Vísir - 11.08.1962, Page 9
Laugardagur 11. ágúst 1962.
VISIR
9
>«4.W
Gengið á Helgafell
* blindakstur í ryki
Um hverja helgi hafa bæjar-
búar þyrpst út úr bænum til að
fá sér frískt Ioft og sleikja sól-
skinið. Má heita að á laugardög-
um og sunnudögum sé bílaröðin
samfelld, enda bílaeign orðin
nokkuð almenn. En hætt er við
að þessir helgartúrar verði ekki
slíkir sólskinstúrar, eins og tii
er ætlast.
Sá sem þessar línur skrifar er
einn þeirra, sem ekið hefir 6 — 8
tíma túra um hverja helgi og
ætlað fyrirfram að koma sólbak-
aður og endurnærður til baka,
en verið í staðinn rykmettur og
kverkaþurr. Síðasti Þingvalla-
túrinn var nú nánast blindakst-
ur, því að rykmökkurinn var
samfelldur áustur og hringinn,
en ég fór Hellisheiðina heim,
og varð ég þeirri stund fegn-
astur að komast heim og fá
mér bað, og þvo af mér skítinn.
ic BETRI LEIÐIR ERU TIL
Um síðustu helgi venti ég
mínu kvæði í kross, og fékk
mér eftirminnilega frískt loft...
Leiðin lá í gegnum Hafnarfjörð
og til Kaldársels, en samkvæmt
garpalli vasabók er leiðin talin
vera 7 kílómetrar frá Hefnar-
firði. Skammt frá Kaldárseli var
fararskjótinn skilinn eftir en
lagt Iand undir fót í áttina til
Helgafells, hins heilaga fjalls
Ingófs Arnarsonar og ættmenna
hans.
Kaldárselsleiðin virðist ekki
vera ein af þeim fjölförnu. Að-
eins tveimur bílum mættum við
og fjórum strákum í hjólatúr.
Heldur er landið hrjóstugt í
kringum Helgafell, en maður
fær að’njóta hinnar fullkomnu
fjallakyrrðar. Aðeins jarmið í
fénu rýfur kyrrðina, um leið og
það hleypur burt frá hinum
óboðnu gestum. Þrír stórir hrút-
ar vöktu athygli okkar, hvítur,
grár og svartur. Sá hvíti fnæsir
og stappar, og reigir sig framan
í okkur ferðalangana, og út úr
svip hans mátti lesa lítilsvirðing
una, og það var eins og hann
vildi segja: „Hvað eruð þið að
flækjast hingað?“
★ iy2 KLUKKUSTUND
FRÁ KALDÁRSELI
Helgafell er móbergsfell 340
metra á hæð yfir sjávarmál,
gróðursnautt mjög, aðeins gras-
toppar á stangli, en uppblásturs-
börð hér og þar f kringum fell-
ið benda til þess, að einhvern
tíma hafi verið um meiri gróð-
ur að ræða. Brattinn er hæfileg-
ur fyrir þá, sem ekki eru vanir
fjallagarpar, ef farið er upp þá
Það er sérstök tilfinning, sem
grípur mann, þegar staðið er
á fjallstindi og horft út f víð-
áttuna. Það er stórfenglegra, en
orð fá lýst, hinn stóri sjón-
deildarhringur og hin mikla
kyrrð.
★ VÍSITKORT
FERÐALANGA
Móbergshellurnar í kringum
vörðuna bera þess merki, að
á undanförnum árum hafa ýms-
ir lagt leið sína hingað, því að
þétt er af mannanöfnum, sem
auðvelt er að grópa í meyrt mó-
bergið. Meira að segja hefir
einn f jallgöngumaðurinn Gunnar
Hjaltalín borið I stafina með
hvítri málningu, svo að það fari
ekki á milli mála, að hann hafi
verið hér staddur 1961.
Við fylgjum venjunni og gróp
um nöfn okkar, þar sem við
finnum „óskrifaðan" blett stutt
frá vörðunni.
Loks er tindinum náð.
fyrír sunnan HafnarfjörB
eins og hann vildi
segja: „Hvað eruð þið að
flækjast hingað?"
hlið, sem að austri snýr. Gangan
frá Kaldárseli og upp að vörðu
tók okkur aðeins einn og hálf-
an tíma, en mundi vafalaust
ekki vera nema klukkutíma gang
ur fyrir þá hraðgengari, en' við
vorum aðeins í matarlystaraukn-
ingargöngu, svo að ekkert lá á.
tV dásamlegt Utsýni
Af tindi Helgafells er dásam
legt útsýni, og maður furðar sig
á, að það skuli ekki vera meira
áberandi frá Reykjavík séð, þeg-
ar litið er til Reykjavíkur, sem
manni virðist svo óhemjustór.
Gamli reiðvegurinn til Selvogs
liggur eins og svört hlykkjótt
rák I gegnum hraunið, þar sem
mosinn hefir spænst undan hóf-
um hestanna. Glæsilegur fjalla-
hringur blasir við og maður furð
ar sig á, að manni skildi ekki
detta I hug að labba þennan
spotta fyrir löngu síðan. Til
austurs gnæfir Vífilsfell, og mað
ur fer strax að bollaleggja, að
bregða sér þangað um næstu
helgi. Nær sést hið útbrunna
eldfjall Sveifluháls. Trölladyngja
og Keilir.
Þess höfðum við heyrt getið,
að I sunnanverðu Helgafelli
væri stór gatklettur, svo að við
héldum I þá áttina niður af fell-
inu..Gatið fundum við ekki fyrr
en eftir nokkra leit, þó að hér
reyndist ekki vera um neina smá
smíði að ræða, og urðum við
ferðalangamir ekki fyrir von-
brigðum með þessa haganlegu
náttúrusmíð. Við vorum sam-
mála um að gatklettur þessi
myndi vera vinsæll áningarstað-
ur, ef hann væri nær þjóðbraut.
★ GÓÐ TJALDSTÆÐI
Það þarf ekki að taka það
fram, að úr slíkri ferð kemur
maður heim endurnærður og
matlystugur, enda ferðin hæfi-
lega löng til þess að óvönum of-
bjóði ekki, en samt nægil. löng
til þess, að maður nýtur þeirrar
fróunar og hvíldar, sem kyrrð Is
lenzkrar náttúm hefir upp á að
bjóða. Þú ættir annars að reyna
um helgina. Ef þú vilt vera
lengur I ferðinni en einn dag,
þá eru góð tjaldstæði I Helga-
dal, friðsælum stað, rétt fyrir
ofan Kaldársel.
Hann var staddur hér 1961.
Helgafell er móbergsfjall 340 m yfir sjávarmál
í sunnanverðu Helgafelli ér stór gatklettur.