Vísir - 27.07.1962, Qupperneq 2
VISIR
Föstudagur 27. júlí 1962.
t=j j—3
mm
w////////mw////s
Rússar og Bandaríkja-
menn gengu„arm viBarm
StórkosSeg landskeppni
//
Á myndinni sem tekin var norð-
ur á Akureyri í fyrrakvöld af
Bjarnleifi Bjarnleifssyni sézt
Bjarni Bjarnason framvörður Ak-
ureyrar skalla frá markinu. Akur-
nesingar voru ágengri við markið
í þessum hálfleik rétt eins og Ak-
ureyringar höfðu verið i hálfleikn-
um á undan. Einar Helgason mark-
vörður Akureyrar er við hinu
versta búinn eins og sjá má af til-
burðum hans. *
í dag
Melavöllur kl. 20: Holbæk IF
— Valur í 3. flokki og úrval úr
KR — Þrótti (5 Þróttarar og 6
KR-ingar) í 2. flokki.
Valsmenn eru Reykjavíkurmeist-
arar i ár í 3. flokki og má búast
við góðri mótspymu og jafnvel
sigri. 1 2. flokki ætti íslenzka lið-
ið líka að vera gott, því í liðinu
eru nokkrir íslandsmeistarar Þrótt
ar og KR-ingar? sem nú eiga góðu
liði á að skipa.
Grímuklæddir
í knattspyrnu
Myndin er frá keppni í ír-
landi, sem kölluð er Battisti
Cup og er þar kept um verð-
laun, sem eru 200 pund fyrir
sigur, 100 pund fyrir 2. sæti og
50 pund fyrir þriðja sætið.
Keppnin er að mörgu Ieyti
óvenjuleg eins og myndin
reyndar gefur Ijósl. til kynna.
Liðið Emeralds frá Skotlandi er
á myndinni og í Ieik þessum
vann Iiðið Belfast Swift 4:2 og
lék með grímur fyrir andlitinu
og gerviskegg, og markvörður-
inn var jafnvel málaður bik-
svartur svo að enginn bæri
kennsl á hann.
Vakti þetta að vonum feiki-
Framh. á bls. 5.
Keppni Bandaríkjamanna og
Rússa um síðustu helgi heppnaðist
með eindæmum vel, hvort heldur
er talið fjárhagslega eða með til-
liti til afreka og samskipta íþrótta-
fólksins. AUt hjálpaðist að til að
gcra þessa keppni glæsilega og
skemmtilega, jafnt fyrir íþrótta-
fólkið sem Iiina geysimörgu á-
horfendur, sem mynduðu fallegan
krans utan um afreksfólkið.
Af hinum stórkostlegu afrekum
sem voru unnin þarna á „litlu
ólympíuleikunum“ bar langhæst
nýtt heimsmet Valerij Brumels,
sem stökk 2.26 metra óg var ekki
fjarri 2.28,6 metrum. Brumel gerði
ekki mikið veður af þessu afreki
OLGA OG HAROLD CONOLLY, — Gleði eftir að Haroid kastaði
sleggjunni 70.67 m. í landskeppni USA og Rússlands. Olga Con-
olly (áður Fikatova) varð önnur í kringlukastinu og kom í veg
fyrir tvöfaldan rússneskan sigur.
sínu og sagði aðeins: „Það bjugg-
ust allir við meti af mér, og þess
vegna setti ég met. Það eina sem
leiðinlegt var, að ég skyldi ekki
stökkva 2.28,6 metra, því ég var f
stórkostlegu „formi“. Brumel neit-
aði algjörlega að horfa á keppi-
nauta sína, er þeir stukku. „Það
geri ég aldrei,“ sagði þessi hæg-
láti Rússi, „það er mfn aðferð til
að komast hjá því að verða tauga-
óstyrkur“. Eftir verðlaunaafhend-
inguna þakkaði Brumel fyrir sig á
ensku, enda kom á daginn að í
marga mánuði fyrir keppnina hafði
hann lært málið. Kom þetta á-
horfendum skemmtilega á óvart,
þvf yfirleitt eru Rússar ekki mikið
fyrir að tala nema sitt eigið móð-
urmál, eins og alkunna er.
Conollyhjónin voru hetjur fyrri
dagsins. Harold Conolly setti
heimsmet í sleggjukasti, bætti eig-
ið heimsmet um 34 sm., f 70.67
metra, en kona hans Olga kastaði;
kringlunni lengra en við hafði ver-
ið búizt og kom hún óvænt í veg
fyrir tvöfaldan rússneskan sigur.
Annars var árangur í öllum
greinum stórkostlegur eins og
greint hefur verið frá að undan-
förnu og hvergi var dauður punkt-
ur.
Bandaríkjamenn unnu eins og
í fyrri keppnum og var stigatalan
128 gegn 107, en í kvennagrein-
um unnu Rússar með 66:41.
Lauk landskcppninni í mjög
friðsanilr ,j og skemmtilegu and-
rúmslofti, og íþróttafólkið „mars-
jeraði“ hring á hinum geysistóra
iþróttavelli Standford-háskólans
og hélt hvort um annað „arm í
arm“. Hástökkvarinn John Thomn
fyrrum heimsmethafi, sem var ní
síðastur með 2.08, var fánaberi
Bandaríkjanna en hinn vörpulegi
Victor 'Tiibulenko, sleggjukastari,
i bar rússncska fánann.