Tölvumál - 01.06.1993, Page 10
Júní 1993
Kildall. Kerfið keyrði á 8080 frá
Intel og Z80 frá Zilog, sem var
endurbætt útgáfa af 8080. CP/M
kynnti ET-notendur fyrir
textanum A> , sem ætíð birtist
þegar slá mátti inn skipanir í
stýrikerfinu. CP/M var eitt fyrsta
ET-stýrikerfið sem var óháð
forritunarmáli. Fyrir það mátti fá
ýmis mál, t.d. CBASIC, BDS C
og síðast en ekki síst dBase, sem
náði fótfestu með hjálp CP/M er
hefur dugað í meira en áratug
(þótt Ashton-Tate, framleiðandi
dBase, sé horfinn í hið óend-
anlega NUL-tæki). Ritvinnslu-
forritið WordStar var allsráðandi
í CP/M ritvinnslu og töflu-
reiknirinn SuperCalc seldist
talsvert. Microsoft var þó ekki
langt undan með Multiplan.
Eitt helsta fyrirtækið á sviði
innflutnings og sölu CP/M tölva
á Islandi var Rafrás, en þeir seldu
m.a. North Star tölvurnar og
framleiddu einnig eigin raf-
eindabúnað af ýmsu tagi. Flestar
CP/M tölvur voru byggðar á
tengibraut sem hét S-100 og var
stöðluð á svipaðan hátt og EISA
eða NuBus eru í dag. North Star
tölvurnar buðu upp á gagna-
geymslu á hörðum diskum, 5 og
10 Mb, og þótti geysileg framför.
Rafrás seldi einnig viðskipta-
hugbúnað sem skrifaður var í
mállýsku af forritunarmálinu C.
Einn af dyggustu notendum North
Star var ritstjóri fyrsta íslenska
tölvutímaritsins - Tölvublaðsins,
Helgi Örn Viggósson. Eftir
áskrifendasöfnun sem gekk
vonum framar var þessu glæsi-
lega riti hleypt af stokkunum og
var áhugi bæði lesenda og útgef-
enda mikill á þessu framtaki.
Tölvublaðið kom út sem
sjálfstætt blað um nokkurt skeið
en var svo selt Frjálsu framtaki og
loks sameinað Frjálsri verslun.
Meðal frægustu CP/M tölva var
Osborne 1, sem var fyrsta far-
tölvan sem eitthvað kvað að.
Hún hafði pínulítinn skjá og tvö
disklingadrif, innbyggð í væna
tösku sem vó tugi kílóa. Nokkrar
slíkar tölvur voru fluttar inn til
landsins, en Adam Osborne
kafsigldi sig á skömmum tíma og
fyrirtæki hans varð gjaldþrota.
Sinclair og heitar
lummur
í Bretlandi var hugvitsmaðurinn
Clive Sinclair upptekinn við að
hanna tölvu sem yrði hlægilega
ódýr og á allra færi að eignast.
Afraksturinn varð SinclairZX80,
tölva sem hafði 1K minni og Z80
örgjörva, en lyklaborðið var flatt
plastþynnuborð sem var afar
óþægilegt í notkun. ZX80 hafði
ófullkomið BASIC sem réð
aðeins við heiltölur og var að
flestu leyti skref aftur á bak. Hið
lága verð, aðeins 70 pund (í dag
um 7.700 kr.) olli því hins vegar
að hún seldist eins og heitar
lummur og varð fyrsta tölva
margra.
Á eftir ZX80 kom ZX81 sem var
öllu skárri, með fleytitölu-B ASIC
og ýmsum fleiri möguleikum.
Enn var lyklaborðið ófullkomið
og frágangur tölvunnar lélegur.
ZX81 seldist þó gífurlega vel.
Sinclair gekk illa að græða á öllu
saman og hann fór á hausinn fyrir
rest, hvorki í fyrsta né síðasta
skipti á ævinni.
Friðrik Skúlason
lætur á sér kræla
Árið 1982 hóf Tölvubúðin inn-
flutning tölva frá Atari, sem
nýlega hafði skotist upp á
stjömuhimininn. Atari-tölvurnar
voru á margan hátt hannaðar fyrir
leiki, og höfðu m.a. nokkuð góða
litagrafík. Friðrik Skúlason
veirugúrú með meiru var meðal
fyrstu Atari-kaupenda og var
fljótur að setja í tölvurnar full-
kornna íslensku. Friðrik þekkti
Atari-búnaðinn út og inn og var
m.a. fenginn til að halda sumar-
námskeið fyrir böm og unglinga
á Atari-tölvur sumarið 1982 á
vegum Tölvuskólans.
Chuck Peddle og
Sirius
Meðal fyrstu ET sem fluttar vom
til Islands með 16 bita örgjörva
var Victor/Sirius. Að baki henni
stóð Chuck Peddle, sem einnig
hafði átt hlut að hönnun 6502
örgjörvans og stofnun Com-
modore á sínum tíma. (Peddle
þessi fór næst til Tandon, en ekki
hef ég nýrri fréttir af ferðum hans
um tölvuheima.) Sirius var með
Intel 8088 örgjörva og stóð IBM
PC framar að nærri öllu leyti.
Meðal annars var hámarksminni
hennar 896K en ekki 640K eins
og í PC; hún bauð upp á inn-
byggða 800x400 grafík, upp-
setjanlegt lyklaborð og táknróf,
hljóð (tal o.fl.) og disklingadrif
sem geymdu yfir 1 Mb hvert
meðan IBM bauð 180 Kb drif í
PC. Talsvert seldist af Sirius í
Evrópu, sérstaklega í Bretlandi
og Þýskalandi, en minna af Victor
í Bandaríkjunum. Victor/Sirius
var m.a. notaður hér í Háskóla
Islands,hjáPrentsmiðjunni Odda
og hjá fjölmörgum einkaaðilum.
Tölvulæsi og BBC
1981-1982 voru sýndir í sjón-
varpinu þættir frá BBC sem hétu
The Mighty Micro. I þeim var
fjallað um hina yfirvofandi ör-
gjörvabyltingu aukþess sem fólki
var kennt að forrita og nota ein-
10 - Tölvumál