Vísir - 18.09.1962, Qupperneq 5
Þriðjudagur 18. september 1962.
5
Óttust ofveiði ...
Framhald af bls. 1.
140—150 þúsund. Annars geta
menn reiknað það sjálfir. Heild-
araflinn er um fjögurra og hálfr
ar milljónar virði og af því er
34.5' prósentum skipt í ellefu
staði. Aukahiuti borgar svo út-
gerðin.
— Hvers vegna hættuð þið
• veiðum?
— Síldin var komin 80 — 90
mílur út í haf. Auk þess var
birta farin að styttast verulega.
Þegar hún fæst aðallega í ljósa-
skiptunum er nokkuð langt að
láta reka allt myrkrið, sem er
orðið yfir átta tímar. Auk þess
er þarna mjög glær sjór og síld-
in á mikilli hreyfingu og mjög
stygg.
— Hverju viltu þakka þennan
mikla afla?
— Fyrst og fremst þeim full-
komnu tækjum sem eru f bát-
unum. Síldin óð mjög lítið og
þegar hún gerði það voru torf-
urnar yfirleitt mjög þunnar. Það
sem skiptir mestu máli er að
kunna nógu vel á öll tækin í
bátnum. Það er einnig ómetan-
legt að hafa samhentan mann-
skap eins og ég hef. Þá er það
meginatriði að vera rétt stað-
settur, sem byggist að talsverðu
leyti á heppni og svo er nauð-
synlegt að fylgjast vel með öll-
um fréttum.
— Hvað getið þið veitt síld-
ina djúpt?
— Hún þarf að vera uppi á
8 — 10 faðma dýpi. Annars höld-
um við henni ekki inni á asdic-
tækjunum. Þá er hún komin það
djúpt að geislinn fer yfir hana.
Annars getum við veitt hana
allt niður á 18 faðma dýpi.
— Notuðuð þið sömu nótina
í allt sumar?
— Fyrst notuðum við sumar-
nótina, en seinni partinn notuð-
um við haustnótina. Þá var síld-
in orðin það smá að hún á-
netjaðist og varð þá að fara til
lands og hrista úr nótinni. Þess
voru dæmi að menn yrðu að
hrista úr nótinni allt að 200
mál. Sennilega er þetta skýr-
ingin á því að Norðmennirnir
hættu fyrr en við. Munurinn á
þessum tveim nótum er sá, að
á sumarnótinni eru 32 möskv-
ar á alin, en 44 á alin á haust-
nótinni.
— Telur þú: ekki hættu á of-
veiði þegar síldin er svona smá?
— Persónulega álít ég að
nokkur hætta sé á henni.
Síldin var að mestu leyti af
millistærð og allt niður í sar-
dínur , allan seinni hluta sum-
arsins. Það er leiðinlegt að vera
að drepa svona smátt, en maður
hugsar sem svo, að ef maður
gerir það ekki sjálfur gerir bað
einhver annar. Svo eru alltaf
torfur með stórri síld inni á
milli.
— Eru bátamir mikið í hóp-
um?
— Það er mjög algengt. Það
er nærri hægt að bóka það, að
ef einn finnur síld, er önnur
torfa nálægt. Yfirleitt láta menn
alltaf vita ef þeir lenda í síld.
Áður fyrr voru menn oft að
pukrast með þetta, en tíðarand-
inn er ekki þannig núna. Ef
maður veit af bát nálægt eða
einhverjum sem maður þekkir,
lætur maður þá vita, og þá
heyrir það allur flotinn.
— Þegar nokkrir bátar eru
efstir, með mjög svipaðan afla,
verður þá ekki persónuleg
keppni um að verða hæstur?
— Meðan á þessu stendur
reynir hver að veiða eins og
hann getur. Maður er yfirleitt
ekkert að hugsa um hvað aðrir
veiða. Það er oft meiri spenn-
ingur hjá þeim sem ekki eru
við þetta en okkur, hver verð-
ur hæstur. Annars munar þetta
svo litlu á hæstu bátunum að
V'tSlR
CMympíiisfcákifiótið:
ÍSLAND vaitti /
fyrstu umferð
eitt kast getur ráðið úrslitum.
Það er fyrst og fremst gaman
þegar vel gengur.
— Hverju telur þú að megi
’opeta við af tækjum til að gera
veiðina auðveldari?
— Ef maður krefst alls, þá
þyrfti dælu, til að dæla síldinni
upp í skipið. Það hafa verið
gerðar tilraunir með þetta á
Böðvari og það er Ijóst að það
er hægt. Það myndi flýta mikið
fyrir og auk þess þyrfti ekki
að draga nótina eins mikið sam-
an áður en farið er að taka
síldina upp í skipið, sem getur
verið til mikilla þæginda, þegar
um stór köst er að ræða.
— Hvað takið þið næst fyrir?
— Fyrst er að hreinsa upp
bátinn og mála hann og síðan
bíðum við eftir haustsíldinni. Ef
hún verður á svipuðum tíma og
venjulega má búast 'við henni
seinni partinn í október. Annars
mætti segja að nú séum við
búnir að vinna fyrir sköttunum
og ætlum nú að snúa okkur að
því að vinna fyrir mat.
Verður Lídó—
Framh. af 16. síðu:
veitingastaðar hér á landi x dag,
bæði hvað húsakynni snertir og
tónlist. Framkvæmdastjóri Lídó
hefur sýnt mjög mikinn og góð-
an áhuga fyrir þessu og höfum
við rætt við hann nokkrum
sinnum um þetta mál.
— Og hvemig yrði rekstrin-
um háttað?
— Við stefnum að því að
i geta selt veitingar á vægara
verði, og það þarf varla að taka
það fram að vínveitingar verða
engar.
Venjulegar dansskemmtanir
myndu verða haldnar um heig-
ar, en hina dagana aðrar
skemmtanir. Það á sem sé að
nota húsið alveg fyrir æskuna.
Einnig tel ég mjög heppilegt
að skólarnir héldu þar árshátíð-
ir sínar. Þannig mætti nefna
ótal mörg dæmi. Einnig kemur
til greina að setja upp ýmiss
konar leiktæki.
— En hvað fyrir unglinga
yngri en 16 ára?
— Þar er líka eitt vanda-
málið, Við erum alltaf að reyna
að stefna að því að láta ýmiss
konar tómstundastarfsemi og
aðra skemmtistarfsemi ná i æ
ríkara mæli til skólanna.
r
ilmngur efcfci •••
Framh. af 16. slðu:
starfsmanninn í morgun og spurði
hann hvernig gengið væri frá
þeim spjöldum sem borizt hafa.
Sagði hann að frágangurinn væri
á mörgum spjöldum alveg hroða-
legur og tæki langan tíma að ráða
fram úr sumum. Sagði hann að
íslendingar virtust ekki geta gefið
sér tíma til þess að lesa Ieiðar-
vísa
Sagði starfsmaðurinn að siðustu,
að ekki væri öll von úti enn þá
Ui.i það, að talsvert magn gæti
komið til skila enn þá. Vitað væri
að þátttaka hefði verið nokkuð
mikil en menn hefðu trassað það,
að skila spjöldunum. Um Ieið og
þeir skila spjöldunum vel útfyllt-
um liðsinna þeir þessu mikilvæga
máli og jafnframt eiga þeir von
á að hreppa fimm þúsund króna
verðlaun eða þúsund króna verð-
laun.
Áskr'ftasími
Vísis er
1 16 60
Fimmtánda Ólympíuskákmótið
var sett 1 borginni Varna á
Svartahafpstrþnd Búlgaríu sl.
laugai-dag og fyrsta umferðin
tefld á sunnudagirin. Friðrik Óláfs-
son, sem er fararstjóri íslenzku
sveitarinnar á mótinu og teflir á
fyrsta borði fyrir hönd íslands,
mun senda Vísi fréttir af þessu
skákmóti, en því lýkur ekki fyrr
en f næsta mánuði.
í forkeppni lentu eftirtalin lönd
í riðli með íslandi, og eru þau hér í
töfluröð: Frakkland, Júgóslavía,
Tékkóslóvakía, Luxemborg, Finn-
land, Kýpur, Holland, Uruguay,
Pólland og loks ísland.
í fyrstu umferð tefldu íslend-
ingar við Frakka og fóru leikar
þannig, að íslenzka sveitin vann
með 2i/2 gegn 1 y2. Friðrik Ólafs-
son vann Bouteville, Arinbjörn
Beinin efcfcerf
rnnnsóknnreffni
Nýlega komu upp mannabein
austur í Þorlákshöfn, þegar verið
var að vinna þar að hafnarfram-
kvæmdum. Vitað er, að þarna er
ga.nall grafreitur, og er þetta í
þriðja sinn, sem bein koma þarna
upp, en f þetta sinn voru grafnar
upp margar beinagrindur. Morgun-
blaðið birti í morgun ítarlega frétt
um þennan beinafund, og kemur
þar fram meðal annars, að skips-
strand hafi orðið þarna fyrir fram-
an árið 1718, og hafi þá drukknað
sex manns. Einnig munu vera til
munnmælasögur um það, að síðast
hafi verið jörðuð þarna kona árið
1817.
1 sambandi við þennan beina-
fund sneri Vísir hér til dr. Krist-
jáns Eldjárns þjóðminjavarðar og
innti hann eftir því, hvort bein
þessi yi-ðu rannsökuð á vegum
Þjóðminjasafhsins. Þjóðmin!avörð-
ur bjóst ekki við, að safnið sendi
neinn mann til að rannsaka beinin,
þarna væri um gamlan grafreit að
ræða, og kvaðst hann efast um,
að beinin hefðu neitt sögulegt
gildi.
Guðmundsson vann Bergrasser,
Jón Pálsson tapaði fyrir Thielle-
ment en Björn Þorsteinsson gerði
jafntéfli við Mora.
Önnúr úrslit í riðlinuirf úrðu þaú
að Júgóslavía vann Pólland með
21/2 gegn ý2, Tékkóslóvakía vann
Uruguay með 3 y2 gegn J/2, Hol-
land vann Luxembourg með 3 gegn
1 og Finnland vann Kýpur á öllum
4 borðum.
ECefiovíkurvegíurinii
Fiamhald af 16. síðu:
Auk þessa 5 kílómetra kafla, sem
steypa á í haust, hefur verið undir-
byggður 7 kilómetra kafli af Kefla-
víkurvegi suður af Hvaleyrarholti.
1 sumar var einnig byrjað að undir-
byggja Keflavíkurveginn sunnan
frá, á 6 kflómefra kafla, þannig
að verið er að vinna að Keflavíkur-
vegi á samtals 18 kílómetrum, en
það er nær helmingur leiðarinnar,
sem er 38 kílómetra löng. Það á
að steypa veginn alla leið til Kefla-
yíkur sem kunnugt er.
í gær skýrði Vísir frá bifreiða-
árekstri, sem varð um helgina
á Akureyri, en þar stórskemmd-
ust tvær bifreiðir á mótum
Byggðavegar og Þingvallastræt-
is. Áreksturinn varð syo harður
að annarri bifreiðinni hvolfdi og
sýnir myndin hvar hún lá með
hjólin upp í loft.
Ljósm. Gunnl. P. Kristinsson.
áÍSsherjarþingið •••
Framhald af bls. 1.
herjarþingsins að þessu sinni verði
kosinn hinn hvíthærði og. hvít-
‘•skeggjaði Zafrullah Khan frá Pa-
kistan. Hann á erfitt verk fyrir
höndum í forsetastól, því að nú er
meðlimafjöldinn á þinginu orðinn
svo mikill, að það má nú heita
óhjákvæmilegt að takmarka ræðu-
tíma fulltrúanna, en hætt er við
að sumir taki þvf mjög illa, þvf
að litlu ríkin vilja að rödd þeirra
heyrist á alþjóðavettvangi.
Þá kemur eitt vandamál upp á
þessu þingi, að velja þarf nýjan
framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð
anna. Eini maðurinn sem virðist
nú hafa meiri hluta fylgi er núver-
andi framkvæmdastjóri U Thant,
en óvíst er hvort hann gefur kost
á sér, þar sem hann er mjög von-
svikinn yfir hve aðildarríkin eru
treg að greiða framlög sín til SÞ.
svo að samtökin eru á barmi gjald-
þrots. Og þó UThant næði kjöri
er hætt við að Rússar beiti neit-
unarvaldi til að hindra að hann
verði formlega endurskipaður í
embættið.
Bæjarútgerð Hafnofjarðai
óskar að ráða tvær
SKRIFSTOFUSTÚLKUR
helzt vanar.
V2 dags vinna
Stúlka óskast til starfa á skrifstofu hálfan
daginn. Unglingsstúlka kemur til greina. Vél-
ritunarkunnátta nauðsynleg. — Umsóknir
sendist afgreiðslu blaðsins fyrir fimmtudag,
merktar — Skrifstofustörf.
1
I