Vísir - 21.07.1962, Qupperneq 12
12
VISIR
Laugardagur 21. júlí 1,962.
Kvennasíða
Framh. af 7. síðu. |
mennt má segja, að hósti sem
staðið hefur einn mánuð sé
varasamur og þá ætti maðurinn
að láta lækni rannsaka sig.
Óðalungnakvef er bólga 1
lungnapípunum. Hún getur staf- !
að af venjulegri ofkælingu eða
verið afleiðing inflúenzu, en
getur einnig komið án nokkurs
undangengins sjúkdóms. Hún
stafar venjulega af bakteríum.
Það er fljótlegt að draga úr
henni með fúkkalyfjum Þess
vegna er kannski ekki ástæða
til að óttast þennan sjúkdóm, :
en þó er batinn mjög undir því
kominn að maðurinn fái rétta
aðhlynningu og hjúkrun.
í fyrstunni á að gefa honum
sjúkramat, svo sem ávaxta-
d"ykki, súpur, og mjólk-
urmat. Heitt te er eitt af
beztu meðulunum til að draga
úr erfiðum hósta. Síðar má
prófa sig áfram með matinn og
þá verður ekki aðalatriðið
hvaða matartegundir það eru,
heldur hitt að maðurinn hafi
lyst á matnum. Hann verður því
að vera bragðgóður og lystug-
ur, uppáhaldsmatur hans.
Þegar þannig stendur á verð-
ur um tíma að gleyma öllum
matarkúr og gefa manninum
nóg að borða af þeim mat sem
honum finnst lystugastur.
Þér skuluð athuga það, að
þegar maðurinn yðar hefur einu
sinni fengið þennan sjúkdóm
verður hann móttækilegri fyrir
honum í annað skipti. Og það
tekur langan tíma að fá fullan
bata eftir að slímhúð lungna-
pípanna hefur skaddazt.
Þe6ar reykingamaður hef-
ur krónískan hósta þarf hann
að láta rannsaka sig. Þegar
maðurinn yðar hefur stöðugan
þurran, þreytandi hósta, þá
skuluð þér ekki leyfa honum
að láta sem ekkert sé. Nauðið
í honum að fara í gegnumlýs-
ingu. Hún kostar ekkert og
röntgentækið getur fyrr séð
Mikid úrval al
4 5 og 6 manna
bilum Hringid i
sima 23900 og
leitib uppíýsinga
BÍLA- BÁÍA- OG VERÐBRÉFA-
SALAN BERGÞÓRUGÖTlí 23
Kjörbíllinn
sími 73900
sjúkdóm á byrjunarstigi, miklu
fyrr en hlustunartæki læknis- j
ins. En jafnvel þó ekkert sjáist j
við gegnumlýsingu, ættuð þér
að ráðleggja honum að draga
úr reykingunum.
Sá sem hafnar því öryggi sem
fylgir gegnumlýsingu er heimsk
ur, fífldjarfur eða lifir á liðinni
öld. Hvað af þessu sem gildir
um mann yðar, þá þurfið þér
að fá hann ofan af þrjózkunni
og skilja það að þetta er
heimskulegt.
Það er nú staðreynd, sem
ekki verður iengur á móti mælt
að óhóflegar sígarettureykingar i
valda lungnakrabba. Margt af j
því sem verður fólki til bless- 1
unar og ánægju, þegar þess er
neytt í hófi snýst upp í bölvun,
þegar því er ekki haldið innan
hæfilegra takmarka og það
gildir einmitt um tóbaksrpyking
ar.
★
Auk lungnakrabbans geta
sfgarettureykingar valdið ýmiss
konar hálssjúkdómum og á-
kveðnir hjartasjúkdómar stafa
og af þeim. Rannsóknir hafa
t.d. sýnt það svart á hvítu að
hættan á því að stórreykinga-
menn fái blóðtappa er miklu
meiri en fyrir bindindismenn á
tóbak.
Reykingamönnum er einnig
hættara við lungnaberklum og
sígarettureykingar geta valdið
magasjúkdómum. Margir af
þessum sjúkdómum sem algeng
ari eru meðal reykingamanna en
bindindismanna valda enn
stærri dánartölu en lungna-
krabbinn.
•
Þegar menn kveikja í síga-
rettu finnst þeim þeir slappa
dásamlega af, — en þegar um
stórreykingamenn er að ræða,
sem eru forfallnir í tóbak, er
ekki Iengur um neina afslöppun
að ræða, heldur eykur tóbaks-
reykurinn þvert á móti spenn-
una.
Maðurinn sem fær sér einn
vindil eftir matinn, kannski að-
eins einu sinni í viku, hefur
miklu meiri ánægju af tóbaki
en hinn sem kannski keðjureyk-
ir 40 — 50 sígarettur á dag. Og
mesta ánægju veita pípureyking
arnar þegar allt kemur til alls.
©
Nú spyrjið þér kannski: — ]
Á maðurinn minn að hætta al-
■'og að reykja?
Því er til að svara, að ef
maðurinn yðar er vanur að
keðjureykja allan liðlangan dag
inn, þá er ótrúlegt að hann
geti dregið úr reykingunum
nema með þvi að hætta alveg.
Ef maðurinn getur hins vegar
dregið úr reykingunum svo að
þær verði hæfilega miklar, þá
þarf hann ekki að hætta alveg
til að vernda heilsuna og máski
bjarga lífi sínu,
Læknirinn getur hjálpað
manninum yðar við að draga úr
reykingunum. Hann getur bæði
gefið góð ráð og gefið meðul.
En hvað er hæfilega mikil
reyking? — Ef um sígarettur
er að ræða, ætti neyzlan ekki að
fara fram úr fimm á dag.
•
Margir sem hafá getað hætt
að reykja I nokkrar vikur verða
þess allt I einu vísari, að þeir
þurfa ekkert á tóbakinu að
halda.
Ef maðurinn yðar er mikill
reykingamaður, verður hann að
íiætta I dag að reykja. Það er
ekki skynsamlegt að fresta því
ið hætta að reykja. Margir
nenn segjast ætla að hætta á
' ■■■• 'n það hafa þeir sagt
ntir.
Árbækur Hins íslenzka bók-
menntafélags árið 1961 eru komn-
ar út, en þær eru 135. árg. Skírnis
og Baldvin Einarsson og þjóðmála-
starf hans eftir Nönnu Ólafsdóttur
magister.
Skírnir er að vanda fjölbreyttur
að efni. Ritstjórinn,', Halldór Hall-
dórsson ritar um Háskóla íslands
fimmtugan, Einar Laxness aldar-
minningu Jóns Sigurðssonar, Bo
Almquist grein, er hann nefnir
Um ákvæðaskáld, Erik Sönderholm
Samtíning úr Fóstbræðrasögu,
Árni Björnsson Hjátrú á jólum, Ein
ar Bjarnason Um íslenzka ættfræði
og sýnishorn af ættarrannsóknum
eftir fornbréfum, Sven Möller
Kristensen um Kaj Munk, Trausti
Einarsson Nokkur orð um sumar-
aukagreinina I íslendingabók, Að-
algeir Kristjánsson Lok einveldis
í Danmörku og stofnun íslenzku
stjórnardeildarinnar 1848, Jónas
Pálsson og Hjálmar Ólafsson At-
huganir á landsprófi miðskóla,
Steingrímur J. Þorsteinsson Dokt-
orsrit um Hómersþýðingar Svein-
bjarnar Egilssonar, Einar ól.
Sveinsson Athugasemdir um Alex-
anderssögu og Gyðingasögu. Þá er
þar bréf frá Jóhanni Sveinssyni,
sem hann nefnir Hugleiðingar jm
verðiaunabók, en ritfregnir skrifa
þeir Jakob Benediktsson, Aðalgeir
Kristjánsson, Magnús Már Lárus-
son," Þórhallur Vilmundarson, Hall
dór Halldórsson, Alejtftnd^iíóhE&Wi
essonf Þóroddur Guðmundsson og
Gunnar Sveinsson.
Baldvin Einarsson og þjóðmála-
starf hans er að stofni til ritgerð
Nönnu Ólafsdóttur til meistara
prófs. Höf. segir m.a. í formála:
„Hið ýtarlegasta, sem til er am
Baldvin á einum stað, er eftir Boga
Th. Melsteð I Tímariti Bókmennta-
félagsins 1904... Rækileg rannsókn
hefur þó ekki farið fram á starfi
Baldvins. Með þessari bók er reynt
að bæta úr því að nokkru leyti og..
lýsa verki Baldvins og áhrifum
hans á fslenzk málefni, menningar
leg og atvinnuleg og stjórnmála-
leg.“ Bókin er 202 bls. að stærð að
nafnaskrá meðtalinni og nokkrar
myndasíður að auki.
Þessar bækur verða nú sendar
félagsmönnum. Þær og aðrar bæk-
ur Bókmenntafélagsins eru auk
þess til sölu hjá Bókaverzlun Sig-
fúsar Eymundssonar, og geta menn
gerzt þar félagar I Bókmenntafé-
laginu.
Mil«
M
tieii
LIM
UliftUeiÝSINOAS
BARNAVAGNAR. Notaðir barna
vagnar og kerrur. Einnig nýir vagn
ar. Sendum i póstkröfu hvert á
land sem er Tökum í umboðssölu.
Barnavagnasalan, Baldursgötu 39,
sími 20390.
KÆRKOMNAR tækifærisgjafir —
málverk, vatnslitamyndir, litaðar
ljósmyndir hvaðanæfa að af land-
inu, barnamyndir og biblíumyndir.
Hagstætt verð. Ásbrú Grettisg. 54
HITAVATNSDUNKUR (spíral) til
sölu. Sími 23243. (1020
VEIÐIMENN. Ánamaðkur til sölu.
Grettisgötu 31. Sími 23973. (1019
TIL SÖLU vegna brottflutnings.
Skrifborð, ísskápur (Atlas), sófa-
borð, barnakerra, útvarp með
plötuspilara, eldhúskoliar, stuttur
dfvan, hægindastóll, búrvigt, karl-
mannsföt o.fl. Til sölu að Álfheim-
um 26 4. hæð. Sími 35119 og 10444
eftir kl. 2 I dag. (958
ELDHÚSBORÐ með skápum til
i sölu, Seljaveg 21, efstu hæð. —
I Hentug í sumarbústað.
SÖLUSKALINN á Klapparstíg 11
kaupir og selur alls konar notaða
muni. Sími 12926 (318
HÚSGAGNASKÁLINN, Njá'sgöti.
112, kaupir og selur notuð hús
gögn, herrafatnað, gólfteppi og fl
Sími 18570 (000
SÍMI 13562 Fornverzlunin Grett
isgötu. Kaupum húsgögn ve) með
farin, . karlmannaföt og útvarps
tæki, ennfremur gólfteppi o.m.fl
Fornverzlunin Grettisgötu 31. (135
TIL TÆKIFÆRISGJAFA: — Mál
verk og vatnslitamyndir Húsgagna
verzlun Guðm. Sigurðssonar, —
Skólavörðustig 28. — Sími 10414.
ÖSKA EFTIR vel með förnum
dúkkuvagni. Uppl. I síma 35658.
DODGE VIBON til söilu, til sýnis
sunnudag frá kl. 1-5 á Miklubraut
90. (1014
KAUPUM kopar og eir Jámsteyp-
an h.f. Ánanaustum. — Sími 24406
NÝLEGUR rafmagnsþvottapottur
til sölu. Uppl. I síma 18278. (1021
• •
.•.•.•••.v.y.v.%y.
...... •’••••
r. .•p*-*
- -J’.Vu.- -«•
SAMKOMUR
K. F. U. M. Almenn samkoma ann-
að kvöld kl. 8,30. Gunnar Sigur- ‘
jónsson guðfræðingur talar Allir \
velkomnir.
SMURSiODlN Sætúni ». -
Seljum allar tegundir af smuroliu.
Fljót og góð afgreiðsla.
Sími 16-2-27.
KISILHREINSA miðstöðvarofna og
kerf með fljótvirki tæki. Einnig
viðgerðn breytingar og nýlagnir
Sími 17041 (40
VÉLAHREINGERNINGIN
s'lgliSiltí
góða Fljót-
leg, þægileg
vönduð
vinna, van-
ir menn
ÞRIF h/t - Simi 35357
AFGREIÐSLUSTÚLKA óskast
strax. Uppl. I síma 12529 og 23398.
(1008
BíSa- og
SE'.UR:
Volkswagen ’55 — ’62
Corvair ’6G
Ford ’5"
Ford '55 góður bíll
Chevrolet ’55
Skoda '56 — ’59
Moskowitch '55 — ’60
Jeppar 42 — ’55
Austic '46 — '55
VÖRUBÍL4R
Mercede. Benz ’55— ’Gl
Chevrolet ’55 —’61
Volvo '55 — ’57
Bedford ’60-’61
Chevrolei ’47
Ef þér ætlið að selja bíl, þá
lítið inn.
Ef þér ætlið að kaupa bil, þá
iítið inn.
Ennfremur höfum við ávallt all-
Bíb- og
búvéiasalan
við Miklatora Slmi 2313f
EGGJAHREINSUNiN
Munlö liina þægilegu kemisku
vélhreingemingu á allar tegundir
híbýla. Simi 19715
HREINGERNING ÍBÚÐA. Sími
16-7-39.
REIÐHJÓLAVIÐGERÐIR, — örin
umst viðgerðir og sprautun á hjálp
armótorhjólum, reiðhjólum, barna-
vögnum o.fl. Einnig til sölu upp-
gerð reiðhjól flestar stærðir.
Reiðhjólaverkstæðið LEIKNIR
Melgerði 29, Sogamýri. Sími 35512
(2254
FIREINGERNINGAR - GLUGGA
HREINSUN. Fagmaður í hverju
starfi. Sími 35797. Þórður og Geir.
Þýzk STÚLKA, enskumælandi 22
ára vill dvelja í mánuð og vinna
hálfan daginn hjá íslenzkri fjö!-
skyldu.
Susanne Krumrey
Hildesheim Goslarschelandstr na6.
(1022
FÉL/tSSlÍF
Frjálsiþróttadeild KR. Innanfélags-
mót í kúluvarpi kl. 15,30 í dag.
Stjörnin
HUSKADENDUU - uatið okkui
leigja — Leigumiðstöðin. Lauga-
vegl 33 B. (Bakhúsið) Simi 10059.
ÓSKA EFTIR stórri stofu eða ?
samliggjandi herbergjum. Helzt í
Hliðunum. Uppl. i síma 32274.
(1013
HERBERGI sem næst Landsspítai-
anum fyrir erlenda læknastúdenta
óskast í ágúst og september. —
Uppl. í síma 19444 og 17836. (1023
VANTAR 2ja-3ja herb. íbúð nú
þegar eða um næstu mánaðamót.
Uppl. í síma 13914. (1009
KJALLARAHERBERGI með sér
inngangi og baði óskast í Vestur-
bæ innan Flringbrautar. Uppl. í
síma 17122 1-4. (1016