Tölvumál - 01.06.1993, Page 25
Júní 1993
forritið sjálft, sökum mikillar
útbreiðslu IBM samhæfðra
tölva, til að geta veitt heyrnar- og
mállausum sömu þjónustu og
öðrum.
Textasímaforritið NOTEKS er
hannað hjá Rannsóknastofnun
norska símans (Telverkets
Forskningsinstitutt) en fengið var
hugbúnaðarfyrirtæki til að skrifa
forritið og ganga frá endanlegri
útgáfu þess. Við hönnun þess var
lögð áhersla á að notkun þess
yrði sem líkust venjulegum síma.
Póstur og sími hefur lagt sitt af
mörkunum við kostnað hönn-
unar og frágangs forritsins auk
þess að kosta þýðingu þess yfir á
íslensku. Gerður hefur verið
samningur nú í vor um dreifingu
þess hér á landi og mun Póstur og
sími annast hana.
Þegar forritið er keyrt birtist val-
mynd þar sem velja má á milli
ýmissa aðgerða s.s. að svara,
hringja, setja á sjálfvirka svörun,
símaskrá, hringja í boðtæki,
hringja með skjáhermi ásamt
uppsetningu ýmissa atriða.
Hægt er að hringja í annan
textasíma á tvennan hátt; með
því að hringja beint og slá þá inn
númerið eða með því að velja
símaskrá og velja þar þann sem
hringja skal til. Þegar hringt er
beint má einnig velja síðasta
númer með aðgerðarhnapp. í
samtali skiptist skjárinn í tvennt
og er sendur texti vinstra megin
og sá móttekni hægra megin.
Bendlar beggja helminga eru ávalt
í sömu línu svo auðvelt er að
fylgjast með því sem ritast á
skjáinn jafnvel þó annar aðilinn
grípi fram í fyrir hinum. Alveg
eins og í venjulegum síma er ekki
hægt að geyma það sem sagt er í
samtali eftir að því lýkur. I
yfirstandandi samtali er hægt að
frysta móttekinn texta ef hann
kemur svo hratt að ekki næst að
lesa hann og þannig stjórna
lestrarhraðanum. Einnig er hægt
að fá fram glugga þar sem hægt
er að skrifa hjá sér minnispunkta
til geymslu. Til að auðvelda not-
endum má koma sér upp safni
skammstafana sem skrifa heilu
setningarnar þegar kallað er á
þær, t.d. "gdk" sem gæti þýtt
"Góðan dag, þetta er Kristinn!".
Ef senda á mikinn texta má skrifa
hann fyrirfram og geyma í skrá
sem er svo send þegar samband er
komið á.
Hringing er gefin til kynna með
blikkandi skjá en setja má upp
ljósabúnað tengdan við síma-
línuna svo hægt sé að gefa til
kynna hringingar á fleiri stöðum
en þar sem tölvan er.
Frá aðal valmynd má stilla forritið
á sjálfvirka svörun og vinnur það
þá á svipaðan hátt og símsvari,
þ.e. þegar hringingu er svarað er
sendur fyrirfram ákveðin texti en
eftir það má skrifa inn skilaboð
til þess sem hringt er til.
Fyrir utan ofangreindar aðgerðir
og ýmsar aðgerðir til uppsetn-
ingar og leiðbeiningar má senda
texta í textaboðtæki með því að
hringja í boðkerfið (þjónusta sem
væntanleg er hjá Pósti og síma)
og einnig má hafa samband við
tölvukerfi og -banka með skjá-
hermi.
Félag heyrnarlausra hefur óskað
eftir styrk frá Tryggingastofnun
ríkisins til kaupa á tölvubúnaði
fyrir heyrnarlausa í stað fyrri
textasíma, en það er mun ódýrara
að kaupa tölvu, mótald og forrit
en hefðbundinn textasíma svo
ekki er loku fyrir það skotið að
stofnunin verði við þeirri beiðni.
Með tilkomu farsímakerfisins og
ferðatölva má taka textasímann
með sér hvert á land sem er og
með tilkomu GSM farsíma-
kefisins geta textasímanotendur
auðveldlega ferðast um erlendis
með sinn síma eins og aðrir.
Þýðing forritsins yfir á íslensku
er á lokastigi og verður það
tilbúið til dreifingar innan
skamms.
Punktar...
TELEteaching ’93
Sífellt fjölgar þeim sviðum
þar sem samspil tölvu- og fjar-
skiptatækninnar er notað til
hagræðingar og endurbóta.
Þar má nefna til fjarnám og
fjarstarf, en í báðum tilvikum
nýtist þessi tækni á marg-
víslegan hátt.
Til að miðla vitneskju um
þessa tækni og hagnýtingu
hennar mun DND, systurfélag
okkar í Noregi, næsta haust
halda veglega alþjóðlega
ráðstefnu, sem ber titilinn
TELE teaching ’93 og undir-
titil nám og starf óháð tíma
og rúmi. Dagskrá ráðstefn-
unnar er rnjög fjölbreytt og of
löng til að gera skil hér. Hún
samanstendur af fyrirlestrum,
sýningu, kynningum, vinnu-
hópum, móttökum og flestu
því sem slíkri ráðstefnu heyrir
til.
Ráðstefnan verður haldin í
Þrándheimi dagana 20. til 25.
ágúst. Upplýsingabæklingur
um ráðstefnuna liggur
frammi á skrifstofu félagsins.
25 - Tölvumál