Vísir


Vísir - 11.09.1962, Qupperneq 6

Vísir - 11.09.1962, Qupperneq 6
6 Þriöjudagur 11. september 1962. VISIR boða verkfaH Hér sjást dómsmálaráðherrar Norðurlanda á fundinum í Reykjavík. Talið frá vinstri: Söder- hjelm frá Finnlandi, Hækkerup frá Danmörku, Bjami Benediktsson, Jens Haugland frá Noregi og Hermann Kling frá Svíþjóð. Refsidómar fá á öllum Norðurlöndi Róðstefna norrænna déms- mólaraðherra í Reykjavík Fyrir helgina var haldin í Reykja vík fundur dómsmálaráðherra Norð urlandanna og stóð ráðstefnan í tvo daga. Margs konar viðfangsefni voru rædd, en merkast má telja, að ráðherramir ákváðu að bera fram lagafrumvarp í öllum lönd- unum fimm um fullnustu refsi- dóma sem dæmdir hafa verið í öðru norrænu landi. Þá samþykktu þeir að koma á samvinnunefnd til þess að gera grein fyrir mögu- leikum á því að varðveita og auka norræna réttareiningu, fari svo að eitt eða fleirri Norðurlandanna verði aðiljar að Efnahagsbanda- lagi Evrópu. Eftir að störfum ráðstefnunnar var lokið á föstudaginn, bauð Bjarni Benediktsson dómsmálaráð herra þessum norrænu starfsbráeðr um sínum f siglingu og veiðiferð með varðsliipinu Óðni út í Faxa- flóa og drógu sumir ráðherrarnir þar væna þorska og þótti mikil og skemmtileg tilbreyting að þessu Að lokum sigldi Óðinn inn Hval- fjörðinn að hvalstöðinni og vildi þá svo heppilega til, að verið var að draga hval í land svo gestirnir gátu orðið áhorfendur að hval- skurði. Þeir sem ráðstefnuna sátu voru: Frá Danmörku: Hans Hækkerup ráðherra, Vilhelm Boas ráðuneytis stjóri, Poul Gaarden deildarstjóri og Niels Christian Bitch fulltrúi. Frá Finnlandi: Johan Söderhjelm ráðherra og Östén Elfving deildar- stjóri. Frá Islandi: Bjarni Bene- diktsson ráðherra, Baidur Möller ráðuneytisstjóri og Óiafur W. Stefánsson fulltrúi. Frá Noregi: Jens Haugland ráðherra, Rolv Ryssdal ráðuneytisstjóri og Arne Christiafisen deildarstjóri og frá Svfþjóð: Herman Kling ráðherra B. Húlt ráðuneytisstjóri og Tor- wald Hesser deildarstjóri. Félag prentmyndasmiða hefur sagt upp samningum frá og með 1. okt. n. k. Það er sú stétt manna sem gerir myndir „klyssjur“ og ef til verkfalls kemur, mætti ætla að öll myndagerð stöðvaðist og blöð og tíma rit og bækur yrðu mynda- laus. Svo er þó ekki þvf á undanförn- um árum hafa verið fluttar inn 4— 5 svokallaðar rafgrafsvélar sem eru flestar í eigu dagblaða. Þar sem ó- faglærðir menn geta unnið við þess ar vélar, fellur vinna þeirra ekki undir myndamótaiðn. Má því „grafa“ myndir á þessar vélar þótt myndamótasmiðir fari f verkfall. Balðið hefur náð í Braga Hinriks son, formann félags préntmynda- smiða og innt hann eftir áliti hans á þessum nýju vélum og möguleik- unum sem þær gefa. Segir hann svo: „Við uröum aðeins fegnir, þeg ar nýju myndamótavélamar komu. Þær losuðu okkur við blaðavinnuna, og gerir okkur kleift að snúa okkur að full- komnari og nákvæmari vinnu. Blaðavinna er ekki vönduð og frómt frá sagt ekki þau verk sem myndamótagerðir sækjast eftir“. Vinna þessar nýju vélar ekki eins vel og hinar fyrri? „Nei, þeirra vinna er hvergi r^ærri eins fullkomin, enda þarf ekki faglærða menn á vélarnar. Þær eru góðar undir vissum kring umstæðum og þær mega aðeins grafa í mjúkmálm“. Hverjar eru kröfur ykkar nú? „Við förum fram á 16% kaup- hækkun, meiri frí á laugardögum og fleiri veikindadaga, að mestu sömu kröfur og prentarar fengu fram“. £ Atta nkalegar ferðir Loftleiða Loftleiðir hafa nú sent frá sér vetraráætlun sina, sem á að gilda frá og með 1. nóvember. í henni er gert ráð fyrir átta flugferðum á viku frá Evrópu til Ameríku og átta flugferðum vikulega frá Ameríku til Evrópu. í flugferðum frá Evrópu er gert ráð fyrir að lenda í Reykjavík ým- ist kl. 11 að kvöldi eða kl. 12 á miðnætti og leggja af stað til Ame- ríku kl. hálf eitt eða hálf tvö. í flugferðpm frá Ameríku er gert ráð fyrir að lenda í Reykjavík ýmist kl. 6 að morgni eða kl. 8 og að leggja aftur af stað frá Reykjavík til Evrópu kl. 7.30 eða 9.30. , Til Evrópu verður flogið sem hér segir: Á sunnudögum kl. 9.30 verður flogið af stað til Oslo, Gautaborgar, Kaupmannahafnar og Hamborgar og komið aftur sömu leið til baka á mánudögum. Á mánudögum verður flogið beint til Luxemborgar og komið aftur sömu leið til baka um kvöldið. iÁ nánudögum verður flogið til Glasgow og London og komið aft- ur sömu leið til baka á þriðjudög- um. Á miðvikudögum verður flogið beint til Luxemborgar og komið aftur sömu leið til baka um kvöldið. Á miðvikudögum verður flogið til Osló, Kaupmannahafnar og Helsingfors óg komið aftur sömu leið til' baka á fimmtudögum. Á fimmtudögum verður flogið til Glasgow og Arhsterdam og kom- ið áftur sömu leið til baka á föstu- dögum. Á föstudögum verður flogið til Osló, Gautaborgar, Kaupmanna- hafnar og Hamborgar og komið aftur sömu leið til baka á laugar- dögum. Á laugardögum verður flogið beint til Luxemborgar og komið aftur um kvöidið. Slökkviliðið í Rvík var kallað tvisvar út í síðustu viku. Virtust báðir brunarnir vera allmiklir í fyrstu og útljtið allt annað en gott, en í bæði skiptin tókst að ráða niðurlögum eldsins á farsælan hátt. Ekki var þó komizt hjá tölu- verðum skemmdum. Sl. þriðjudag var slökkviliðið kvatt á Laugaveg 168. Var þar eld ur í risþaki hússins. Hafði hann komið upp í vinnustofu Raftækni hf. Tókst á stuttum tíma að bæla niður eldinn. Skemmdir urðu miklar. RUNAR í gærmorgun ki. 6,50 var slökkviliðið kallað út að Grjóta- götu 7. Það hús hefur verið kall- að „gamli hæstiréttur", en þar hef ur nú aðsetur heildverzlun G. Þor- steinsson & Johnson. Þegar að var komið, Iogaði glatt í kössum rétt fyrir utan húsið og hafði eldinn lagt inn í húsið og læstst í kjallara- herbergi. Var slökkt fljótlega en skemmdir urðu á húsi og innan- stokksmunum. Mönnum bar sam an um að þarna hefði tekizt giftu- samlega til, því hér er um timbur- hús að ræða. ðiiginingarsiéður ieigu Sigurðurd. Stjórn Nemendasambands Hús- mæðrakennaraskóla Islands gengst fyrir stofnun sjóðs við Húsmæðra- kennaraskólann til minningar um Helgu Sigurðardóttur, fyrrum skólastjóra. Höfuðmarkmið sjóðs- ins verður að styrkja stúlkur við nám f skólanum. Minningarkort verða afhent og gjöfum í sjóðinn veitt viðtaka í Bókaverzlun Isafoldar, Austur- stræti og í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. íslandsvinur lótinn ÞANN 27. ágúst andaðist Is- landsvinurinn Nils Hjalmar Bosson fyrrv. rektor við Tárna lýðskólann í Svíþjóð. Hann var 80 ára er hann lézt. Útför hans fór fram á laug- ardaginn. Bossom var einn fremsti leið- togi lýðskólahreyfingarinnar á Norðurlöndum og gætti áhrifa hans miklu víðar en í Svíþjóð. Hann fór m. a. f fyrirlestraferðir til Þýzka- lands, Hollands, Sviss, Frakk- lands, Kanada og Bandaríkjanna og barðist fyrir stofnun lýðháskóla. M. a. dvaldist hann nokkur ár í Frakklandi og veitti þar forstöðu lýðháskóla, sem hafði aðsetur í gamalli höll. Við skóla hans í Tárna stunduðu margir íslendingar nám. Var ís- lenzki höpurinn oft stærstur hinna útlendu stúdenta og minnast þeir hins látna rektors með hlýhug. Bossom rektor gafst einu sinni tækifæri til að heimsækja ísland og ferðaðist hann þá víða um landið og dvaldist f góðum hópi nemenda sinna. Hér birtist mynd af vélbátnum Gunnari Hámundarsyni, sem sökk við Langanes á laugardag eins og skýrt var frá hér í blaðinu í gær. Mannbjörg varð. Báturinn var orðinn 46 ára gamall og var kunnur hér við Faxaflóann, þar sem hann var gerður út í áratugi fyrst frá Sandgerði og síðar frá Reykjavík.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.