Tölvumál - 01.12.1991, Page 19
Desember 1991
Tími uppreisnar og
frelsis - einkatölvur
Með tilkomu einkatölva upp úr
1976 fara einstaklingar að fá
aðgang að reikniafli sem þeir
þurfa ekki að deila með öðrum.
Tími uppreisnar og frelsis fer í
hönd. Eftirþvísemeinkatölvum
fjölgar fer gildi miðtölvanna
minnkandi og mikilvægi einka-
tölva eykst að sama skapi. Til
verður markaður fyrir alls kyns
hugbúnað sem gerir einstak-
lingnum kleift að auka gæði vinnu
sinnar. Með einkatölvunum eykst
útbreiðsla tölvuþekkingar,
aðgangur að tölvum verður á
flestra færi, og ný not fyrir tölvur
koma fram. En jafnframt eykst
öreiðan í tölvumálum því í stað
hins stýrða umhverfis mið-
tölvunnar þar sem tölvudeildin
sá um að deila og drottna er nú
komið frelsi til að gera hvað sem
er án miðstýringar. Þetta nýfengna
frelsi hefur þó ýmsa veigamikla
annmarka f för með sér.
Upplýsingar fjölfaldast,
jaðartæki kostamikiðog öryggi
gagna minnkar vegna dreifingar
þeirra. Skortur á samskiptum er
einnig til trafala og flutningur
þeirra oftar en ekki með "sneaker-
net", eða skóneti, á milli tölva!
Einmenningstölvunet
koma fram
Skipulags var því þörf og upp úr
1985 fara fyrstu einmennings-
tölvunetin að birtast, frumstæð í
fyrstu en smám saman komu
kostir þeirra í ljós. Þau sameina
frelsi einstaklinganna til athafna
en jafnframt eru helstu kostir
miðlægra kerfa s.s. sam-
eiginlegar gagnageymslur, affitun
og samnýting jaðartækja og
sameiginleg þjónusta til staðar.
Leið ekki á löngu þar til
einmenningstölvunet voru farin
að ógna heíðbundnum markaði
miðtölva og er nú svo komið að
flestir miðtölvuframleiðendur
hafa orðið að horfast í augu við
mikinn samdrátt, hagnaðar-
minnkun og verðlækkanir til þess
að halda einhverri markaðshlut-
deild. Flestir þeirra leggja nú
mikla áherslu á notkun miðtölva
sem miðlara í netkerfum í stað
öflugra einkatölva sem gegnt hafa
þvf hlutverki.
Erum við komin íhring?
Samkomulag virðist þar í augsýn
með tilkomu biðlara/miðlara
vinnslu í netkerfum er þar er
vinnslunni skipt á milli miðlægu
tölvunnar og vinnustöðvarinnar
og kostir beggja þannig nýttir.
Öflug gagnavinnsla í miðlægu
tölvunni og yfirburða lfamsetning
gagn-anna á vinnustöðinni. Með
nokkurri kaldhæðni má fullyrða
að við séum að sumu Ieyti komin
í hring þegar vinnslan er á ný
orðin miðlæg, nokkuð sem upp-
reisnarmenn hafði ekki látið sig
dreyma um þegar einmennings-
tölvurnar losuðu þá undan helsi
miðlægu tölvukerfanna.
Frekari þróun netkerfa
Þróun netkerfa er langt í frá lok-
ið og unnt er að sjá fyrir margt
sem mun enn auka gildi þeirra.
Hér verður stiklað á nokkrum
atriðum sem þegar má sjá fyrir
eða líklegt er að muni gerast.
Háhraðanet
Eins og komið var að í upphafi
hafa samskipti um lengri vega-
lengdir alltaf liðið fyrir annað
tveggja, lágan flutningshraða eða
háan kostnað sem samfara er
auknum flutningshraða. Allt fram
á þennan dag hafa menn þvf af
þessum sökum hikað við að tengja
saman háhraða einmennings-
tölvunet nema til lágmarks-
þjónustu. Hafa fyrirtæki sem
eru dreifð um stærra landsvæði
því orðið að reka nokkur tölvunet
með afar takmörkuðum samgangi.
Nú er ný öld að hefjast með til-
komu ódýrs aðgangs að háhraða
samböndum milli landshluta og
innanþeirra. Getaþáaðilarsem
eiga tölvunet dreifð um landið
tengt þau saman í eina heild með
fullri þjónustu eins og um eitt net
sé að ræða. Það er ljóst að áfram-
hald verður á þessari þróun og
við munum sjá enn hraðari sam-
skipti á milli neta en nú eru til.
Opin kerfi - meira um
orð en efndir
Við þessi auknu samskipti á milli
tölva og innan neta heftir komið
enn betur í ljós hversu mikið afl
og orka fer í að breyta á milli
hinna ólíku samskiptastaðla svo
gögn og upplýsingar komi
óbrengluð til skila og samskipti
séu yfirleitt möguleg. Þörf fyrir
samræmingu eða opin kerfi hefúr
þvf aldrei verið brýnni en nú en
því miður er meiraum orð þar en
efndir. Ennumsinnverðurþetta
þróuninni fjötur um fót.
Tölvan er netið
Framleiðendur hafa kynnt hug-
myndir að og eru að undirbúa
byltingu í tölvuhögun sem líklegt
er að muni gera mikilvægi
háhraðaneta enn meira en nú er.
Þar á ég við að á næstunni mun
hugbúnaður geta leitað að lausu
reikniafli á netinu og notað það
þegar þörf er á meira afli en ein
vinnustöð ræður yfir. Reikniaflið
getur verið á einni eða fleiri mið-
lægum tölvum, einni eða fleiri
vinnustöðvum o.s.frv. Netið
verður því tölvan og ljóst að þar
verður aðgangur að afli sem er
margfalt það sem nú þekkist í
stórum tölvumiðstöðvum fyrir
brot af þeim kostnaði sem nú
þekkist.
19- Tölvumál