Vísir - 14.09.1962, Side 6
6
VÍSIR
Föstudagur 14. september 1962.
ísiííi . ■’N.ív l ái
Myndin er tekin í hádegisverðarboði forsætisráðherrahjónanna ísienzku í gær á Hótel Borg. Á myndinni eru frá vinstri
Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, Dr. Renana Ben-Gurion Lesheim, Bjarni Benediktsson, dómsmálaráðherra, frú Paula
Ben-Gurion, Ólafur Thors, forsætisráðherra, David Ben- Gurion, forsætisræðherra, frú Ingibjörg Thors.
Þeir gáfu heiminum Biblluna
Avarp Olafs Thors forsætisráð-
herra í hádegisverðarboði til heiðurs
Ben-Gurion, forsætisráðherra, í gær
Ólafur Thors forsætis-
ráðherra efndi til veizlu að
Hótel Borg í gær til að
fagna komu David Ben-
Gurions, forsætisráðherra
ísraels, og föruneyti hans.
' Forsætisráðherra mæltist
i svo við þetta tækifæri.
sú ást ein gat blásið Gyðingum í
brjóst þeirri hugdirfð og því ofur-
afli sem til þurfti að fsraelska
kraftaverkið gæti gerzt — sköpun
nýs lands á fornri grund, á tiltöiu-
lega mjög skömmum tíma. Sá lífs-
þróttur, sem svo geyst hefur farið,
hefur unnið aðdáun um heim alian.
Hugmyndin um endurheimt hins
forna ættlands hlýtur frá upphafi
að hafa verið eins konar skáldlegur
draumur. Ef ég ætti eitthvað að
nefna sem ber vott þessum stöðugt
logandi hugsjónaeldmóði, þá vil ég
minna á að þessi þjóð landnema úr
öllum áttum heims hefur tekið upp
og endurnýjað hina fornu tungu
og gert hana að ríkistungu sinni,
til þess að vera ekki aðeins allir
sömu ættar, heldur og ein þjóð,
verðug sinnar miklu arfleifðar,
landsins helga. Þetta;er ári efa ein-
.. . .. nb 6iJi9V. T3
stætt í sogu mapnkýnsins,.
Þjóð yðar, herra forsætisráð-
herra, hefur með fordæmi slnu enn
á ný minnt okkur alla á hvers
mannlegur máttur er megnugur,
þegar hann stjórnast af hetjulund
og mikilli hugsjón. íslenzka þjóðin
óskar þjóð yðar gengis og giftu-
ríkrar uppskeru af öllu hennar
mikla erfiði og sterku trú.
Við vitum að heiður okkar af
komu yðar er ekki sá einn, að
okkur hefur heimsótt forsætisráð-
herra Israels, heldur er hann fyrst
og fremst sá, að þér eruð jafn-
framt sá maður, sem öllum fremur
var hinn ósveigjanlegi vilji og hin
sterka og örugga hönd bak við
árangurinn um endurheimt hins
fyrirheitna lands. Þér voruð þjóð
yðar hið mikla fordæmi um þrek
og þrautsegju. Við hljótum að
spyrja hvort draumurinn mundi
hafa rætzt, án yðar. Nafn yðar mun
geymast I sögunni meðal þeirra
leiðtoga allra tíma, sem skópu þjóð
ísraels örlög.
Megi Guð gefa yður og frú Ben-
Gurion langt og farsælt líf, og þjóð
Israels mikla framtíð.
Við erum litlar fsjóðir, sem
berjast við óblíða náttúru
Avarp David Ben-Gurioas i
veiziu forsætisráðherro i gær
Herra forsætisráðherra og frú
Ben-Gurion og aðrir háttvirtir
gestir-
Heimsókn mikils leiðtoga af
Gyðingaþjóð, sem hingað kemur frá
Jerúsalem, hlýtur að vekja sterkar
tilfinningar I Islenzkum hjörtum.
Við vitum allir hvað okkar þjóð,
eins og aðrar þjóðir vestrænna sið
menningar, á að þakka andlegri
forustu hinna miklu trúarbragða-
leiðtoga af stofni Israels.
Þeir gáfu heiminum Biblíuna,
trúna á einn Guð skapara hlmins
og jarðar. Þeir urðu fyrstir til þess
að tala um vilja Guðs, og um
skyldu mannanna við Guð sinn.
Vizka þeirra og andans afl varð
leiðarljós mannkynsins frá glund-
roða bg villu til siðlegrar vitundar
og siðlegra boðorða og lögmáls.
öldum saman var vart sá maður
á íslandi frá verbúðum fiskimanna
til innstu bæja I dalnum, aö líf
hans væri ekki háð sterkum áhrif-
um frá Bibllunni, eða prédikurum
og skáldum innblásnum af kenn-
ingum hennar.
Og alla þá hughreysting og and-
lega uppljómun, sem trúarbrögðin
fá veitt mönnum, hafa Islendingar
I aldalöngum örðugleikum rpátt
þakka þeim raustum sem til mann-
kynsins höfðu talað frá landinu
helga.
Við Islendingar hugsum oft um
sögu okkar og forfeður. Við skilj-
um því vel þá ást til ættlandsins,
sem nærist af miklum minningum
og af fornri frægð. Við skiljum að
í hádegisverði þeim, sem
Ólafur Thors forsætisráð-
herra hélt í gær til heiðurs
David Ben-Gurion for-
sætisráðherra ísraels að
Hótel Borg, flutti heið-
ursgesturinn eftirfarandi
ávarp:
Herra forsætisráðherra og frú
Thors, tignu gestir, konur og karl-
ar!
Það er oss mikill sómi að vera
hér gestir ríltisstjórnar íslands. Það
er sérstök sæmd, herra forsætis-
ráðherra, að vera gestur yðar I
þessu virðulega samkvæmi, því að
þér voruð, að ég held, fulltrúi
lands yðar á allsherjarþingi Sam-
einuðu þjóðanna árið 1947, og
greidduð atkvæði við það sögulega
tækifæri með þvl að stofnað væri
þjóðrlki Gyðinga.
Æ síðar og til þessa dags hafa
samskipti landa vorra verið náin
og einlæg.
Island og ísrael eiga líka margt
sameiginlegt. Þér hafið þegar getið,
herra forsætisráðherra, sameigin- j
legra erfða vorra, bókar bókanna,
Biblíunnar.
Þjóðir vorar eiga báðar að baki
langa sögu menningar og mennta.
Þær eru báðar einlæjk. a trúaðar á
lýðræðið, og hafi þing yðar, Al-
þingi, veric starfandi síðan 930
án hlés að kalla, má geta þess, að
vér höfum fyrir skemmstu endur-
reist þing vort, Knesseþ, eftir
tveggja alda hlé.
Vér erum litlar þjóðir, sem eiga
I höggi við harða náttúru og leit-
ast við að nýta allar auðlindir til
fulls.
Hvorug þjóðin óskar annars en
að mega vinna störf sin í friði.
Vegna þessarar sameiginlegu for
tlðar, vegna þessara sameiginlegu
verðmæta er einungis eðlilegt, að
sambúð vor hafi þróazt vel, ekki
einungis á sviði stjórnmála heldur
og, að því er snertir viðskipti og
menningu. Ég fagna því sérstak-
lega, að hafin skuli stúdentaskipti.
Þessi góðu samskipti hafa hlot-
ið aukna, formlega viðurkenningu
með því, að sendimenn þjóða vorra
hafa verið hækkaðir I ambassador
tign.
Herra forsætisráðherra! 1 |
í hinu fagra ávarpi yðar til
lands vors, lögðuð þér sérstaka á-
herzlu og mjög markvisst á þre-
falt gildi þess, að vér höfum snúið
aftur til Zions — aftur er saman
safnað fólkinu, sem dreift var um
hnöttinn og það steypt I eina þjóð.
Aftur hefir verið unnið landið,
sem var illa leikið; látið hirðu-
laust og fór í auðn um aldir, með
því að endurvakið hefir verið hið
forna frjómagn moldar þess.
Endurreisn tungunnar, hebersku,
tungu biblíunnar, sem lengi hafði
legið í dvala.
Því fer fjarri, að hlutverki voru
sé lokið, því að þeir milljón inn-
flytjendur, sem vér höfum tekið
við frá 1946, hafa ekki verið felld-
ir fullkomlega f þjóðarheildina fél-
agslega, efnahagslega eða menning
arlega, fleiri eru enn að koma og
enn fleiri væntanlegir.
Sex tlundu hluta lands vors frá
Beersheba, heimili' Abrahams, ætt-
föðurins, suður á bóginn til Eilath,
hafnarborgar Salomons konungs,
eru enn að kalla algerlega óyrkt
og óbyggð.
Vér teljum það samt skyldu
vora og forréttindi að láta aðrar,
ungar þjóðir, sem skammt eru á
veg komnar, njóta hvers konar
reynslu vorrar, ef þær eiga við
sams konar vandamál að glíma
og þau, er vér höfum orðið að
ráðast til atlögu við.
Um þessar mundir eru I Israel
um 1500 nemar, karlar og konur,
frá þvílíkum löndum, sem sækja
námskeið eða njóta verklegrar
þjálfunar í landbúnaði, í sam-
vinnustarfi og tæknilegum efnum,
og um það bil 200 ísraelskir sér-
fræðingar eru starfandi I 32 luis-
munandi löndum I fjórum áífum.
Ég er hrærður af þvf, herra for-
sætisráðherra, hve fallega þér haf-
ið talað um mig. En endurkoman
til Israels er ekki eins manns verk
eða fjölda einstaklinga. Hún er
uppskeran af vilja og atorku Gyð-
ingaþjóðarinnar sem heildar, er
hún hefir verið innblásin óbilandi
trú á orð spámanna Biblfunnar.
Brautryðjendur fóru fyrir og fara
enn á undan, áður en tjöldum er
slegið, en tala þeirra er mikil og
vaxandi, og sem heild er þjóðin
fús til að færa þær fórnir, sem
nauðsynlegar eru til þessa stór-
fenglega átaks.
Ég er sannfærður um, að vér
munum finna hinn sama anda
brautryðjandans I brjósti þjóðar
yðar og vér hlökkum til fram-
halds dvalar vorrar hér.
Herra forsætisráðherra, tignu
gestir, konur og karlar, leyfið mér
að lyfta glasi mínu og drekka yður
til heilla, þjóð yðar til velfarnar og
til góðrar sambúðar Islands og
Israels.
Skál!
Aðalfundur presta-
félags suðurlands
Aðalfundur Prestafélags Suður-
lands var haldinn að Múlakoti I
Fljótshlfð um síðustu helgi. í sám-
bandi við fundinn messuðu að-
komuprestarnir á nærliggjandi
kirkjum. Umræðuefni fundarins
voru: 1) Islenzka kirkjan sem lif-
andi starfsheild, og var sr. Sveinn
ögmundsson framsögumaður. 2)
Fermingarundirbúningur, fram-
sögumenn: próf. Jóhann Hannes-
son, sr. Magnús Guðjónsson og sr.
Gunnar Árnason.
Fundinum lauk á mánudag með
guðsþjónustu að Stórólfshvoli.
Stjórn félagsins var endurkjörin,
en hana skipa: sr. Sigurður Páls-
son, formaður, sr. Sveinn Ög-
mundsson, gjaldkeri, og sr. Garð-
ar Svavarsson, ritari.
T
í næstsíðasta tbl. Vísis, I grein-
inni „Mánudagskvöld í Þórscafé“,
var línubrengl I 2. og 3. dálki á 10.
síðu.
Málsgreinarnar eiga að hljóða
þannig:
a) „Já. guðlaun“, segir greindar
legri tvímenningurinn og sýgur
upp f refið með áfergju og dæsir
eins og bókasafnari I fornsölu,
sem þiggur í nefið af seljandanum
eða eins og grúskari að fundinni
langsóttri heimild á bókasafni.
b) „Hvað eru blaðamenn að gera
hér“, æpir ölvuð kona úr Grím-
staðarholtinu með minkaskott um
hálsinn. Hún er með brúnsanserað
ar neglur. Hún hefur hása rödd
eins og do'kkjukona úr austur
hluta Lundúnaborgar.
Þá urðu og þau mistök, að mynd
in af plastbelg, sem var gerður
upptækur I Þórscafé, var'prentuð
öfug: stóð á höfði.