Vísir - 18.09.1962, Page 16
VISIJR
Þriðjudagur 18. september 1962.
Háskólafyrirlest-
ur próf. Hurwitz
Prófessor dr. jur. Stephan
Hurwltz, umboðsmaður danska
þjóðþingsins, flytur fyrirlestur í
boði Háskóla fslands miðviku-
daginn 19. sept. n. k. kl. 5,30
e. h. i hátíðasal Háskólans. Fyr-
irlesturinn nefnist ,,Om den nor
diske ombudsmandsinstitution“,
og verður þar einkum fjallað
um aðdraganda að stofnun em-
bættis umboðsmanns danska
þjóðþingsins og reynsluna af
því. Umboðsmaðurinn hefur
einkum það starfssvið að rann-
saka kvartanir og kærur borg-
ara og annarra aðila um mis-
fellur í starfi opinberra starfs-
manna.
Prófessor Hurwits er einn
kunnasti lögfreeðingur á Norð-
urlöndum, og hér á landi er
hann ekki sízt kunnur vegna
þess að kennslurit hans í refsi-
rétti hafa verið notuð hér við
Háskólann um Iangt árabil.
Aðgangur að fyrirlestrinum
er öllum heimill.
VISIR á Akureyri
Afgreiðsla vísis á Akureyri er hjá
Nýju sendibílastöðinni við verzlun-
ina Höfn og er síminn 2395. Nýir
áskrifendur, sem fá blaðið ekki með
skilum, hringi f síma afgreiðslunn-
ar.
Byrjað að steypa Keflavíkurveginn
Það átti að byrja að
steypa nýja Keflavíkur-
veginn í morgun og hefst
þar með nýr kapítuli í
þessari miklu og brýnu
vegaframkvæmd. — Vísir
hafði tal af Snæbirni Jón-
assyni verkfræðingi í morg
un, en hann hefir yfirum-
sjón með þessu verki af
hálfu Vegagerðar ríkisins.
Veðurútlitið var þá ekki
hagstætt fyrir steypuverk
en Snæbjörn vonaðist til
að verkið gæti hafizt
seinna í dag.
Ætlunin er að steypa fimm kíló- j
metra langan kafla í haust. Byrjað |
er við Engidal, á móts við Álfta-'
nesveg, og verður vegurinn nýi of- j
an við Hafnarfjörð og suður fyrir
Hvaleyrarholt steyptur á þessu I
hausti. Þó verður hlaupið yfir j
nokkur hundruð metra langan
kafla hjá petbergslæknum í Hafn- j
arfirði. Á þeim kafla verður veg- j
inum hleypt upp, þannig að göng
myndast undir honum fyrir um-
ferðina meðfram læknum milli,
Hafnarfjarðarkaupstaðar og efri1
hluta Garðahrepps. Þetta mann-
virki verður allsérstætt, miðað við
hérlendar aðstæður, en þess háttar
lausn á umferðarvandamálum er
algeng erlendis þar sem umferð
er margfalt meiri.
íslenzkir aðalverktakar hafa tek-
ið að sér .að steypa þann 5 kfló-
metra kafla af Keflavíkurvegi, sem
byrjað verður á í dag. Þeir hafa
nýja steypustöð og nýjar stórvirk-
ar steypuvélar, og standa vonir til
að verkið gangi greiðlega.
Framhald á bls. 5.
Umferðarkönnunin:
Árangur ekki nógur
Eftir þeim fregnum að
dæma, sem Vísir hefur
fengið hjá umferðarkönn-
uninni hafa aðeins rúm sex
þúsund bréf endurheimzt
af þeim tæpum þrettán
þúsund, sem send voru út.
Fimm dagar eru nú liðnir
síðan könnunin fór fram
og má því ætla að megnið
af þeim spjöldum, sem fyllt
voru út, séu komin til um-
ferðarkönnunarinnar !Má
því draga þá ályktun, að
könnunin beri ekki þann
árangur, sem margir gerðu
sér vonir um.
Mikið starf og strit.
Eins og skýrt hefur verið frá i
blöðum og útvarpi var könnunin
mjög vel undirbúin og vann fjöldi
manns bæði við undirbúning og
framkvæmd.
Eftir ofangreindum fregnum að
dæma virðist ekki öllum hafa ver-
ið það ljóst, að hér er um mjög
mikilvægt mál að ræða, og hefðu
allir sem vetlingi gátu valdið átt
að reyna að ljá þvf lið.
Nú vinna átta manns við að
vinna úr þeim spjöldum, sem bor-
izt hafa og átti Vísir tal við einn
Framhald á bls. 5.
Askrifendahappdrætfið
Þapn 25. þessa mánaðar verður dregið í áskrifenda-
happdrætti Vísis. Vinningurinn að þessu sinni verður gólf-
teppi frá gólfteppaverksmiðjunni Axminster, sem hefur
verzlanir að Laugavegi 45 B og Skipholti 21, en verk-
smiðjan er að Grensásvegi 8.
Allir áskrifendur Vísis, sem hafa greitt áskriftargjöld
skilvíslega, taka þátt í happdrætti þessu og eru áskriftar
seðlamir númeraðir.
Fyrstu réttirnar
I gær voru fyrstu réttirnar einn fjárbóndinn, Ágúst Krist
hér sunnanlands. Voru það jánsson frá Miðengi.
Kaldárseisréttir fyrir sunnan Þeir fóru í göngur á sunnu-
Hafnarfjörð og sækja þangað da8inn °S smöluðu stórt svæði
„ _ ^ . alla leið sunnan frá Vatnsleysu-
Hafnfirðingar og Garðhreppmg- strönd Qg Brennisteinsfjölium
ar. Mikið fjölmenni var f rétt- 0g var komið niður með Heiga-
unum og sést hér á myndinni felli.
AA^^VWVWWWVWVWWWWWWWWWVA/NA
LIDO fyrír æskufólk?
Æskulýðsráð Reykja-
víkur hefur sent borgar-
ráði bréf og farið fram á
fjárstyrk til reksturs á
einu af samkvæmisstöð-
um borgarinnar ein-
göngu fyrir fólk á aldr-
inum 16 til 21 árs.
Vísir átti því í morgun stutt
samtal við framkvæmdastjóra
Æskulýðsráðs, sr. Braga Frið-
riksson, og spurðist fyrir um
mál þetta.
— Hér er um mikið nauð-
synjamál að ræða. Eins og mál-
in standa í dag er hér ekkert
veitingahús, sem hefur það eitt
að markmiði að skemmta æsku
fólki og ég held að þörfin fyrir
slíkt sé að verða einróma að
áliti alménnings og ekki hvað
sízt æskufólksinsáþessumaldri.
Við höfum því skrifað oorgar-
k ráði og borgarstjóra bréf og
farið fram á fjárstyrk í þessu
skyni. Mun mál þetta koma
fyrir borgartáð innan skamms.
— Hvaða hús kemur helzt
til greina?
— Húsið verður að fylla þær
kröfur sem gerðar eru til góðs
Framhald á bls. 5.
I