Tölvumál - 01.10.1992, Blaðsíða 6
Október 1992
Fréttin var spuni fréttamannsins
og ber ég ekki neina ábyrgð á
innihaldi hennar, ef undan eru
skilin þau orð sem ég mælti sjálfur
í fréttinni. Vil ég ítrekaharm minn
yfir því að fréttin í heild kom út
sem árás á einn af okkar bestu
félagsmönnum, SKYRR. Ég er
reynslunni ríkari.
SKÝRR lítiö ræddar á
ráðstefnunni
Aðeins þrír af sex fyrirlesurum
nefndu SK YRR, þar af tveir mjög
stuttlega, annar gagnrýndi sam-
keppni SKÝRR við hugbúnaðar-
hús og ég óskaði SKÝRR í lok
ræðu rninnar til hamingju með
afmælið og gat þess að ég teldi
að fyrirtækið væri nú á hátindi
enlíkurbentu tilaðæfleiri inyndu
leita lausna innan eigin veggja í
ljósi þess hversu ódýrt reikniafl
væri orðið svo og þróunar í víð-
netstengingum. Er þetta í sam-
ræmi við það sem forsvarsmenn
SKÝRR hafa margoft bent á
sjálfir.
Sá sem gerði SKÝRR að sérstöku
umtalsefni, setti fram gagnrýni á
samskipti stofnunar hans við
SKÝRR. Svaraði Þorsteinn
Garðarsson þeirri gagnrýni í
almennum umræðum á eftir
erindunum.
Ég vil undirstrika að Skýrslu-
tæknifélagið getur ekki borið
ábyrgð á því sem fyrirlesarar á
ráðstefnum þess segja né heldur
er það hlutverk félagsins að
gagnrýna það eða samþykkja.
Að öðru leyti var ekki fjallað
um SKÝRR á ráðstefnunni en á
henni komu fram margar at-
hyglisverðar ábendingar um það
hvernig ríkið gæti hlúð að
atvinnugreininni og hagað sér í
samskiptum við hagsmunaaðila.
Erindi mitt - um hvaö
fjallaði þaö?
Titillinn á erindi mínu,
"Miðstýring - leið til ófarnaðar",
hefur valdið misskilningi og
margir sem ekki komu á ráð-
stefnuna hafa talið að verið væri
að fjalla um miðlæga tölvu-
vinnslu. Það var langt í frá.
Erindi mitt fjallaði um þá til-
hneigingu sem nú er uppi af hálfu
stjórnvalda að fjarstýra tölvu-
væðingu ríkisstofnana í stað þess
að líta á hana sem hluta af
almennum rekstrarkostnaði og
láta það í hendur h verrar stofnunar
hvað hún gerir. Þá fjallaði ég
ítarlega um samskipti ríkisins við
ráðgjafa og gagnrýndi tillögur
RUT urn breytingar á útboðs-
málum ríkisins.ÞágatégSKÝRR
stuttlega eins og áður er nefnt.
Hvers vegna opið
bréf til starfsmanna
og stjórnenda
SKÝRR?
En því þessi langa umfjöllun um
þessa ráðstefnu? Mér er kunnugt
um að margir góðir félagar okkar
hjá SKÝRR, hafa verið mjög
áhyggjufullir vegna þeirrar um-
fjöllunar sem málefni SKÝRR
fengu eftir ráðstefnuna og hafa
velt upp þeirri spurningu hvort
Skýrslulæknifélagið hafi staðið
fyrir árás á fyrirtækið og trún-
aðarbrestur hafi orðið milli SI
og SKÝRR.
Miðað við þá umfjöllun sem
ráðstefnan fékk í fjölmiðlum er
eðlilegt að þessi spurning vakni.
Röð óheppilegra tilviljana leiddi
til þess að þessi ráðstefna okkar
hefur valdið sárindum hjá góðum
félögum okkar, starfsmönnum
SKÝRR, og umfjöllun fjölmiðla
valdið því að þeir sem ekki voru
á ráðstefnunni hafa fengið
kolranga mynd af því sem þar fór
fram.
Ég harma þetta og get aðeins
vonað að þessi grein skýri málið.
Skýrslutæknifélagið hefur um 25
ára skeið notið starfskrafta
félagsmanna sinna og margir sýnt
mikla fórnfýsi þegar taka þarf á í
málefnum sem varða félagið og
hagsmuni tölvugreinarinnar. Þar
hafa starfsmenn SKÝRR farið
fremstir í flokki. Ég vona að svo
verði áfram.
Halldór Kristjánsson,
formaður
Skýrslutœknifélags Islands
Punktar....
Hagtölurá
segulmiðlum
OECD stofnunin, sem safnar
saman alls konar tölum um
auð og eíinahag jarðarbúa,
hefur tekið upp á þeirri
nýbreytni að bjóða al-
menningi áskrift að helstu
skýrslum sínum, 80 talsins, -
á disklingum.
Nánari upplýsingar má fá frá
OECD Electronic Edition,
2 rue André-Pascal,
F-75775 Paris CEDEX 16
France
eða í síma .... 45 24 81 65.
6 - Tölvumál