Tölvumál - 01.02.1995, Blaðsíða 36

Tölvumál - 01.02.1995, Blaðsíða 36
Stjórnendur sem hlusta á rödd skynseminnar hafa þessa fimm punkta á bak við eyrað þegar þeir velja tölvukerfi! Viðskiptahugbúnaðurinn FJÖLNIR frá Streng hf. er nú í notkun hjá meira en 700 fyrirtækjum hér á landi. Fjölmargir aðilar keyra FJÖLNI á HP 9000 / RISC / UNIX tölvur frá Hewlett Packard. Þeirra á meðal eru Bílanaust, Pharmaco og Héðinn. Viðskiptahugbúnaðurinn CONCORD/XALfrá Hug hf. er í notkun hjá fjölda íslenskra fyrirtækja, meðal þeirra eru Samskip og íslenskir aðalverktakar. Informix gagnagrunnsmiðlari er nú þegar í notkun hjá á fjórða tug fyrirtækja og stofnana á íslandi sem keyra HP 9000 / RISC / UNIX tölvur frá Hewlett Packard. Oracle gagnagrunnsmiðlari fyrir OPIN KERFI hefur mestu útbreiðsluna í heiminum á HP 9000 / RISC / UNIX tölvum frá Hewlett Packard. HP á íslandi er traust fyrirtæki sem hefur starfað á íslenska markaðnum í 10 ár. Eiginfjárhlutfall er nú rúmlega 60% og fyrirtækið hefur skilað góðri afkomu á hverju ári. Við sérhæfum okkur í að þjóna stærri fyrirtækjum - fjöldi ánægðra viðskiptavina hefur skipt við fyrirtækið árum saman, og sífellt bætast nýir í hópinn. HEWLETT PACKARD --------UMBOÐIÐ HPÁ ÍSLANDI H F Höfdabakka 9, Rekjavík, sími 567-1000 Frá möguleika til veruleika Nútímalegur hugbúnaður er í lang- flestum tilfellum hannaður fyrir OPIN KERFI eins og HP 9000 / RISC / UNIX tölvukerfi. Fjölmargir aðilar hérlendis hafa valið slíkar lausnir í hugbúnaðar- málum og síðan vélbúnað frá Hewlett Packard. Mjög góð reynsla er því komin af þessum lausnum bæði hvað varðar afköst og þjónustu. Við hjá HP á Islandi hf. leggjum höfuðáherslu á að veita góða þjónustu og höfum víðtæka reynslu af að þjóna kröfuhörðum viðskiptavinum. Hafðu samband við sölumenn okkar í síma 567-1000, eða komdu við að Höfðabakka 9 (bogahúsið).

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.