Tölvumál - 01.06.1993, Síða 26
c
1^9
Ötgefandi: Skýrslutæknifélag Islands, Reykjavík
Ritnefnd: öttar Kjartansson, ábm. l.tbl. 1.árg.nóvember 197$
Oddur Benediktsson
Grétar Snær Hjartarson Öll réttindi áskilin.
FÉLAGSBRÉF SKÝRSLUTÆKNIFÉLAGSINS
Skýrslutæknifélagi'ð sendir nú félagsmönnum fyrsta tölu-
blaðið af félagsbréfi, sem hlotið hefur nafnið TÖLVUMÁL.
TÖLVUMÁL koma í stað eldra forms á fundarboðum og öðrum
tilkynningum til félagsmanna. Auk þess er vonast til að
þau geti orðið vettvangur umræðu og fróðleiks á sviði
félagsmála og tölvutækni. Vel væri, ef félagsmenn legðu
til efni í blaðið eða gæfu ritnefndinni gagnlegar bend-
ingar í því sambandi. Framtíð þessarar útgáfu er mjög
undir viðtökum og áhuga félagsmanna komin. TÖLVUMÁL fara
ekki geyst af stað. Vonandi segir það þó ekki alla sögu
um framhaldið. Ef til vill á hér eftir að sannast, að
"mjór er mikils vísir"?
FÉLAGSFUNDUR
Félagsfundur verður I Norræna Húsinu, þriðjudaginn
9. nóvember 1976. Hann hefst kl. 14.30.
Á fundinum verður fjallað um málefnið "centralisering -
decentralisering". Framsöguerindi um efnið flytur
Jón Þór Þórhallsson, forstöðumaður.
Að loknu framsöguerindi verður efnt til hringborðs-
umræðna um málefnið. Þeim stjórnar
Einar Pálsson, forstjóri.
Þátttakendur í hringborðsumræðum munu væntanlega túlka
mismunandi sjónarmið til málefnisins, sem einmitt hefur
verið mjög til umræðu nú á síðustu misserum.
Eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna.
Að loknum hringborðsumræðum mun félagið bjóða fundarmönn-
um til að rabba um niðurstöður fundarins, eða önnur áhuga-
mál, yfir góðum kaffibolla.
ÁÆTLUN UM FÉLAGSSTÖRF
Veturinn 1976-1977 eru félagsfundir Skýrslutæknifélagsins
áætlaöir þannig:
9.11.1976 Centralisering - decentralisering. Erindi
og hringborðsumræður.