Tölvumál - 01.06.1993, Blaðsíða 5

Tölvumál - 01.06.1993, Blaðsíða 5
Frá formanni Halidór Kristjánsson, formaður SÍ Júní 1993 Ráðstefna um tölvu- væðingu í kreppu Hinn 29. aprfl síðastliðinn hélt Skýrslutæknifélagið ráðstefnu um málefnið Tölvuvæðing í kreppu. Eins og heiti ráðstefn- unnar gefur tilefni til var bæði rætt um þann hag sem mætti hafa af tölvum í kreppuástandi svo og komu einstakir fyrirlesarar inn á spurninguna um það hvort tölvu- væðingin sem slík væri almennt í kreppu. Ráðstefnan var vel sótt og gerður góður rómur að erindunum. Er þeim sem að undirbúningi ráð- stefnunnar stóðu þakkað fram- lagið en ekki síður fyrirlesurum sem, eins og jafnan áður, lögðu á sig mikla vinnu til þess að gera ráðstefnuna áhugaverða. Karl H. Rosenbrock forstjóri ETSI, Fjarskiptastaðlaráðs Evrópu, á ráðstefnu Skýrslutæknifélagsins í febrúar var haldinn hádegis- fundur á vegum félagsins um ný fjarskiptalög. Fundurinnvarmjög vel sóttur og mikill áhugi sýndur á því að Skýrslutæknifélagið stæði fyrir því að fá hingað ein- hvern sem gæti fjallað um þá þróun sem átt hefur sér stað innan Evrópu. Nú hefur hvalreka borið á fjöru okkar, því hr. Karl Heinz Rosen- brock, forstjóri ETSI, Fjarskipta- staðlaráðs Evrópu mun halda erindi á ráðstefnu SÍ hinn 8. júní næstkomandi. Ásamt honum mun Guðmundur Olafsson, yfir- maður Fjarskiptaeftirlits, fjalla um fjarskiptastaðla og fjarskipta- lög og áhrif þeirra á netmál innan Evrópu. Það er okkur mikil ánægja að bjóða hann velkominn hingað til lands. Norddata ’93 í Kaupmannahöfn Þegar þetta er ritað er ekki vitað hversu margir íslendingar sækja COPE’IT ’93 í Kaupmannahöfn um miðjan júní. Ráðstefnan nú er ineð áhugaverðara móti, flestir fyrirlestrarnir eru á ensku og lítið um "sölufyrirlestra". Norddata hefur tekið miklum stakkaskiptum frá því að 2.400 manns sóttu hana á árum áður. Framboð af alls konar ráðstefn- um hefur aukist mikið og sérhæf- ingin orðið meiri. Fáar ráðstefn- ur bjóða þó jafn mikla breidd í efnisvali og Norddata. Hún erþví tilvalin fyrir tæknistjórnendur og ráðgjafa sem vilja fá góða yfirsýn yfir sviðið og hitta starfsbræður frá Norðurlöndunum. Staðallinn ÍST 32 endurskoðaður Formaður Fagráðs f upplýsinga- tækni hefur farið fram á það við stjórn Skýrslutæknifélagsins að hún myndi vinnuhóp til þess að endurskoða staðalinn ÍST 32 en hann fjallar um útboð á tölvu- sviði. I þessu skyni er nú verið að leita að áhugasömum ein- staklingum sem eru reiðubúnir að leggja verkinu lið með vinnu- framlagi og geta lagt eitthvað að mörkum til verksins. Stefnt er að því að sem flest sjónarmið eigi fulltrúa í vinnuhópnunt. íslenskur hugbúnaðariðnaður í sviðsljósi Að undanfömu hefur mikil um- fjöllun átt sér stað urn íslenskan hugbúnaðariðnað í fjölmiðlum. Þessi umfjöllun er jákvæð og vekur athygli á þessari grein sem ekki hefur átt allt of greiðan aðgang að þróunar- og áhættu- fjármagni. Er það vonandi að umfjöllunin verði til þess að afstaða þeirra sem stjórna slíku fjármagni verði jákvæðari. I umfjöllun fjölmiðla er á hinn bóginn ávallt sú hætta fyrir hendi að of mikið sé gert úr þeim vaxtarbroddum sem hér eru og það leiði síðan til vonbrigða og afturkipps í því jákvæða and- rúmslofti sem nú ríkir í garð greinarinnar. Því ber að taka með vara allt hjal um tugmilljarða veltu, upp- sprengt gengi hlutabréfa og þörf fyrir hundruð starfsmanna í einu vetfangi. Slíkt skaðar greinina í heild síðar, ef ekki verður úr slíkum draumum. Séu málin skoðuð í samhengi sést að hér má gera góða hluti, en það kostar tíma, fé og fyrirhöfn. Sem dærni má nefna að velta 5 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.