Tölvumál


Tölvumál - 01.12.1991, Page 9

Tölvumál - 01.12.1991, Page 9
Desember 1991 staðaltillögu á frekari rekspöl. Þennan fund sótti meðal annars 6 manna sendinefnd frá USA, og voru 3 af helstu talsmönnum Unicode á meðal þeirra. Sem betur fer reyndist sá jákvæði samvinnuandi, sem kviknað hafði í maí, enn svífa yfir vötnum. WG2 samþykkti formlega allar málamiðlunartillögurnar frá San Francisco og allmargar í viðbót. Stefnt er að því að samþykktur verði endanlegur texti á fundi WG2 í París f október, verði síðan sendur út til atkvæða- greiðslu í desember með þriggja mánaða svarfresti. Flestar ákvarðanir, sem teknar voru í Genf voru nokkuð tækni- legar og ekki ástæðu til að nefna þær allar. Eftirfarandi er þó áhugavert: 7) Þjöppunarform 5 verður ekki notað. Fyrir tilteknar gagna- samskiptaaðferðir, til dæmis SMTP, er skilgreind sérstök umkódunaraðferð, ATM (A transformation method), sem lýst verður í viðauka við 10646. Samkvæmt henni verður fyrsta lfnan í BMP umkóduð yfir á eitt bæti (sama og f 8859-1). Önnur rittákn í BMP, sem ekki eru myndtákn verða umkóduð yfir á tveggja bseta kóda og myndtáknin á þriggja bæta kóda. Þegar um rittákn er að ræða verður ekki að finna neina kóda úr C0 eða C1 í stafasettinu eftir umkódun. [Höfundur sleppir töluliðum 8 - 10 af ásettu ráði. - ritstj.] 11) Til að setja fram texta, sem lesa skal í báðar áttir eða frá Af netinu Björn Þór Jónsson, tölvunarfræðingur Þótt tölvuíyrirtæki á íslandi lamist nálega yfir sumartímann, vegna leyfa starfsmanna, er ekkert lát á sendingum á ráðstefnur á unix- netinu. Þar sem það nær um allan hnöttinn senda menn póst "... jafnt sumar sem vetur, jafnt nótt sem dag", eins og segir í langömmuvísu. Hér á eftir fylgja nokkrir nýlegir molar, í léttari kantinum, af ráðstefnunni comp.risks. Sænskum kosninga- úrslitum seinkaði vegna tölvuklúðurs Martin Minov sendi útdrátt úr grein sem birtist í Expressen, sænsku síðdegisblaði, á mánudegi eftir sfðustu kosningar f Svíþjóð. Þar segir að Riksskatteverket (RSV) hafi ekki getað lokið talningu vegna tölvuvandræða, og þegar blaðið fór f prentun hafi ekki legið fyrir nákvæmar tölur um atkvæðamagn. Hins vegar hafi munurinn verið svo lítill að fjöldi þingsæta hafi legið ljós fyrir. Ástæðan er sögð hafa verið að RSV var að taka í notkun nýtt tölvukerfi. Hugmyndin á bak við tölvukerfið er að þjóna tjölmiðlum yfir net, svo auð- veldara verði fyrir þá að vinna úr úrslitunum. í framtíðinni mun tölvukerfið fækka starfsfólki og koma úrslitunum frá sér fyrr. hægri til vinstri, til dæmis í arabísku eru notuð tvö mismunandi kerfi. Annað var samið af nefnd á vegum ECMA, hitt er hluti af Unicode. Samkvæmt tillögu ECMA er táknið "(" - 02/08 í ASCII - ávallt látið tákna vinstri sviga, án tillits til þess í hvora áttina er skrifað. í hinu kerfmu er það látið tákna svigi opnast. í DIS 10646M verður unnt að nota hvora túlkunina sem er, og verður valið tengt því stafamengi sem í notkun er. Ekki er enn lokið því verki að raða niður táknum í BMP, en búast má við að mjög verði stuðst við Unicode í því verki. Lars-Henrik Erikson bætir við að það sem sé enn verra við reiknimistök er að fólk trú niðurstöðum tölva í blindni. Kvöldið eftir áðurnefndar kosningar hafði sænska sjón- varpið að venju kosninga- sjónvarp, þar sem spár voru birtar. Eitt sinn birtust niðurstöður frá Nacka, lítilli borg rétt utan við Stokkhólm, sem voru alveg út í hött. Skýrendurnir lögðu mikið á sig við að skýra hvemig einstök svæði gætu haft atkvæðadreifmgu sem væri mjög ólfk heildar- dreifíngunni. Einnig veltu þeir fyrir sér hvers vegna Nacka- búar kysu svona undarlega. 9 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.