Tölvumál - 01.06.1993, Side 16

Tölvumál - 01.06.1993, Side 16
Júní 1993 Samstarf um landfræðilegt upplýsingakerfi Samkvæmtályktun Alþingis 1991 hefur umhverfisráðherra stofnað til samstarfs stofnana og fyrirtækja um gerð stafrænna staðfræði- korta og gróðurkorta og til að leggja drög að samræmdu land- fræðilegu upplýsingakerfi fyrir allt landið. Markmiðið er að samhæfa vinnu stofnana, lækka kostnað við öfl- un og meðferð gagna og gera stjórnsýsluna skilvirkari, m.a. með því að auðvelda henni að- gang að sem bestum upplýsingum á hverjum tíma. Til þess að ná settu marki var hafið tilraunaverkefni 1991 með samstarfi 22 stofnana. Verkefnið felst í því að undirbúa uppbygg- ingu gagnasafns og gera nokkur staðfræðikort og gróðurkort með þeini tækni sem notuð verð- ur við kortagerð og gagnasöfn á komandi árum. Liður í tilraunaverkefninu er að kanna hvaða gögn hinar ýmsu stofnanir og fyrirtæki eiga og hafa þörf fyrir. I því skyni verður gerð þarfagreining á vegum verk- efnisins vorið 1993 og verður niðurstaðan lögð til grundvallar fyrir tillögu að íslensku land- fræðilegu upplýsingakerfi. Landfræðilegt upplýsingakerfi, LUK, er tölvukerfi sem geymir staðbundnar, hnitbundnar upp- lýsingar. Hugbúnaður kerfisins tengir myndræn gögn við önnur gögn, s.s. tölur, texta, töflur o.fl. Einnig er mögulegt að skrá, vista, meðhöndla, greina og kynna tölvugögn á fjölbreyttan hátt. Aætlað er að árlegur heildar- kostnaður ríkisins vegna mæl- inga, kortagerðar og skyldrar upplýsingaöflunar sé 600-800 milljónir króna. Með því sam- starfi sem hér er greint frá má lækka kostnaðinn verulega. Nýju fjarskiptalögin - stutt yfirlit Þann 1. apn'l síðastliðinn voru samþykkt á Alþingi ný lög um fjarskipti sem öðluðust þegar gildi. Lögin voru samin á vegum nefndar sem samgönguráðherra skipaði til endurskoðunar á gild- andi fjarskiptalögum. í athuga- semdum nefndarinnar við laga- frumvarpið má sjá að megin- tilgangur endurskoðunarinnar var tvíþættur. í fyrsta lagi heildar- endurskoðun laganna og í öðru lagi að taka saman þær breytingar sem nauðsynlegt er að lögfesta vegna ákvæða í samningi um EES. Helstuatriðisemtakaþurfti tillit til vegna EES voru um samkeppni á sviði fjarskipta- þjónustu og um frjálsan aðgang að fjarskiptanetum. í þessum lögum er einkarétti ríkisins til uppbyggingar og reksturs á grunn- netinu og á talsímaþjónustu, fjarrita, farsíma, boðkerfi og gervitunglaþjónustu viðhaldið. Samkeppni er leyfð á öðrum sviðum og þeint sem veita fjar- skiptaþjónustu verður tryggður greiður aðgangur að grunn- netinu. Einnig er aðskildur almennur rekstur og fjarskipta- eftirlit. Hefurreyndarþegarverið stofnað Fjarskiptaeftirlit ríkisins sem er ætlað meðal annars að veita heimild til notkunar á búnaði. Sala á notendabúnaði verður í reynd öllum leyfð og það verður hægt að setja upp jarðstöðvar til móttöku á sjón- varpsefni til eigin nota nteð leyfi samgönguráðherra. Virðisauk- andi þjónusta er leyfð öllum sem fá til þess leyfi samgönguráð- herra. Þar með geta þeir sem vilja, boðið upp á ýmsa þjónustu á sviði tölvusamskipta fyrir almenning. Þar sem enn á eftir að sernja reglugerð urn nánari útfærslu á lögunum er ennþá ýmislegt óljóst viðframkvæmdþeirra. Tildæmis getur verið að þeir sem hafa hug á að bjóða einhverja þjónustu verði að geta boðið hana á landsvísu. 16 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.