Vísir - 18.06.1962, Blaðsíða 3
Mánudagur 18. júni 1962.
VlSIR
3
■
V-- . sj
' ;;:•:■ >■:
*
líka
Myndsjá í dag er vitaskuld
af hátíðahöldunurn i gær. Þau
voru að mestu með sama sniði
og í fyrra, en það sem skemmti-
legast var, og gerir daginn eftir
minnilegan var hinn mikli ara-
grúi fólks, barna og fullorð-
inna, sem lagði leið sina niður í
miðbæ og var viðstaddur sjáif
hátiðahöldin. Almenn þátttaka
er á hverjum tíma Ijósasti vott-
ur þess, hvaða hug fólk ber til
þjóðhátiðardagsins, og þvi var
mannfjöldinn á götum Reykja-
víkur i gærdag og gærkvöldi
gleðileg þátttaka. Jafnvel veð-
urspáin og skúrirnar komu þvi
ekki að neinni sök.
Kiukkan tvö um eftirmiðdag-
inn, skömmu eftir að hátiðin var
sett, lagði forseti Islands, herra
Ásgeir Ásgelrsson blómsveig
frá íslenzku þjóðinni að fót-
stalli Jóns Sigurðssonar á Aust-
urvelli (sjá mynd).
Þá flutti Kristbjörg Kjeld
leikkona ávarp fjallkonunnar af
svöium Alþingishússins og birt-
um við einnig mynd af því.
Klukkan þrjú hófst barna-
skemmtunin á Arnarhóli, og
hafði þú driflð að þúsundir
barna, mörg með foreldrum sín-
um og var hóiiinn þéttskipaður
fólki. Var öllum skemmt, jafn-
vel lögregluþjónunum lfka, eins
og sjá má á hinum brosandi
andlitum hér á fjögurra dálka
myndinni.
Leið svo dagurinn, en um
kvöldið fylltist aftur Arnarhóll,
nú til að fylgjast með kvöld-
vökunni. Stóð hún til um tíu,
og stóð þá á endum. Hennl var
nefnilega ekki fyrr Iokið, en úr-
hellisrigningu gerði. Flestir
voru þó við regninu búnir, og
brugðu regnhlífum á loft. Var
litskrúð mikið og í rauninni
synd og skömni, að ekkl skuli
vera hægt að hafa regnhlifar-
myndina hérna i litum.