tæknilegur og faglegur áhugi ræður ferðinni í félaginu. Skráning er með
tvennum hætti: Annars vegar eru fulltrúar stofnana eða fyrirtækja og hins
vegar einstaklingar.
Tölvumál er málgagn SÍ. Það er vettvangur fyrir málefni og starfsemi
félagsins. í því birtast athyglisverðar greinar og upplýsingar. Blaðið kemur
út 9 sinnum á ári og er sent félagsmönnum að kostnaðarlausu.
Orðanefnd hefur starfað innan félagsins allt frá stofnun þess. Hún hefur
staðið að útgáfu Tölvuorðasafnsins sem er í stöðugri endumýjun.
Á vegum SÍ starfa ýmsar aðrar nefndir.
Efnisyfirlit:
4 Frá formanni.
6 Bókasafnskerfið Dobis/Libis.
7 Um bókina Software
Engineering Economics.
8 S jálfvirkni í þýðingum.
10 Frá orðanefnd.
12 Tölvuvinnsla í íslenskri
málstöð.
13 Fréttir af
virðisaukaskattinum.
14 Tölvunet Verzlunarskóla
íslands
Skrifstofa félagsins er að Hallveigarstíg 1, 3. hæð, sími 27577.
Framkvæmdastjóri þess er Helga Erlingsdóttir.
Stjórn Skýrslutæknifélags íslands
Formaður:
Varaformaður:
Ritari:
Féhirðir:
Skjalavörður:
Meðstjómandi:
Varamaður:
Halldór Kristjánsson, verkfræðingur
Anna Kristjánsdóttir, dósent
Bjami Júlíusson, tölvunarfræðingur
Kjartan Ólafsson, viðskiptafræðingur
Snorri Agnarsson, tölvunarfræðingur
Guðbjörg Sigurðardóttir, tölvunarfræðingur
Jón Gunnar Bergs, verkfræðingur
FjármálaráöuneytiC
Bókasafn
Ritnefn 7. tbl. 1989:
Helgi Þórsson, forstöðumaður, Ritstjóri og ábyrgðarmaður
ÁgústÚlfarSigurðsson, tæknifræðingur, Ritstjóri
Hólmfríður Pálsdóttir, tölvunarfræðingur
Daði Jónsson, reiknifræðingur
Guðríður Jóhannesdóttir, lögfræðingur
Efni TÖLVUMÁLA er sett upp í
PageMaker á Macintosh-tölvu.
Fjölritað hjá Offsetfjölritun hf.
3