Vísir - 27.08.1962, Blaðsíða 2

Vísir - 27.08.1962, Blaðsíða 2
2 VÍSIR F=nl GF= r=a =j mmm w/////m Engu að kvíða í fijálsíþróttunum Cóð frammistaða ungu mann- anna ó Unglingameistaramóti Margir efnilegir piltar vöktu at- hygli áhorfenda á Laugardalsvell- inum í gær og fyrradag, en þá fór fram Unglingameistaramót íslands í frjálsum íþróttum. Komungir piltar hlupu á ekki verri tímum en 11.1 — 11.2 og 11.4, sem er mjög gott og skemmtilegt að vita af svo mikilli breidd í einni grein. Krist- ján Mikaelsson er mjög vaxandi hlaupari og vann nú 3 greinar. Met Skafta Þorgrímssonar í 200 metra hlaupi er mjög gott, 22,7, og einn bezti árangurinn í ár hjá þessum 16 ára pilti. Kringlukast Kjartans Guðjónssonar var og gott, og Þorvaidur Jónasson náði góðum árangri bæði í þrístökki og 400 metra grindahlaupi. ÚRSLIT FYRRI DAGS: 110 metra grindahlaup: Þorvaldur Jónasson, KR, 15.8. Kristján Eyjólfsson, ÍR, 18.1. Kúluvarp: Kjartan Guðjónsson, KR, 13.73. Jón Sigurðsson, HSS, 12.75. Magnús Sigurðsson, HSK, 12.41. 100 metra hlaup: Skafti Þorgrímsson, ÍR, 11.1. Skúli Sigfússon, ÍR, 11.2. Sigurður Sveinsson, HSK, 11.4. Hástökk: Kristján Stefánsson, FH, 1.75. Þorvaldur Jónasson, KR, 1.75. Halldór Jónasson, KR, 1.75. Langstökk: Þorvaldur Jónasson, KR, 6.72. Skafti Þorgrímsson, ÍR, 6.40. Sigurður Sveinsson, HSK, 6.22. Skafti Þorgrímsson kemur hér langfyrstur í mark í 200 metra hlaupi Unglingameistaramótsins á nýju drengjameti 22,7 sek. 400 metra hlaup: Kristján Mikaelsson, ÍR, 52.9. 1500 metra hlaup: Kristján Mikaelsson, ÍR, 4.21.2. Valur Guðmundsson, KR, 4.21.4. Spjótkast: Kjartan Guðjónsson, KR, 57.75. Kristján Stefánsson, FH, 53.49. Jakob Hafstein, iR, 46.47. ÚRSLIT SEINNI DAGS: 200 metra hlaup: Skafti Þorgrímsson, ÍR, 22.7. Ingólfur Steindórsson, USVH, 23.0. Þórhallur Sigtryggsson, KR, 23.2. 800 metra hlaup: Kristján Mikaelsson, IR, 2.01.6. Valur Guðmundsson, KR, 2.06.8. Kringlukast: Kjartan Guðjónsson, KR, 42.80. Jón Sigurðsson, HSSS, 38.35. Sigurður Sveinsson, HSK, 33.65. Stangarstökk: Erlendur Sigurþórsson, HSK, 3.10. Hreiðar Júliusson, ÍR, 3.00. Kjartan Guðjónsson, KR, 2.90. 3000 metra hlaup: Valur Guðmundsson, KR, 10.39.0. Þristökk: Þorvaldur Jónasson, KR, 14.35. Sigurður Sveinsson, HSK, 13.05. Reynir Unnsteinsson, UMFÖ, 12.75. 400 metra grindahlaup: Þorvaldur Jónasson, KR, 57.7. Kristján Mikaelsson, ÍR, 59.8. lega skoruð. Eina mark Reynis kom seint í hálfleiknum og skor- aði það hægri útherji liðsins. Sand gerðismenn léku rangstöðutaktik og voru yfir 20 rangstöður dæmd- ar á Þróttarana, — flestar á mið- herjann Hauk, sem þó skoraði öll 4 mörkin. Beztu menn voru þeir Axel Axelsson og Haukur Þorvalds son hjá Þrótti, en John, Guðlaug- , ur og Gottskálk markvörður hjá 1 Sandgerðingum. © I Hafnarfirði vann „handknatt- leikslið“ FH, eða 7 menn úr því liði, Víking með 5:1 og hefði sá munur getað orðið meiri ef tæki- færin í síðari hálfleik hefðu nýtzt betur en raun varð á. Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn og lauk með 1:0 fyrir Hafnarfjörð, en síðari hálfleikurinn var nokkuð sterk „pressa“ og bættu Hafnfirð j ingar 4 mörkum við en Víkingar j skoruðu eitt mark. Mörkin skoruðu: Einar Sigurðs- son 2, Bergþór 2.og örn, Hallsteins son 1 fyrir Harfnarfjörð, en Árni Waage 1 fyrir Víking. .© Þróttur og Keflavík berjast leik sf5ar um sigurinn ■ 2.deild Munu liðin mætast í úrslita Síðustu leikir 2. deildar fóru fram í gærkvöldi. Handknattleiksmenn FH áttu auðvelt með lið Vík- ings á heimavelli Hafnfirð- inga og unnu 5:1, en hér í Reykjavík sigruðu Þróttar- ar Reyni frá Sandgerði auð veldlega með 4:1. Rúsínan í pylsuendanum var svo knappur sigur Keflavíkur yfir hinum efnilegu piltum úr Breiðabliki í Kópavogi, en þeir hafa sýnt, einir liða, miklar framfarir í sum ar. Keflavík vann 3:2 og er því jafnt Þrótti að stigum. Þróttur vann auðveldan sigur: yfir Reyni með 4:1 og hefur þar j með tryggt sér leik gegn Kefla-! vik, sem verður hreinn úrslitaleik-1 ur um sigurinn í 2. deild og þar með hvort liðið flyzt upp í 1. deild. Þróttur skoraði ekki gegn Reyni fyrr en seint í fyrri hálfleik að Haukur Þorvaldsson skoraði með góðu skoti frá vítateigshorni. Síðari hálfleikur var morandi af tœkifærum, sem Þróttur átti en þrisvar lá knötturinn í netinu til viðbótar og var Haukur alltaf að verki, en hann mun nú markhæsti maður 2. deildar með 19 mörk eft ir 10 Ieiki. Voru mörkin öll lag- Síðasti leikur 2. deildarinnar var svo Ieikinn kl. 7 í gær- kvöldi á Melavellinum. Keflvík ingar tóku leikinn snemma í sín ar hendur og skoruðu 2 mörk í fyrri hálfleik. Síðar bættu þeir við 3:0, en Breiðabliksmenn voru ekki á þeim skónum að iáta bursta og bættu við 3:1 og rétt síðar 3:2. Reynir Jónsson skoraði bæði mörkin, en rétt á eftir var hann kominn inn fyrir, en var hindraður gróf lega og hefði átt að fá víta- spyrnu dæmda og þá hefðu ör- iög Keflvíkinga orðið önnur og þeir verið úr leik í 2. deiidinni, en Þróttur verið sigurvegari. Keflavik átti annars sigur skilið og vann réttilega. Mánudagur 27. ágúst 1962 Kristján Mikaelsson — Efnilegur í millivegalengdir — Þrefaldur Unglingameistari. Tugþraut Meistaramóts Reykja- víkur á Laugardalsvellinum kl. 6. Valbjörn Þorláksson er meðal þátt- takenda og mun hann nú gera enn eina atlögu að meti Arnar Clausen f greininni. Staðan í 2. deild Lokastaðan í 2. deild varð þessi og sýnir hún Ijóslega hve jöfn lið Þróttar og Keflavíkur hafa orðið, Keflavík er með tveimur mörkum færra en bæði hafa skorað jafn- mörg mörk: Keflavík 10 9 0 1 18 42:10 Þróttur 10 9 0 1 18 42:12 Hafnarfj. 10 4 0 6 8 21:26 Breiðablik 10 3 0 7 6 23:30 Reynir 10 3 0 7 6 20:29 Víkingur 10 1 0 9 2 9:48 Ekki er enn ákveðið hvenær úr- slitaleikur liðanna fer fram, né hvar hann verður leikinn. Nærfatnaður /f i* T"y Karlmanna fflúi og drengja, .X |1 fyrirliggjandi. L.HMULLER

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.