Vísir - 21.07.1962, Blaðsíða 6

Vísir - 21.07.1962, Blaðsíða 6
VISIR Laugardagur 21. júlí 1962. // Það er vandlifað í þessu landi" Oft kvarta vegfarend- ur undan miklum og hröðum akstri í nsi- grenni Reykjavíkur, og oft hafa borizt fréttir af alvarlegum umferðar- slysum í nágrenni borg- arinnar. Við erum staddir í lögreglubifreið á Vest- urlandsvegi í eftirlits- ferð með Sigurði Ágústssyni, varðstjóra. HM ' Hreiðar Grímsson, vöruflutningabílstjóri. Bifreiðin hefur verið stöðvuð við vegamótin á Hafravatnsvegi, og ætlunin er að fylgjast með umferðinni, sem er nokkuð mikil. Flestir ökumannanna aka mjög vel. Bifreiðir þeirra eru réttu megin á veginum og a k s t ur þeirra öruggur, um sex- tíu til sjötíu km. hraði. Glannalegur akstur ungra manna. — Er eitthvað hæft í því, Sig urður, að ungir menn aki glannalega á vegum úti? — Já, það er því miður satt. Vegna anna og of takmarkaðrar löggæzlu hefur skort möguleika til að sanna háttalag þeirra og leiða þá fyrir dómara. Ungir menn verða að skilja það, að vegirnir eru ekki leiksvæði þó að þeir hafi alizt upp við þá allt frá því að þeir óku þríhjól- unum sínum. Það eru samt ekki ungu mennirnir einir, sem aka hratt. Það eru merkilega „gaml ir“ unglingar til 1 umferðinni. — Finnst þér menn aldrei aka of hægt? — Jú, svo er aftur það gagn- stæða um þá menn, sem halda að þeir séu frjálsir að því að aka eins hægt og þeim sýnist. Halda sig á miðjum vegi og hleypa ekki fram hjá sér, fyrr en stór skari ökumanna er orð- in leiður á þessum seinagangi. Það á ekki að eiga sér stað, að ,Það hlýtur að vera allt í lagi að gefa svolítið í og fara fram úr á 80 km. hraða?“ Margt er þó gert til að bæta ástandið, m. a. er farið að gera nokkuð að því ?.ð skipta blindhæðum. Ljósmyndir Vísir, B. G. menn lulli afar hægt í mikilli umferð . á mjóum þjóðvegum, patandi og glápandi á eftirtekt- arverðustu hluti landslagsins. Þqir eiga að stöðva á næsta út- skoti og njóta útsýnisins. Fram úr á 90 km. hraða Allt í einu veitum við athygli Volkswagenhíl.-ífcmoiHBnurtþjðt andi á ekki ffeingaJÉrT 7p tjl km. hraða. Þegar hann kemur að næstu bifreið, er hraðinn ekki minnkaður, heldur aukinn og ökumaðurinn liggur á flaut- unni. Síðan þýtur bíllinn fram úr á hæð. Jeppabifreið kemur í þeim svifum akandi á móti, en öku- manni hennar tekst með naum- indum að forða árekstri. Ekki lætur ökuþórinn þetta neitt á sig fá, heldur ekur áfram á sömu ferð. Nú er lögreglubifreiðin ræst og haidið á eftir ökuníðingnum með sfrenuna vælandi og geisl- ar frá hinu rauða, blikkandi við vörunarljósi á þaki bílsins falla á vélarhús hans. Hraðamælirinn stígur ört og er nú kominn upp f 90 km. hraða. — Þegar við höfðum dregið bflinn nokk- uð uppi, mælir Sigurður hraða bílsins fram undan, og mælir- inn sýnir rúma 90 km. Fljótlega eftir að ökumaður- inn verður var við lögreglubíl- inn á eftir sér, hægir hann ferð ina. Þegar lögreglubíllinn kem- ur upp að hliðinni á honum, staðnæmist hann, og lögreglu- bifreiðin ekur fram fyrir og staðnæmist. Sigurður fer út til að tala við ökumanninn og við fylgjum á eftir til að heyra hvað þeim fer á milli. Með bilaðan hraðamæli — Hvað ókuð þér hratt? — Ja, ég veit það ekki, ég rann léttan. — Hraðamælirinn er bilaður hjá mér svo að ég veit ekki með vissu um hrað- ann. — Hvað er hámarkshraðinn hérna á þjóðvegunum? spyr Sig urður. — Hámarkshraðinn??? Ég fór áðan fram hjá skilti, að mig minnir rétt fyrir austan Grafar- holt, sem merkir, að hámarks hraða sé lokið. — Nú misskiljið þér hlutina algerlega, segir Sigurður. Skilti það, sem þér nefnduð, er gult með svörtu þverstriki og merk- ir, að sú takmörkun á hámarks- hraða, sem á því svæði, er þér ókuð um, sé lokið. Sem sagt, í Reykjavík er 35 km. hámarks- hraði. — Eins og er, þá er leyfð ur 45 km. hámarkshraði á Suð- urlandsbraut og Reykjanes- braut á vissum svæðum f nám- unda við borgina. — Hafið þér veitt því athygli hvar hámarkshraðaskiltin eru á þeim vegum næst borginni? spyr Sigurður, ökumanninn næst. Framh. á bls. 10 Hættulegur leikur úti á fjöl- förnum þjóðvegi. Halda mætti, að brú þessi væri á vegi, sem hægt var að aka fyrir 40 árum. En svo er ekki. — Brúin er á einum fjölfarnasta vegi landsins. Slík brú og frágangur við hana á ekki að þekkjast árið 1962. • t ; i » .• ■ . i \ > i / , U ( I H U l'.Vt i » « 1 ' ' M 1 , t t t ! f I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.