Vísir - 14.09.1962, Side 16
Föstudagur 14. september 1962.
► Yfir 30 manns hafa drukknað í
flóðum á eyjunni Sumba, sem er
ein Indonesíueyja.
► Bandaríkjaþing hefir samþykkt
að komið skuli upp minnismerki
um Woodrow Wilson, forseta
Bandaríkjanna frá 1912 — 20.
Aðeins 30 skip
eftir á síUveiðum
Enn veiðist síldin og enn
slá þeir metin. Víðir II
veiddi 700 mál og tunnur í
gærdag og er aflahæstur í
augnablikinu. 19 skip önn-
ur fengu afla í gær en í
morgun var veður óhag-
stætt og engin veiði. Nú
eru ekki nema um 30 bátar
eftir nyrðra af þeim 225
sem á síldveiðum hafa ver-
ið í sumar.
Hafa skipin óðum verið að tín-
ast hingað suður undanfarið og ef
bræla virðist ætla að gera vart við
sig aftur, eins og útlit var fyrir
í morgun, má búast við að flest
þeirra skipa sem enn eru við veið-
ar haldi heim á leið.
í gær var sagt frá því hér í blað
inu að Höfrungur II. hefði hætt
veiðum, en það mun ekki vera rétt,
' Framhald á bls. 5.
¥®gssra!i8ndlíSBtir
Vísir átti í morgun stutt sam-
tal við Hallgrím í Togaraafgreiðsl-
unni og spurðist fyrir um landanir.
Sagði hann að í gærmorgun ■
hefði Nprfi iandað um 300 tonn-
um af karfa eftir 17 dága veiði-
ferð við V-Grænland. I morgun
kómu tveir togarar til Rvíkur,
þeir Marz og Fylkir. Marz af veið
um við V-Grænland, en Fylkir af
heimamiðum. Ekki vissi Hallgrím
ur um afla þessara togara.
Áskrifendahappadrætti Vísis
25. þessa mánaðar verður dregið í áskrifenda-
happdrætti VÍSIS. Eru allir, nýir og gamlir áskrif-
endur, þátttakendur í happdrættinu. Vinningurinn
verður að þessu sinni gólfteppi frá Axminster
fyrir 10.000 krónur. Má velja teppið að eigin vali.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að nokkuð hefur
dregizt að segja frá happdrættinu sökum prentara-
verkfallsins.
6-manna nefndin sem náði samkomulagi
llSlll! C3 m j
^ÍmrMrr
Maímeð fullfermi
af Nýfundnalandsmiðum
Talið frá vinstri: Sveinn
Tryggvason framkvæmda-
stjóri framleiðsluráðs Land-
búnaðarins, Einar Ólafsson
bóndi Lækjarhvammi, Sverr-
ir Gíslason bóndi í Hvammi,
Torfi Ásgeirsson hagfr. for-
maður nefndarinnar, Klemenz
Tryggvason hagstofustjóri
ritari, Einar Gíslason málara
meistari, Sæmundur Ólafsson
forstjóri og Eðvarð Sigurðs-
son formaður verkamanna-
félagsins Dagsbrúnar.
I gærmorgun kom til Hafnar-
fjarðar togarinn Apríl með full-
fermi af karfa, eftir 15 daga
ferð á Nýfundnalandsmið, þar
af sex daga á veiðum. Einnig
er von á Maí n. k. mánudag
til Hafnarfjarðar með um 400
tonn af karfa af Nýfundnalands
mlðum.
Hinir togarar Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar Júni og Ágúst eru
báðir á veiðum. Júní er nýfarinn
og ekki enn vitað um hvort hann
verður á heimamiðum, eða við
Grænland. Ágúst er hins vegar á
heimamiðum.
Seldu falsaðar ávís-
Ávlsanafalsararnir, sem Vfsir
skýrði í gær frá að hefðu verið
handteknir vestur á Snæfellsnesi
hafa nú orðið að svara til saka
fyrir rannsóknarlögreglunni í
Reykjavík og stóð rannsókn yfir
Iengi dags í gær.
^/VSA/WWSA/WWWVW'
Það hefur komið í ijós við rann-
sókn málsins að þrír menn eru
viðriðnir þessar ávísanafalsanir,
sem eru býsna umfangsmiklar, því
samtals nemur fjárhæðin um 20
þús. kr. sem þessum mönnum hef-
úr tekizt að svíkja út með fölsuð-
um ávísunum, og munu þó ekki
öll kurl vera komin til grafar í
þeim éfnum ennþá.
Þeir tveir piltar, sem handteknir
voru vestur á Snæfellsnesi í fyrra-
dag hafa þegar játað á sig verkn-
aðinn, er annar þeirra 21 árs gam-
all, Ingvar Róbert Valdimarsson
að nafni, en hann hefur áður ver-:
ið dæmdur fyrir misferli. Hinn
pilturinn er aðeins 16 ára gamall i
og hefur ekki komið við sögu lög-
reglunnar áður. Þriðji maðurinn,
sem með þeim hefur verið við
þessar ávísanafalsanir, hefur ekki
verið handtekinn ennþá, en lög-
reglan hefur verið að leita hans.
Ávísanirnar sem piltarnir hafa
falsað eru frá 400 krónum og upp
í 3500 krónur. Hafði þeim tekizt
að stela stimplum frá fyrirtæki
einu hér í bænum og ávísanahefti
og það auðveldaði útgáfu ávísan-
anna og sölu þeirra.
fflaría faria
tiE Parísar
María Guðmundsdóttir, feg-
urðardrottning íslands 1961,
fór í morgun með flugvél til
London, en hún hefur dvalist
hér heima í tæpan hálfan mán-
uð, eftir að hún kom heini frá
Framh. á bls. 5.
Haustslátrun hafin
Haustslátrun er nú
hafin og eftir þeim upp-
lýsingum sem Vísir hef-
ur aflað sér hjá Fram-
leiðsluráði Landbúnað-
arins mun eitthvað fleira
fjár verða slátrað nú í
haust, en í fyrra haust,
en þá var slátrað 822
þúsund fjár. Fjöldi slát-
urhúsa verður svipaður
og í fyrra. '
Vísir hafði einnig í morgun
samband við Sláturfélag Suður-
lands og spurðist fyrir um það
hjá framkvæmdarstjóra þess
hvað félagið myndi slátra mörgu
fé.
Sagði hann slátrun hjá félag-
inu hafa hafizt f gær og stæði
hún langt fram í október. Alls
myndi verða slátrað hjá félag-
inu 150 þúsund fjár í sjö slátur-
húsum félagsins. Væri það um
tíu þúsund meira, en í fyrra
haust.
Aðspurður hvernig sumar-
slátrun hefði gengið sagði hann
að hún hefði gengið ágætlega.
SÍátrað hefði verið færra fé og
sala væri ekki mjög mikil. Staf-
aði það bæði af háu verði á
kjötinu og eins að mikið væri
eftir af frystu kjöti, sem hefði
geymzt vel.