Vísir - 25.08.1962, Síða 10
10
V'SIR
s
Vikan 26. ágúst til 1. september
Hrúturínn, 21. mars til 20. apríl.
Nýtt tungl í vikunni bendir til
að ýmislegt óvænt geti átt sér
stað á vinnustað. Ýmislegt nýtt
gæti nú komið fram og heppi-
legt er að byrja á einhverju
nýtu einmitt nú. Heilsan getur
þarfnast talsverðrar umhyggju
þinnar nú þannig að heppilegra
væri að fara vel með sig, sér-
staklega í sambandi við matar-
æðið.
Nautið 21. apríl til 21. maí: Vik
an og tfmabilið sem nú fer í
hönd ætti að reynast þér mjög
ánægjulegt sérstaklega í sam-
bandi við ýmsa tómstundaiðju,
skemmtanir, ástamálin, kvik-
myndahús, leikhús og annað
þess háttar. Þú munt einnig
finna að þér bjóðast fleiri tæki-
færi til að sinna þessum mál-
efnum, heldur en undanfarið
hefur verið raun á.
Tvíburamir, 22. mai til 21. júm':
Nú er heppilegur tfmi til að
sinna heimilinu og fjölskyldu-
málunum, ef góður árangur á
að nást af. Samt sem áður mun
vinnustaður þinn þarfnast tals-
verðrar umhyggju þinnar, en
sem sagt, heimilið og fjölskyld-
an mun þarfnast sérstakrar um-
hyggju þinnar og ýms vanda-
mál eru þar á ferð, sem kryfja
arf til mergjar.
Krabbinn, 22. júní til 23. júli:
,!Afstaðan bendir til að aðalá-
* heerzla verði á nánum ættingj-
’^um, nágrönnum og málefni varð
andi þessa aðila. Það er vafa-
i laust margt sem þú þarft að
taka ákveðna afstöðu til i sam-
bandi við ættingjana og ná-
grannana og þú hefur einmitt
öll skilyrði til þess nú. Einnig
ér mjög Iíklegt að þú farir i
smá ferðalag.
Ljónið, 24. júlí tU 23. ágúst: Þú
ættir að reyna að finna ein-
hverjar frumlegar aðferðir til
að auka við eignir þínar og
tekjustofn. 1 vikunni eru aðal-
áherzlur á fjármálin yfirleitt
sérstaklega hjá þér persónulega
og þú munt finna að eignir þín-
ar þurfa nú sérstakrar umön-
unnar og aðhlynningar við. -
Seinni hluti vikunnar getur boð
ið upp á sérstaklega hagkvæmt
tækifæri til fjáröflunar.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Þú mátt búast við að verða
nokkurskonar miðdepill athafna
þeirra, sem þú og aðrir kunna
að taka þátt í nú £ vikunni. —
Aðrir munu taka mikið tillit til
skoðana þinna og sjónarmiða I
sambandi við hvernig þú vilt að
hlutimir verði og að öllum lík-
um verður farið að þínum ráð-
um I hvfvetna. Þessi straumur
getur jafnvel verið þér hagstæð
ur fram f næstu tvær vikumar.
Þú munt þvf þurfa að sína öðr-
um fram á hvað í þér býr og að
þú getir verið talsvert frumleg-
ur í hugsun og gerð.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.: Vik
unni virðist bezt varið á þann
hátt að leita sér sem mest
hvfldar og einveru að minnsta
kosti að kvöldinu. Hins vegar
er nú gott að ljúka ýmsum
þeim verkefnum, sem þegar hef
ur verið byrjað á og staðið hef-
ur f stað með. Einnig er ekki 6-
trúlegt að þú finnir að einhvei
sjúkur eða hjálparþurfi þarfníst
nú aðstoðar þinnar og aðhlynn-
ingar.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Ekki er ótrúlegt að þú eigir eft-
ir að kynnast nýjum vinum og
kunningjum í þessari viku og
því tímabili sem nú fer í hönd.
Samt getur ýmislegt skyndilegt
og óvænt gerzt í þessu sam-
bandi og komið út á annan hátt
en haldið var í fyrstu, jafnvel
gætu orðið þáttaskii í sambandi
þfnu við vini og kunningja,
gamlir horfið og aðrir nýir kom
ið í þeira stað.
Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Það tímabil sem nú fer í
hönd skapar þér nýjar aðstæð-
ur til að framfylgja metnaðar-
málum þínum eftir, í sambandi
við atvinnuna eða þá sérgrein,
sem þú kannt að aðhyllast. —
Einnig á þetta við um umgengni
þína við yfirmenn þína, þér
munu bjóðast ný tækifiæri til
að koma málefnum þínum á
rekspöl við þá.
Steingeitin, 22. des. til 20. jan.:
Framtfðaráætlanir eru nú undir
góðum áhrifum, þvf þú ert nú
furðii glöggur á allar kringum-
stæður. Heimspekilegar bolla-
leggingar eru nú líka undir góð
um afstöðum og ekki væri 6-
skynsamlegt að komast f kirkju
í vikunni ef þess væri kostur.
Sennilega færðu bréf erlendis
frá eða frá einhverjum í fjar-
lægum landshluta eða fréttir
þér viðkomandi, sem verða
svona uþp og ofán.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr
Sameiginleg fjármál eru nú und
ir höfuðáherzlu. Þú ættir að
vera reiðubúinn að gefa nokkuð
eftir og taka tillit til tillagna
annarra, sem miða að heppi-
legra fyrirkomulagi. Einnig ér
sennilegt að þú þurfir nú að
sinna skattamálunum eða gera
einhverja grein fyrir málum
þínum í þeim efnum. Allt ætti
samt að geta endað á betri veg.
Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz:
Þú ættir ekki að hafa mjög
hátt um þig í þessari viku þar
eð afstöðurnar benda til þess
að aðrir, t.d. maki eða nánir
samstarfsmenn og félagar séu
betur uplagðir til að ráða ferð-
inni og þeim aðferðum, sem
beitt er f sambandi við fram-
kvæmd verkefnanna. Þú ættir
því fremur að halda þig á bak
sviðinu og leitast við að vera
eins samstarfsfús eins og auðið
er.
Laugardagur 25. ágúst 1962.
I ur til að þeir sem ætla sér til
náms á erlendri grund næsta haust
og vetur verði slíkar upplýsingar
kærkomnar og gagnlegar.
i ein bárn
Um eða eftir miðja næstu viku,
verður efnt til sérstaks upplýsinga-
kvölds hér í Reykjavík fyrir það
námsfólk sem hefur hug á að leggja
stund á nám erlendis á næstunni.
Með þessu upplýsingakvöldi er
það hugmyndin að gefa nýstúdent-
um og öðrum þeim sem hyggja á
nám einhvers staðar erlendis nú í
haust eða vetur, hvers konar upp-
lýsingar um nám og námskostnað
sem viðkomandi námsfólki gæti
komið að gagni.
Þarna verða á fundinum viðstadd
ir íslenzkir háskólamenn frá flest-
um eða öllum borgum þar sem ís-
lendingar stunda háskólanám og
munu þeir leggja sig fram um að
gefa sem haldbeztar upplýsingar,
hver frá sinni námsborg um allt það
sem ungum námsmönnum héðan
gæti að gagni komið.
Meðal þeirra upplýsinga verður
allt sem lýtur að námskostnaði og
námi í sérhverri grein, möguleikar
á útvegun húsnæðis, kostnaður fæð
is og húsnæðis og annað þar fram
eftir götunum.
Gert er ráð fyrir að kynningar
eða upplýsingakvöldið verði haldið
n.k. fimmtudagskvöld og verður
nánar skýrt frá því síðar. Eru lík-
Framhald af bls. 2.
væri um nein alvarleg meiðsli að
ræða.
Stúlkan, sem árekstrinum olli, er
óvön akstri. Hún hafði þó tekið
ökupróf árið 1960, en tveggja mán-
aða akstursferli hennar lyktaði þá
með því að hún ók á brú og
skemmdi farartækið þá svo að það
hefur lítið eða ekki verið hreyft
úr stað síðan. Núna ætlaði hún
að reyna hæfni sína á nýjan leik,
en þá fór það svona.
erjgunblöiin orðín fimm
Hið nýja dagbiað „Mynd“ skýrir > Þetta þýði, segir blaðið að menn
frá því í gær að blaðið sé nú ekki' fái „Mynd með morgunkaffinu".
Iengur síðdegisblað. Eru því morgunblöð landsins orð-
Hafi útkomutímanum verið breytt i in fimm að tölu. Vika er síðan
og sé það nú orðið morgunblað. I Myndin hóf göngu sína.
M ív/y/Zá. LS2 7/t/l
^ «! 11 1 1 J Ú! 1 | J ‘—j r 1
V/////A 1 I W///////A i V/////////A
lslandsm©istðsrar Fram:
Keppa þeir í EuropeanCup?
Á mánudagskvöldið var frestur
úti til að skila umsóknum1 til
franska handknattleijtssambandsins
um þátttöku í Evrópubikarnum f
handknattleik. Metþátttaka virðist
ætla að verða í keppninni, 19 þjóð-
ir höfðu tilkynnt meistaralið sín í
keppnina, og tvö rnunu hafa verið
á leiðinni með umsókn, alis 21. ís-
land mun hafa tilkynnt þátttöku og
mun það vera Fram, íslandsmeistar
; arnir f fyrra, sem kynna íslenzkan
' handknattleik í keppninni.
Eftirtaldar þjóðir hafa tilkynnt
lið sín: Rúmenía (Dynamo, Buka-
rest), Tékkóslóvakía (Dukla, Prag),
Júgóslavía, Sjánn (Granollers), Port
úgal, Sviss, V-Þýzkaland (Göpping-
en og Kiel,) A-Þýzkaland, Belgía,
Holland, Luxemburg, Noregur, Sví-
þjóð (Heim), Finnland, Danmörk
(Skovbakken), Rússland, Frakkland
; og Island.
Dönsk blöð gera þátttöku íslands
að umtalsefni sínu og benda á stór-
an kostnað við þátttökuna, en eru
hins vegar mjög vinsamleg í garð
: íslenzks handknattleiks og benda á
hina góðu frammistöðu íslands á
I alþjóðlegum vettvangi.
Ekki tókst okkur í gær að fá
þátttöku Fram staðfesta, en íormað
ur Handknattleikssambands íslands I
sagði okkur að sambandið hefði boð
ið Fram að senda þátttöku í keppn- j
inni ,en vissi hins vegar ek ki hvað !
þeir hefðu gert í málinu.
Ef af þátttöku okkar manna j
verður, sem vonandi verður, er
ekki ósennilegt að löndum verði
skipt nokkuð niður eftir legu þeirra,
þannig að íslenzka liðið lendi gegn
Norðurlandaliðinu í riðli. Þjóðverj-
ar senda tvö lið, en ástæðan er sú
GbRPÍbgen vann síðustu Evrópu-
bikarkeppni, en Kiel vann 1. deild-
ina í Þýzkalandi.
Síðustu höggin á
gamla golfvellinum?
Á morgun hefst á golfvellinum á
Öskjuhlíð Reykjavíkurmótið f golfi,
en ef að líkum lætur verður það
síðasta golfkeppnin, sem háð verð
ur á vellinum. Stór og mikil skurð-
grafa er nú byrjuð að róta til við
braut númer 6 og er hún ekki leik-
andi lengur.
Ekki er ósennilegt að golfmenn
muni f næsta mánuði flytja starf-
semi sína að nokkru upp í Grafar-
holt þar sem þeir eru að rækta nýj-
an völl og glæsilegan. Verður byrj-
að þar með keppni við Varnarliðs-
menn, sem margir hverjir eru mjög
snjallir í greininni.
Síðasta golfkeppni var minning-
armótið um Jason Clark, en hann
var vamarliðsmaður og góðkunn-
ingi golfáhugamanna hér. Orslit
komu mjög á óvænt f keppninni,
ungur og nær óþekktur maður
vann, Kári Elíasson, sem hefur lagt
sig f lima við að nema listina sem
bezt síðan hann byrjaði, og hefur
náð góðum árangri.