Vísir - 21.07.1962, Blaðsíða 3
Laugardagur 21. júlí 1962.
VISIR
Sól og sumar í Hellisgerði
Mikið kapp er meðal krakkanna að geta hitt 1 skálina, og flest þeirra sjá ekki eftir þvi þótt
þau hendi sfðustu aurunum. Ljósm. Vísir, K. M.
„Garðurinn virðist vera allt
of nálægt Hafnfirðingum til þess
að þeir geti sótt hann vel, en
Reykvíkingar láta ekki standa
á sér að koma hingað.,“ sagði
Sigvaidi Jóhannsson, garðvörð-
ur í Hellisgerði, við fréttamann
og ljósmyndara Vísis, þegar
þeir heimsóttu garðinn einn góð
viðrisdaginn fyrir skömmu.
Þeir eru áreiðanlega orðnir
margir, scm hafa staldrað við
í þessum sérkennilega og fal-
lega skrúðgarði þeirra Hafnfirð-
Sigvaldi garðvörður.
inga. En Hafnfirðingar eru ekki
einir um að sækja garinn, eins
og heyra má af ummælum Sig-
valda, því að hann virðist meira
sóttúr af Reykvíkingum og það
urðum við varir við, þegar við
lögðum leið okkar suður í Hafn
arfjörð. Er srætisvagninn stað-
næmdist á næstu biðstöð við
garðinn, tæmdist hann að heita
mátti, og flestir lögðu leið sina
beint inn í garðinn.
Hellisgerði var opnað 1. júlí
og síðan hefur að heita má ver-
ið látlaus straumur gesta þang-
að. Mikið er um að börn sæki
garðinn og hafa flest þeirra
matarpakka og gosflösku með
sér til að neyta úti.í góða veðr-
in.
Nokkuð mikið er um að út-
lendingar heimsæki garðinn, en
flestir þeirra staldra mjög stutt
við. Aðalaðdráttarsvæðið er auð
vitað tjörnin, úti i henni miðri
er stytta, sem heitir Litli fiski-
maðurinn, sem Bjarni læknir
Snæbjörnsson gaf, er hann hafði
dvalizt 25 ár í Hafnarfirði. Einn
ig er í tjörninni skál og getur
fólk spreytt sig á að kasta í
hana smáaurum. Er hún önnur
af tveimur tekjuliðum, sem garð
urinn hefur, hitt er plöntusala,
sem er talsverð.
Þessa stuttu stund, sem við
röltum um garðinn, var margt
um manninn þar, mest var af
bömum, sem hlupu um og ólm-
uðust í góðviðrinu. Á bekkjun-
um sat eldra fólkið og masaði,
í lautunum lágu „kropparnir“
og sóluðu sig hátt sem iágt.
Yfir allt gnæfir svo Iíkneski
Bjarna riddara Sivertsens.
Á bekkjunum situr roskna fólkið og talar um góða veðrið.