Tölvumál - 01.12.1991, Page 17
Desember 1991
Gagnanetið er því eingöngu til
að tengja saman tölvur.
Tengingar við gagnanet í öðrum
löndum eru einnig á símalínum
og þau kerfi síðan tengd til annarra
landa. Vegna stöðlunar þá ganga
samskiptin á milli landa snurðu-
laust fyrir sig og kerfin mynda
saman alheimsnet þar sem unnt
er að koma gögnum heimshorna
á milli. ísland er núna tengt tii
30 landa.
Tengingar inn á
Gagnanetið
Myad 3. Tenging við pakkald
Staðallinn X.25
Staðall þessi er fyrst og fremst
ætlaður stærri tölvum og á þeim
samböndum þar sem
flutningshraði þarf að vera mikill.
X.25 línur eru rásaskiptar þannig
að margir notendur geta verið
tengdir í senn. X.25 sambönd
eru eingöngu á fasttengdum línum
og mesti hraði er 64.000 bit/sek.
Staðlarnir X.3/X.28/
X.29
í X.25 staðlinum er gert ráð fyrir
fullkomnari samskiptabúnaði en
t.d. notendur einmenningstölva
hafa yfir að ráða. Til að koma til
móts við notendur þeirra þá er
boðið upp á aðrar tengingar inn
á Gagnanetið. Sú þjónusta
byggir á X.3, X.28 og X.29
stöðlum. í þeim er lýst hvernig
einföldum sendingum frá
hnappaborði tölvu, staf fyrir staf,
er breytt í pakka og svo öfugt.
Tæki það sem sér um breytinguna
kallast pakkald eða PAD.
Pakkald hefúr að auki ýmisskonar
eiginleika sem notendur geta nýtt
sér og er þeim stjórnað með
fœribreytum. Aðgangur að PAD
getur ýmist verið á fasttengdri
línu eða í gegnum talsímann f
síma 006.
Staðallinn X.121
Fyrmefndir staðlar segja til um
hvernig notendur tengjast við
Gagnanetið en hvernig komast
gögn frá A til B? Þá kemur til
sögunnar staðallinn X.121 en
hann segir til um vistfang eða
netnúmer notandans. Þar sem
um alheimskerfi er að rasða þá
hefur hvert land sitt einkennis-
númer og hver notandi númer til
viðbóta við það. Þetta kannast
allir við úr talsímanum en gildir
einnig um gagnanet. Númerin
hér á landi heíjast öll á 2740 og
8 eða 10 tölur til viðbótar við
það. Þegar senda á gögn þá
verður að nota X.121 númer
hvort sem sent er
til SúgandaQarðar
eðaSidney. Sásem
vill tengjast annarri
tölvu tengdri
gagnaneti verður
því að þekkja þetta
númer fyrirfram.
Ólíkt símaskrám þá
er hvergi í heimin-
um til nein gagna-
netsnúmeraskrá, og
mun aldrei verða
en það eru ör-
yggiskröfur sem
vaida því.
17 - Tölvumál