Tölvumál - 01.12.1991, Síða 22
Desember 1991
Kröfur ríkisstofnana um notendaskil
Jóhann Gunnarsson, fjármálaráðuneyti
Útdráttur úr erindi frá ráðstefim um stöðluð notendaskil að Hótel Loftleiðum 19. september 1991
Hvaöa kröfur gerir hið opinbera
til notendaskila? Gerir það yfir-
leitt nokkrar kröfur?
Ég ætla fyrst að lýsa minni eigin
skoðun á þvf hvaða kröfur beri
að gera og athuga svo lítillega
hvað fínnst af leiðbeiningum til
að fara eftir.
Sjálfsagt er að gera þá kröfu að
notendaskilséuáíslensku. Kerfí
sem ríkisstofnanir nota ættu eftir
föngum að vera samræmd hvað
varðar útlit, viðmót og tilætluð
viðbrögð notandans. Þetta er
bæði til þæginda og framleiðni-
auka, en dregur þar að auki úr
þörfmni fyrir þjálfun starfsfólks
ef það flytur sig á milli stofnana.
Tölvukerfi rfkisstofnana ættu að
vera opin eftir því sem við verður
komið. Til upprifjunar nefni ég
lýsingarorðin þrjú, sem einkenna
opin kerfi: þau skulu vera
flytjanleg, samtengjanleg og
stigfrjáls.
Þau sérstöku atriði, sem staðla
ber eru helst þessi: hnappaborð
og notkun aðgerðarlykla; skjáir
að því er varðar upplausn,
myndtíðni, útgeislun og notkun
lita; notendaforrit og stýrikerfi
hvað varðar almennar, algengar
aðgerðir, skjámyndir og fleira.
Á þessu sviði verður sjálfsagt
erfíðast að ná samkomulagi um
hvað sé best.
Hvar er þá að leita þeirra staðla,
reglna og opinberra fyrirmæla,
sem orðið gætu að leiðarljósi, til
dæmis fyrir þann sem semja þarf
útboðslýsingu um tölvukerfi?
Ráðgjafanefnd um upplýsinga-
og tölvumál (RUT) hefur ritað
nokkrum erlendum hugbúnaðar-
fyrirtækjum bréf með eftirfarandi
texta:
"Það er yfirlýst stefna RUT-
nefhdar að mæla ekki með öðrum
notendaskilum eða meiri háttar
kerfum til nota hjá opinberum
stofnunum en þeim sem eru á
íslensku. Er þá átt við samskipti
við notandann, meðferð staf-
rófsins, þar innifalin bæði röðun
og pörun há- og lágstafa, og
handbækur."
Til er bókun, samþykkt af réttum
yfirvöldum í EFTA-löndum,
númer 14/1988, um ráðstafanir
til að ryðja burtu tæknilegum
viðskiptahindrunum. Þar segir
svo:
"EFTA-countries shall take the
necessary steps to ensure that
reference to international
standards, European standards
and European prestandards is
made in public procurement
orders relating to information
technology."
Með tilkomu evrópsks efna-
hagssvæðis má búast við að fastar
verði gengið eftir að samþykktir
af þessu tagi verði haldnar.
Ef betur er að gáð er reyndar til
allmikið af stöðlum, jafnvel
íslenskum, sem nota má og nota
ætti þegar svipað stendur á og
hérerrættum. Þeir eru að vísu
oft lítt þekktir og jafnvel erfitt að
fá búnað sem tekur tillit til þeirra.
Nokkur dæmi:
ÍST 125, ISO 8884, ISO DIS
9995 (staðlar um lyklaborð).
ÍST ISO 8859-1, ISO DIS
10646M, ENV 41503
(stafatöflur).
ÍST ISO 8879, ÍST EN 28879,
EN 29735 (form skjala, þ.á.m.
EDIFACT).
Lokaorð mín og ályktun af þessum
hugleiðingum eru að þörf sé fyrir
að skilgreinabetur hvers kreQast
skuli - velja vel færa leið í
gegnum frumskóginn - gera sér
grein fyrir því hvað skiptir máli
við íslenskar aðstæður. Þetta tel
ég vera meðal brýnustu verkefna
í stefnumótun á vegum hins
opinbera á nacstunni.
22 - Tölvumál