Tölvumál - 01.12.1991, Blaðsíða 4
Desember 1991
Frá formanni
Halldór Kristjánsson, formaður SÍ
Við áramót
Árið 1991 hefur að mörgu leyti
verið fslensku tölvufólki gjöfult.
Samdráttur eftir síðustu kreppu
stjórnmálamanna var að mestu
úr sögunni og virðist sem flest
fyrirtæki f greininni hafi átt gott
ár.
Nú eru hins vegar blikur á lofti
vegna næsta árs og hefur
svartsýnistal stjórnmálamanna og
atvinnurekenda ekki farið fram
hjá neinum. Ekki er dregið í efa
að erfíðleikar eru framundan en
sffelld umfjöllun um þá dregur
mátt úr mönnum og eykur enn á
vandann.
Allt bendir því til þess að enn
komi samdráttarskeið í
tölvuþjónustu á sama tíma og
birtir til hjá starfsbræðrum okkar
og -systrum í Evrópu og
Bandaríkjunum, en þar hefur
verið samdráttarskeið um nokkra
hríð.
Þetta ár hefur einnig verið gott
fyrir félagið okkar. Ráð-
stefnusókn hefur verið ágæt og
mikið verk hefur verið unnið í
útgáfumálum og kynningu á
siðamálum og lögum og reglum
sem gilda um tölvuviðskipti.
Sérstaklega ánægjuleg er sú
breyting sem orðin er á Tölvu-
málum í efnisskipun og -vali.
Aftur og aftur heyri ég frá
félagsmönnum að þeir lesi
tímaritið okkar spjaldanna á milli
og telji sig ekki geta án þess
verið.
Stjórn Skýrslutæknifélagsins
hefur lengi lagt áherslu á að þetta
andlit okkar út á við þurfi að
endurspegla það besta sem er að
gerast á tölvusviði hér á landi
sem annars staðar. Hefur að
mfnu mati vel tekist til um það.
Er það ekki síst að þakka styrkri
stjómun blaðsins sem er í höndum
ritnefndarmanna.
Nú eru framundan breytingar á
útliti Tölvumála sem framvegis
verða prentuð í prentsmiðju á
vandaðri pappír en áður. Þó hér
sé fyrst og fremst um
útlitsbreytingu að ræða þá er
ekki að efa að hún eykur gildi
tímaritsins okkar, ekki síst sem
auglýsingamiðils.
Á næstunni mun stjórn móta
stefnuna fyrir næsta ár. Margt
bendir til þess að ástæða sé til
þess að félagið okkar verði virkara
í umQöllun um tölvumál á
opinberum vettvangi. Má þar
sérstaklega nefna til laga- og
reglugerðarsmíð sem beinlínis
hefur áhrif á starf þeirra sem við
tölvur vinna. Þetta verður haft í
huga þegar stefhan verður mótuð.
ET-dagur SÍ
Árlegur ET-dagur SÍ var haldinn
6. desember síðastliðinn. Var
hann að venju fjölsóttur og komu
160 manns. Góður rómur var
gerður að þeim erindum sem þar
voru flutt en ávallt hefur verið
lögð áhersla á að kynna nýja og
áhugaverða hluti á þessari
ráðstefnu.
Lesendur Tölvumála munu á
næstunni njóta ávaxtanna af
þessari ráðstefnu í formi greina
sem munu birtast í blaðinu.
Jólakveðjur frá SÍ
Ég vil fyrir hönd stjórnar og
framkvæmdastjóra óska öllum
félagsmönnum SÍ, fjölskyldum
þeirra og venslamönnum
gleðilegra jóla og farsældar á
nýju ári. Þá vil ég þakka
stjórnarmönnum samstarfið á
liðnu ári svo og félagsmönnum
SÍ öllum.
Hittumst heil á nýju ári - í Guðs
friði!
4 - Tölvumál