Tölvumál - 01.02.1995, Blaðsíða 6

Tölvumál - 01.02.1995, Blaðsíða 6
Febrúar 1995 Fjármál og rekstur Rekstur félagsins hefur verið með miklum ágætum á árinu og skilað hagnaði enn eitt árið. Hefur verið svo öll þau ár sem ég hefi verið formaður. Það hefur enda verið vilji stjórnar að gæta íhaldssemi í fjármálum og taka ekki stóra áhættu. Nú þegar verið er að ráðast í útgáfu nýs Tölvuorðasafns er enn brýnna að vel sé haldið um budd- una því um er að ræða kostnaðar- samt verkefni. Gæta verður þess að það verkefni hafi ekki um of áhrif á annað starf félagsins. Að vanda hvílir mikið á fram- kvæmdastjóra okkar við að halda starfinu gangandi og gæta sam- felldni í því. Að mínu mati hefur Svanhildur skilað góðu starfi og get ég ekki annað en þakkað henni frábært samstarf þau ár sem við höfum unnið saman að málefnum félagsins. Hún er reyndar þriðji fram- kvæmdastjórinn sem ég starfa með en á undan henni sá Helga Erlings- dóttir um framkvæmdastjórn en hún tók við af Kolbrúnu Þórhalls- dóttur. Frá samstarfinu við þessar sómakonur á ég ljúfar minningar einar og vil nota þetta tækifæri til þess að þakka þeim samstarfið. Oft hefur komið til umræðu innan stjórnar að ráða tækni- menntaðan framkvæmdastjóra sem gæti í meiri mæli sinnt faglegum málum fyrir félagið. Ég tel að það geti haft ákveðna kosti í för með sér, en vara jafnframt við því að það gæti einnig leitt til þess að hann yfirtæki skipulag og stjórnun alls starfs á vegum félagsins. Þetta myndi leiða til minnkaðs hlutverks félaga, stjórnar og formanns sem ég teldi mikla öfugþróun. Styrkur félagsins felst í fjölþættri þekkingu þeirra sem að starfi þess koma og sífelldri endur- nýjun. Málefni sem tekið er á hverju sinni, ráðast af áhuga og þörf. Auðvelt er að kalla fólk til úr öllum geirum þjóðfélagsins til þess að taka á þeim málum sem upp koma. Því er minni þörf fyrir tæknimenntaðan framkvæmda- stjóra í Skýrslutæknifélaginu en öðrum félögum sem ekki hafa jafn virka félaga. Erlent samstarf Erlent samstarf hefur verið í algjöru lágmarki á þessu ári og er það miður að mínu mati. Á næsta starfsári verður stjórn að taka á þessum málum til þess að tryggja samstarf okkar við sambærileg félög í kringum okkur. Samneyti við félaga okkar á Norðurlöndunum hefur hjálpað mér mikið í starfi mínu sem for- maður og má ekki vanmeta þann þátt þó annar hagur af samstarfi sé oft þokukenndur. Starfið framundan Ég sé fram á áframhaldandi bjarta tíma fyrir félagið. Stofnun annarra félaga, að því er virðist stundum til höfuðs Skýrslutækni- félaginu, hefur ekki haft áhrif á félagatölu okkar, nema síður sé. Ég held að almennt sé litið til Skýrslutæknifélagsins sem for- ystuafls á okkar svið hér á landi og er mikilvægt að ekki falli skuggi þar á. Það kallar stundum á lipurð og lagni við að leysa mál þannig að sem flestum lílci. Við megum aldrei gleyma að innan félagsins eru mjög ólíkir hagsmunahópar og að það er ekki hlutverk okkar að etja þeim saman eða taka afstöðu með einum fremur en öðrum. Félag okkar verður alltaf að vera vettvangur opinnar umræðu um mál, en ekki dráttarvagn þröngra sérhagsmuna. Lokaorð Nú lýkur löngu starfi mínu í stjórn félagsins, lengst af sem formaður þess. Eins og áður sagði er margs að minnast. Ljúfustu minningarnar eru þó þær sem ég á af samskiptum við félaga og stjórnarmenn félagsins. Ég hefi kynnst miklum fjölda ágætismanna og kvenna á vett- vangi félagsins sem margir hafa orðið vinir mfnir en aðrir kunn- ingjar. Þeim þakka ég öllum frá hjarta mínu fyrir frábært samstarf. Þetta er sá auður sem ég tek með mér þegar ég nú dreg mig í hlé frá stjórnarstörfum. Ég er þó langt í frá hættur að vinna fyrir félagið og treysti því að leitað verði til mín þegar þarf að snúast eitthvað fyrir Skýrsluvinafélagið eins og við köllum það stundum í gamni. Nýrri stjórn óska ég allra heilla. Halldór Kristjánsson er verkfrœðingur ogfram- kvæmdastjóri Tölvu- og verkfrœðiþjónustunnar. Viðauki Árið 1994 var 26. starfsár fél- agsins. Fullgildir félagsmenn eru 728. Aukafélagar, nemendur í Háskóla Islands og Tölvuháskóla Verslunarskóla Islands eru 251. Á félagaskrá alls 979. Stjórn Aðalfundur var haldinn 31. janúar 1994. Fyrsti fundur nýkjör- innar stjórnar var 7. febrúar. í stjórn Skýrslutæknifélags íslands sátu 1994: 6 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.