Tölvumál - 01.12.1991, Síða 12
Desember 1991
gerðar hafa verið til að búa til
aiþjóðamál, sem lifað hefur af
allar lægðir. Hugmyndaffæði dr.
Zamenhofs, höfundar málsins,
svipar mjög til nokkurra kenninga
Baha’í trúarinnar, yngstu trúar-
bragða mannkyns, sem greinar-
höfundur aðhyllist, og ganga út
á að útrýma styrjöldum og stofna
til bræðralags meðal þjóða. Enda
þótt grunntónn kenninga
Baha’u’llah sé eining mannkyns,
eru Qölmargar aðrar kenningar í
trúnni, og er alheimslegt hjálpar-
tungumál ein þeirra. Ætla má
vissulega að það muni koma að
því, að tekin verði upp alheimsleg
tunga, er allar þjóðir geti sætt sig
við sem hjálpartungumál, auk
allra þjóðtungnanna.
Gera má ráð fyrir að fyrrgreint
þýðingarkerfi DLT muni koma
mannkyninu að ómetanlegu gagni
við að tengja saman hina ólíku
heimshluta. "Öll tungumál eru
hlutgeng í DLT-kerfið.... Einn
helsti kostur þess að nota millimál
er sá að fyrir hverja þjóðtungu
þarf aðeins að sinna þýðingu af
henni á millimálið og af
millimálinu á þjóðtunguna.....
Annar mikill kostur sem fylgir
því að nota mannamál eins og
esperanto sem millimál er sá
mikli sparnaður sem næst með
því að geta Ieyst flest merkingar-
fræðileg vandamál sameiginlega
á millimálinu í stað þess að þurfa
að fást við þau á hverri þjóðtungu
fyrir sig. Og í þriðja lagi má
nefna þá kosti esperantos umfram
önnur tungumál að auk þess að
vera einkar rökrænt mál með
einfalda málfræði án undan-
tekninga þá gætir mun minna
margræðni í esperanto en í öðrum
tungumálum." 2)
Má ætla að þetta þýðingarkerfi,
sem þýðir í raun, að mannkynið
er að hafa samskipti sín á milli á
einu tungumáli, gæti orðið fyrsti
vísirinn að því sem Baha’u’llah
talar um, að "Jörðin er eitt land
og mannkynið íbúar þess”. 3)
Tilvitnanir:
1) Orð og tunga 2, Stefán Briem:
Vélrænar tungumálaþýðingar, bls.
46.
2) Orð og tunga 2, Stefán Briem:
Vélrænar tungumálaþýðingar bls 45.
3) Úr ritningum Baha’í trúarinnar.
4) Dæmi um setningartré: Orð og
tunga 2, Stefán Briem: Vélrænar
tungumálaþýðingar, bls. 47.
Heimildarrit: Stefán Briem. 1990.
Vélrænar tungumála-þýðingar. Oið
og tunga 2. Ritstjóri Jón Hilmar
Jónsson. Orðabók Háskólans.
Reykjavík.
Við hugsum okkur að þýða eigi hendingu eftir Bólu-Hjálmar yfir
á esperanto:
er
frjósöm orða
Slíkt setningartré sýnir vensl orðanna ísetningunni. Venslin eru
af mismunandi venslagerðum og bera nöfn eftir því.
Samkvæmt samanburðarreglum frá verkþætti II 4) og með
stuðningi orðaþekkingarbanka yrði fslenska setningartréð yfirfært
í samsvarandi setningartré á esperanto:
estas
la islanda fekunda de
PARG
vortoj
Að lokum yrði tréð rakið og búin til esperantosetningin:
La islanda lingvo estas fekunda patrino de vortoj
sem telst þá vera þýðing á hendingu Bólu-Hjálmars.
1 2 - Tölvumál