Tölvumál - 01.10.1992, Page 2

Tölvumál - 01.10.1992, Page 2
Höföabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000 NYJAR LEIÐIR MEÐ HEWLETT-PA CKARD Um þessar mundir búa stjórnendur íslenskra fyrirtækja við óvissu og óvenjumikið umrót. Mikilla breytinga má vænta á markaðsaðstæðum, samkeppni fer harðnandi, líftími vöru og þjónustu er styttri en áður og framlegðin minni. Við slíkar aðstæður er nauðsynlegt að geta treyst á fullkomið tölvukerfi frá aðila sem veitir trausta þjónustu - tölvukerfi sem er öruggt, ódýrt í rekstri og í takt við þá nýju tölvutækni sem byggð er á stöðlum. Með opnum kerfum frá Hewlett-Packard, stöðluðum kerfum, eru þér allir vegirfærir. • Hewlett-Packard hefur forystu á sviði opinna tölvukerfa sem byggð eru á Risc/Unix tækni. Slík kerfi eru örugg í rekstri og afköstin meiri en áður hefur þekkst. • Opnu kerfin frá HP eru mjög sveigjanleg. Þú getur til dæmis tengt nýtt HP kerfi við þann tölvubúnað sem fyrir er. Þannig geturðu nýtt þér nýjustu tækni í áföngum án þess að reksturinn raskist. • HP á Islandi hefur samstarf við mörg hugbúnaðarhús og leggur áherslu á markvissa ráðgjöf og trausta þjónustu sem miðast við þarfir viðskiptavina á hverjum tíma. Ertu sátt/ur við rekstur tölvudeildarinnar? Ertu ánægð/ur með afköst tölvudeildarinnar, hagkvæmnina og rekstaröryggið? Ertu sátt/ur við þann tíma sem það tekur að fá upplýsingar úr tölvukerfinu og kostnaðinn sem því fylgir? Hefurðu fundið framtíðarlausn hvað tölvumálin varðar? Lokaðu ekki augunum fyrir nýjum leiðum. Iiafðu samband við okkur og við veitum þérfúslega allar nauðsynlegar upplýsingar. Æ fleiri íslensk fyrirtæki hafa komist að þeirri niðurstöðu að hag þeirra sé best borgið með því að nýta sér þjónustu HP á Islandi hf. Við erum traustsins verð. Medal þeirrá sem hafa nýlega hafið viðskipti við HP á Islandi hf. eða endurnýjað búnað frá HP eru: Ríkisskattstjóri, Tölvumiðstöð Sparisjóðanna, Póst- og símamálastofnun, KEA-Kaupfélag Eyfirðinga Akureyri, Fiskmarkaður Suðurnesja, Daníel Olafsson heildverslun og Reiknistofa Háskóla Islands. HEWLETT PACKARD ------------Umboðið HPÁ ÍSLANDI H F LOKAÐU EKKIAUGUNUM FYRIR NÝJUM LEIDUM

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.