Tölvumál - 01.12.1991, Síða 10
Desember 1991
Enginn þeirra tók eftir að
heildaratkvasðamagn sem flokk-
unum var úthlutað var 140%.
Kannast einhver við tölvuklúður
í kosningasjónvarpi á íslandi?
Tölva leysir skákdeilu
25 ára gamall nemi í
framhaldsnámi, Lewis Stiller,
hefur leyst aldagamla skákþraut,
með því að leiða tölvu á áður
ókunnar slóðir.
Þrautin snerist um hvernig
endatafl með kóngi, hrók og
biskup gegn kóngi og tveimur
riddurum fer. Hingað til hefur
þetta verið talin jafnteflisstaða,
en með því að framkvæma
einhverja víðtækustu tölvuleit
hingað til, komst Stiller að því
að hrókur og biskup merja sigur
í 223 leikjum.
Leitina framkvæmdi Stiller á
samhliða tölvu í Los Alamos
rannsóknarstofunum í Nýju
Mexíkó. Tölvan hefur 65536
örgjörva í stað eins. Stiller fann
leið til að komast hjá því að kæfa
örgjörvana með samskiptum,
meðan þeir vinna í forriti hans,
sem er um 10 þúsund línur.
Tölvan leysti þrautina á fimm
klukkustundum, eftir að hafa
skoðað 100 milljarðaleikja, með
bakgreiningu (retrograde
analysis) með því að vinna sig
aftur á bak frá vinningsstöðu.
Forritið leysir fimm manna
endatafl á u.þ.b. mínútu, og sex
manna endatafl á Qórum til sex
klukkustundum, segir Stiller, sem
segir skákhæfileika sína hafa
rýrnað síðan hann snéri sér að
tölvunarfræði.
Kenneth Thompson hjá Bell
rannsóknarstofunum var fyrstur
til að nota bakgreiningu til að
leysa endatöfl, og hann komst að
því að kóngur og drottning sigra
kóng með tveimur biskupum.
Það forrit tók margar vikur í að
leysa fimm manna endatafl á
mun hægvirkari tölvu.
Stiller segir niðurstöðu
Thompsons hafa orðið til þess að
Alþjóðaskáksambandið geri nú
undantekningar frá þeirri
meginreglu að skák teljist jafiitefli
hafi enginn maður verið drepinn
og ekkert peð hreyft í 50 leiki.
Stiller segir niðurstöðu sína litlu
skipta fyrir skákmenn, því staðan
sé mjög sjaldgæf.
Tölvuskemmdar-
verkamaður
Michael John Lauffenberger,
fyrrum forritari hjá General
Dynamics, hefur lýst sig sekan
umtölvuspellvirki. Hannætlaði
sér að hækka í launum með því
að búa til vandamál sem hann
einn gæti leyst. Hann skrifaði
forrit sem átti að eyðileggja
gagnagrunn yfir hluti í Atlas
eldflaugar. Hann sagði svo upp
störíúm, í þeirri von að fyrirtækið
endurréði hann sem hálaunaðan
ráðgjafa, þegar skemmdirnar
kæmu í Ijós. En annar starfs-
maður General Dynamics rakst á
forritið, sem var aftengt.
Lauffenberger á yfir höfði sér
allt að árs fangelsi, og 100.000
dollara sekt.
Það sem mesta athygli vekur í þessum kosningum, er fylgisaukning
Þjóðarflokksins, sem fékk alls um 140% greiddra atkvæða.
10 - Tölvumál