Tölvumál - 01.02.1995, Qupperneq 9
Febrúar 1995
Hér á eftir fer hluti áramótaávarps forseta íslands, frú Vigdísar
Finnbogadóttur.
Það er birt hér vegna þess að í því er fjallað um málefni sem tengjast
öðru efni þessa blaðs og er athyglisvert að sjá að fleirum en félögum
í Skýrslutæknifélaginu er þetta efni hugleikið.
/ "N
Af mannauði vex allur annar auður
Aldrei fyrr hefur tæknin sýnt okkur
jafnmarga möguleika og um þessar mundir.
Stundum ertalað um þekkingarsprengingu
sem orðið hafi á liðnum áratugum. Nú blasir
við okkur ný sprenging í þekkingar-
miðluninni. Á örskotsstundu komumst við í
samband við upplýsingabanka um allan
heim, getum leitað okkur fróðleiks frá fyrstu
hendi, hvort sem við erum skólafólk á
Kópaskeri eða í Króksfjarðarnesi eða
starfsmenn í Reykjavík eða á Raufarhöfn.
Allur heimurinn liggur fyrir fótum okkar. í
þessum efnum þarf hvorki að há okkur
einangrun né fámenni. Það er ekki spurt
um fjöldann sem myndar þjóð, heldur hverjir
eru kostir þessarar þjóðar, hvar er hún
stödd á þekkingarvegi, hvað kann hún,
hvað getur hún gert?
Tæknin sem er að halda innreið sína er
svo ævintýraleg að henni verður naumast
lýst í orðum. Kannski segir það eitthvað ef
ég nefni að geisladiskur fyrir tölvu, jafnstór
hinum sem flytur okkur tónlist, getur geymt
allt að 200.000 blaðsíður af texta, ef ekki
er sett á hann annað efni. Það myndi líklega
jafngilda því að ævistarf Halldórs Laxness
kæmist tíu sinnum á einn disk.
í útlöndum er þegar búið að gefa út mikið
námsefni og fróðleiksefni á slíkum
geisladiskum, og er þar blandað saman
texta, hljóði, kyrrum og lifandi myndum,
ásamt línuritum og skýringarefni. Enn sem
komið er eigum við engan íslenskan
upplýsingadisk. Þar er verk að vinna, því
varla unum við því að ungir íslendingar þurfi
að leita sér allra nýjustu upplýsinganna á
erlendum málum þegar fram líða stundir.
Erlendir forystumenn á ýmsum sviðum
hafa á undanförnum mánuðum fullyrt að
það sem ráða muni úrslitum varðandi
velgengni einstakra þjóða í harðnandi
samkeppni á komandi árum verði menntun
þeirra og þekking. Mitterand, forseti
Frakklands, skoraði nú á haustdögum á alla
stjórnmálaflokka landsins að setja
menntamál í öndvegi þegar stefnan yrði
mörkuð fyrir næstu kosningar. Hliðstæða
áskorun ber ég nú fram gagnvart íslenskum
stjórnmálamönnum og bið þá að bera
menntunina sérstaklega fyrir brjósti, svo
kunnátta okkar um haf og land, um vernd
og nýtingu sjávar, um uppgræðslu lands og
ræktun bústofna, og margbrotið völundar-
hús tækninnar, megi verða kunn um allan
heim svo til verði vitað.
En vitanlega gildir enn sem fyrr að lítð
stoðaði okkur að eignast allan heiminn ef
við látum undir höfuð leggjast að rækta með
okkur vinarþel, sjálfsaga og virðingu. Ég
hef nefnt það áður á þessum vettvangi og
nefni það enn, að án sjálfsaga verða okkur
flestar leiðir torfærar. Og sjálfsagi rís upp
af heiðarleika, heiðarleiki rís á virðingu fyrir
sjálfum sér og öðrum mönnum, - öllu sínu
umhverfi, í einu orði sagt: á siðgæði. Það
er sannfæring mín að með aga, menntun
og þekkingu, sem eftir yrði tekið víða á
byggðu bóli, verði okkur allar leiðir færar,
við innri styrk íslensk þjóðfélags, því
mannauðinn erum við svo lánsöm að eiga.
Tölvumál - 9