Tölvumál - 01.10.1992, Side 5
Október 1992
Frá formanni
Halldór Kristjánsson, formaöur SÍ
Að þessu sinni fjallar pistill
formanns eingöngu um eitt mál -
haustráðstefnu okkar sem haldin
var 24. september síðastliðinn.
Mikils misskilnings hefur gætt
um þessa ráðstefnu og því afar
mikilvægt að leiðréttingar konti
fram.
Opið bréf til
starfsmanna og
stjórnenda SKÝRR
Á hverju hausti, í byrjun sept-
ember, hefur Skýrslutæknifélagið
haldið vandaða ráðstefnu með
erlendum fyrirlesurum. Þegar
undirbúningur fyrir haust-
ráðstefnuna 1992 hófst, barst
stjórn til eyrna að tölvunar-
fræðinemar hyggðust halda
tölvusýningu sína í byrjun
september og var því ákveðið
að fresta haustráðstefnu okkar
til seinni hluta þess mánaðar.
Ráðstefna um
tölvumál ríkisins
M. a. vegna árekstra við sýn-
inguna var fallið frá því að halda
haustráðstefnuna með hefð-
bundnu sniði, þrátt fyrir nokkurn
undirbúning af okkar hálfu. Þess
í stað var ákveðið að halda
ráðstefnu um stefnu ríkisins í
tölvumálum, og skyldi fjallað um
málefnið bæði frá sjónarhóli
þeirra hópa sem selja ríkinu
þjónustu sína í tölvumálum og frá
sjónarhóli fulltrúa ríkisins.
Undirbúningsnefnd lagði til að
fenginn yrði tölvuseljandi,
ráðgjafi, hugbúnaðarhús, stór
tölvunotandi hjá ríkinu, fulltrúi
frá RUT nefndinni og fulltrúi
ríkisins til þess að halda erindi.
Ekki var talið að ástæða væri til
þess að fulltrúi SKÝRR héldi
erindi þar sem ekki var um að
ræða ráðstefnu um stefnu ríkisins
í málefnum SKÝRR, heldur
tölvustefnu ríkisins í víðara
samhengi. Þá hafa starfsmenn
SKÝRR fjallað um málefni
SKÝRR á fjölmörgum ráðstefn-
um okkar.
Eftir á að hyggja kann það að
hafa verið rangt mat að fá ekki
fulltrúa SKÝRR til þess að halda
erindi.
Ráðstefnan
upphaflega ákveðin
17. september
Ákveðið var að halda ráð-
stefnuna 17. septentber að Hótel
Holiday Inn og var búið að festa
ráðstefnusal. Leitað var til átta
aðila um erindi, með tiltölulega
stuttum fyrirvara. Tveir þeirra gátu
ekki haldið erindi þann 17. vegna
fjarveru og því var ákveðið að
frestaráðstefnunni um viku. Tveir
gáfu ekki kost á sér vegna anna.
Þetta var í upphafi septem-
bermánaðar.
Undirbúningsnefnd
og stjórn ókunnugt
um afmæli SKÝRR
Án þess að undirbúningsnefnd
eða stjórn vissi, hafði SKÝRR
ákveðið að halda uppá 40 ára
afmæli fyrirtækisins þennan sama
dag. Þegar fregnir af því bárust
var aðeins vika til stefnu og því
ekki hægt að breyta ráð-
stefnudegi. Fram á síðustu stundu
höfðum við einnig vonað að
Magnús Pétursson, ráðuneytis-
stjóri íFjármálaráðuneytinu, gæti
haldi erindi á ráðstefnunni, en
vegna anna við fjárlagagerð og
önnur verkefni gat ekki af því
orðið. Því barst tilkynningin um
ráðstefnuna seinna en ella hefði
verið.
Umfjöllun Stöðvar 2
gaf kolranga mynd af
ráðstefnunni
Að venju var fjölmiðlum send
fréttatilkynning um ráðstefnuna,
en ekki var búist við að þeir
sýndu þessari ráðstefnu áhuga,
fremuren venjulega. Stöð 2 sendi
þó fréttamann á vettvang og tók
hann viðtal við tvo fyrirlesara,
Skúla Eggert Þórðarson, vara-
ríkisskattstjóra, og mig, en ég var
ekki áþessari ráðstefnu í hlutverki
formanns SÍ, heldur sem tölvu-
ráðgjafi, en það er starf mitt.
Ur þessum tveimur stuttu við-
tölum gerði fréttamaðurinn æsi-
kennda frétt um SKÝRR. Ber að
harma það sérstaklega að fréttin
gaf kolranga mynd af því sem
fram fór á ráðstefnunni.
Fréttamaður vitnaði m. a. til þess
að SKÝRR hefðu ekki sent nema
einn á ráðstefnuna en venjulega
væru 10-15 manns frá þeirn á
slíkum atburðum. Skýringin var
auðvitað sú að SKÝRR héldu
uppá 40 ára afnræli sitt þennan
sama dag.
5 - Tölvumál