Vísir - 21.07.1962, Page 1
f
VISIR
18% tollur á freðfisk ef
viS stöndum utun EBE
Gylfi Þ. Gíslason ræddi þrjór leiðir
tii að gæta viðskiptahagsmuna íslands
Þessari merkilegu mynd náöum við af biskupinum yfir íslandi, séra Sigurbirni Einarssyni, þar sem
hann stendur í Þorlákssæti. Nýja kirkjan í Skálholti er í baksýn.
Ef ísland fær engin tengsl við Efnahagsbanda-
lag Evrópu mun 18% tollur leggjast á íslenzkan
freðfisk, sem seldur er til Vestur-Evrópu meðan
keppinautar okkar í Noregi, Bretlandi og Þýzka-
landi geta selt afurðir sínar tollfrjálst. Þannig gæti
svo farið, að það yrði erfitt fyrir íslendinga að
halda freðfisksmörkuðum sínum í Vestur-Evrópu,
hvað þá að auka sölu þangað.
Það yrði einnig torveldara að koma hér á fót
nýjum greinum útflutningsiðnaðar, sem selt gæti
á Vestur-Evrópumarkaði. Tollur efnahagsbanda-
lagsins á aluminium verður t. d. 9% og mundi slík-
ur tollur útiloka aluminiumvinnslu hér á landi, ef
helzti keppinautur okkar á þessu sviði, Noregur,
væri aðili að bandalaginu.
Að tryggja
viðskiptahagsmuni.
Þetta eru þær staðreyndir
sem liggja að baki athugunum
íslendinga á tengslum við Efría
hagsbandalag Evrópu. Skýrði
Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamáía
ráðherra frá þessu í fréttaauka
í ríkisútvarpinu í gærkvöldi. En
hann kom úr ferð til Evrópu 1
fyrrakvöld eins og Vísir skýrði
Framh. á bls. 2.
Skálholt verður
biskupssetur
„Skálholt verður bisk-
upssetur. Hvort þar situr
biskupinn yfir íslandi, ann
ar af tveim biskupum eða
vígslubiskup Skálholts-
biskupsdæmis, er ekki vit-
að. Hitt er víst, að þar
verður biskup setztur í ná-
inni framtíð“.
Séra Sigurbjörn Einarsson, nú-
verandi biskup, bauð fréttamönn-
um til Skálholtsstaðar í gærdag og
fræddi þá um málavexti varðandi
framtíð staðarins.
„Um Skálholt sem biskupssetur
eru menn á eitt sáttir, en hvaða
embættismaður og með hverjum
hætti það skuli gert, standa aftur
á móti deilurnar um.“
„Mín skoðun er sú,“ hélt bisk
Framh. á 4. síðu.
átök í
Naustinu
Mokafli áfram á austurmiðunum
Um hádegisleytið í gær kom
til lítils háttar átaka í veitinga-
húsinu Nausti þegar fulitrúar
frá Alþýðusambandinu ætluðu
að hindra eiganda veitinga'núss-
ins, Halidór Gröndal í að ser-
vera sjálfur veitingahúsgesti.
Þar sem Halldór er meðal eig
enda veitingahússins taldi hann
sér heimilt að annast þjónustu
sjálfur fyrir gesti sína. En með
an hann var að bera súpuna á
borð komu fulltrúar Alþýðusam
bandsins og reyndu að hindra
thann í því.
Halidór hringdi þá á lögregl-
una og bað hana að fjarlæg ;■
þessa fulltrúa og var svo ger<
Gátu veitingahússgestír siðan
Iokið máltíðinni.
Hins vegar taldi Udór sér
ekki fært að halda Naustinu
opnu um kvöldverð í gær,
vegna þess. að aðsókn myndi
verða svo mikil, að hann p,aat.i
?'.tki annað þjónustunni.
Áframhald er á moksíldarafla á
j austurmiðunum. Samkvæmt upplýs
ingum frá fréttaritára Vísis á Rauf-
arhöfn í gærkvöldi komst Víðir II
í tnikla síld, kastaði og fyllti sig,
um 40 sjómílur NNA af Hraun-
j hafnartanga, og fann hann þessa
síld á eigin spýtur. — Ægir fann
nokkrar torfur a 67.12 og 17.05 á
I 30 faðma dýpi og ætlaði að doka
j þar við og vita, hvort þær grynnk-
1 uðu ekki eitthvað á sér Nokkur
' skip eru á léið á báða staöina.
! Þá fékk Gullfaxi 1400 tn. 25
sjómílur NA frá Bjarnarey og eru
fleiri skip þar. Sigurður Bjarnason
, sprengdi pótina og voru þeir að
j gera við nótina i gærkvöldi á ní-
j unda tímanum.
Nokkur skip eru á leið’á báða
staðina, sem að ofan eru nefndir
j Mikil síld er austur af Langa
nesi og nokkru norðar en i gær
i Ekkert var saltað á Raufarhöfn
j í gær. — Löndunarbið á Raufar-
höfn er sólarhringur eða meira.
j Frá Siglufirði var símað í gær,
1 að sólarhringinn fram til kl. 8 í
gærmorgun hafi verið meiri síld-
veiði en nokkurn annan sólarhring
á sumrinu til þessa, — 94 skip
fengu samtals 85.700 mál og tn.
Veiðin er sögð á svipuðum slóðum
og áður fyrir austan land. Mörg
skip frá Siglufirði hafa farið jafn-
óðum og þau hafa losað á leið á
þær slóðir, sem Víðir II kastaði, og
er talið, að þarnu sé söltunarsíld.
Stanzlaus löndun var á Siglufirði f
gær og nær eingöngu bræðslu-
síld, en f fyrrinótt var saltað þar
2813 tn. 1 nótt sem leið voru
■nörg skip væntanleg með sílb.
I fyrrinótt kom Ljósafell til Fá-
skrúðsfjarðar með 1200 mál og tn.
og var nokkuð saltað.
I fyrrakvöld var búið að salta á
Seyðisfirði í 7216 tn og 800 fryst- j
ar. Stokksnes lestar bræðslusíld \
til Siglufjarðar. Flutningaskipið
Baldur er þar og er verið að lag-.;
færa það. Lítið var saltað á Seyð-
isfirði í gær.
í fyrrinótt og í gær komu 7 bát-
ar með 5000 mál og tunnur til Nes-
kaupstaðar. Lítið saltað.
Frá Siglufirði frétti Vísir í gær-
kvöldi, að Víðir II hefði fengið
1700 tn. í kastinu, sem um var
getið hér að ofan og að Ægir væri;
nokkru vestar og mundu verða j
nokkpð mörg skip á báðum veiði- j
svæðunum í nótt. Þó mundu ekki;
verða eins mörg skip að veiðum
og aðfaranótt föstudags, þar sem
nörg hafa verið að landa eða bíða í
löndunar. Góðs viti væri talið, að
ágæt síld veiddist á nýjum stöð-
um — sama góða síldin og bezta
söltunarsíldin til þessa.
Demantssíldin.
Fréttaritari Vísis á Raufarhöfn
hringdi til blaðsins á ellefta tíman-
um í gærkvöldi og sagði, að dem-
antssíldin væri aftur komin efst
á dagskrá. Víðir II væri á leiðinni
til Ólafsfjarðar með 1700 tunnur
af ágætri söltunarsíld og Guðmund
ur Þórðarson hefði fengið gott
kast á sömu slóðum.
Þá sagði hann, að kl. 8 í gær-
kvöldi hefði Hafrún IS 400 lent í
mjög mikilli vaðandi síld ein
skipa 35—40 sjómílur ANA af
Langanesi. Var hún búin að
kasta og fékk ágætí kast af
stórri og fal’egri síld. Nokkur
skip voru á Jeiðinni þangað.