Vísir - 28.09.1962, Blaðsíða 2

Vísir - 28.09.1962, Blaðsíða 2
VISIR Föstudagur 28. september 1962. 4*2*, y/////m v/////smw////A ^ \, __ ©^sSTn1 T3 ‘n d T/,y////m//////////<2MV////^ Þórður Ásgeirsson í loftinu á æfingu Þróttar á Park Head vellinum í Glasgow. Bak við hann sér f Ólaf Brynjólfsson. Fer svo að boðið veröi í Þórð? Það er ekki ólíklegt eftir þeim viðtökum sem hann hefur fengið í Skotlandi. Fá 2 ísL markverðk tilboð í Skotiandi? Augu áhugamanna um knattspyrnu 'beinast að Skotlandi þessa dagana. Þar er Helgi Daníelsson og leikur á laugardag með varaliði Motherwell hins góðkunna atvinnuliðs Skota. Þar eru Þróttarar með 2. deildarlið sitt og keppa í Park Head í kvöld og í Skotlandi er enn eini atvinnumaðurinn okkar, Þórólfur Beck og er tekinn að ókyrrast að því sagt er og vill skipta um félag. Helgi fær að reyna sig á laugardaginn. Helgi fær sitt fyrsta tækifæri með Motherwell á morgun og leik- ur með varaliði félagsins á Firhill gegn Partic Thistle en Motherwell á í erfiðleikum vegna meiðsla leik- manna sinna og býst ekki við sigri gegn Thistle. Þróttur i sjónvarpi. — Markvörður vekur athygli. í kvölddagskrá skozka sjón- varpsins kom fréttaauki frá æfingu Þróttara í fyrrakvöld en þeir æfðu á keppnisvelii Celtic í Park Head, sem er næsta óvanalegt, þar eð Celtic lánar aðalvöll sinn aldrei undir æfingar. Fjöldi myndatöku- manna kom og filmaði piltana en daginn eftir voru myndir í öllum blöðum frá æfingunni og er sagt að sjónvarpsdagskráin hafi heppn- azt einstaklega vel. „Nóg af góðum mönnum“ — sagði Robert Jack. Robert Jack talaði við frétta- mann í fréttaauka þessum sem stóð 1 - mínútur og sagði Robert að lokum: „Framkvæmdastjórar félaganna ættu að fjölmenna í Park Head á morgun. Þar verður nóg af efnivið og aldrei að vita nema hægt sé að semja við marga piltanna." Þórður vakti athygli. Langmesta athyglina 1 sjónvarp- inu vakti Þórður Ásgeirsson og sögðu starfsmenn Flugfélagsins í Glasgow að hann hefði verið tígu- legur er hann fleygði sér endi- Um helgina: AF GÚDRI ÚrsSSi i 1» deild? Fyrsti leikur í bikar- keppninnð ™ SAS eg FSugféiag íslands Eftir langa deyfð á knatt- spyrnusviðinu fer nú fjörug helgi knattspymulega í hönd. Tveir mikilvægir leikir í 1. deild og jafnvei úrslt í deild,nni, fyrsti Ieikur úrsiitakeppninnar í Bakar keppninni og að lokum leikur milli SAS í Kaupmanahöfn og Flugfélags íslands. Um helgina fara fram 2 þýð- ingarmiklir leikir í 1. deild. Á laugardag leika K.R. og Akurnes- ingar og á sunnudag Fram og Val- ur. Báðir leikirnir eru ákveðnir á Laugardalsvelli, en geri rigningu fyrir leikina, verða þeir fluttir á Melavöllinn. K.R. — Akranes fer fram á laugardag og hefst leikurinn kl. 16.00. Verður þá úr þvf skorið, hvort Akurnesingar komast í úrslitakeppni með Fram og Val, en til þess þurfa þeir að sigra K.R. Fái K.R. stig, eru Fram og Valur ein eftir með sigurmögu- leika í mótinu. Fram — Valur fer fram á sunnudag og hefst sá leikur einnig kl. 16.00. Ef K.R. nær stigi á laugardag gegn Akur- nesingum, verður þetta hreinn úrslitaleikur í I. deildarkeppni, og verði liðin jöfn eftir 2x45 mín. verður framlengt í 2 x 15 mfn. Fáist úr því skorið, hvort félagið hljóti íslandsmeistaratitilinn 1962, verður hinn nýi Islandsbikar af- hentur í fyrsta sinn að leik lokn- um. Keflvíkingar — Týr. fer fram á laugardag kl. 14.00 á Hafnarfjarðarvelli og er það fyrsti leikurinn í úrslitakeppni bik- arkeppninnar. Má gera ráð fyrir spennandi leik, því að Vestmanna- eyingar hafa komið mjög á óvart í bikarkeppninni og unnið 3 leiki með samanlögðum mörkum 10:0. Keflvíkingar sigruðu í 2. deild og verður nú úr því skorið, hvort ut- an deildanna leynist lið, sem gæfi Í. deildarliðanum ekkert eftir. SAS - FTugfélagið leika á Melavellinum á morgun kl. 18.00 og má búast við skemmti- legri keppni í þessum ,,landsleik“ þjóðanna, en sagt er að SAS hafi skemmtilegu liði á að skipa. langur eftir boltanum, „rétt eins og tígrisdýr". Þórólfur vill. skipta um félag. Þórólfur Beck er ekki ánægður um þessar mundir og vill skipta um félag. Hann er einn af þeim sem hefur farið fram á að verða seldur frá St. Mirren, en ein 3 knattspyrnufélög í Englandi hafa spurzt fyrir um hann hjá Mirren, þar á meðal er Sunderland, — eitt ríkasta félag Englands. Mjög er þó ósennilegt að Þóróifi verði að ósk sinni, því Bobby Flavell vill ekkf selja, hvorki hann né aðra af leikmönnum St. Mirren og e. t. v. sízt Þórólf. Bryceland var seldur til Norwich, en þar hyggst hánn setja endapúnktinn á sölu leikmanna, a. m. k. í bili. Vill berjast við Liston Harold Johnson, heimsmeistari í léttþungavigt, sagði í gær að hann vildi skora á heimsmeistar- ann í þungavigt, Sonny Liston, segir í NTB-skeyti. Johnson hefur ekki tapað keppni síðustu 6 ár og hefur hann nær eingöngu barizt við þungavigtar- menn, nema þegar hann hefur varið titil 'sinn. Margir þessara hnefaleikara hafa verið „meðal 7 beztu í heimi“. Framkvæmdarstjóri Johnsons er mjög umfram um að koma þessari keppni á. Bióðug slagsmál Rangers og Sevilla Harðir ieikir Skota á erlendri grund Skotar gcrðust víðreistir í byrjun vikunnar kepptu þrjú af beztu lið- um þeirra knattspyrnuleiki í Þýzka landi og Spáni. Tveir leikjanna urðu allsögu- leglr, cinkum þó leikur Rangers og Sevilla sem logaði í slagsmál- um sem öll stöfuðu af hinum suð- ræna skaphita Spánverjanna, sem tapað höfðu 4:0 í Skollandi en Sevilla vann nú 2:0, þannig að Skotarnir komast áfram. Sama er um Dundee að segja, að leikur þeirra á heimavelli 8:1, bjargar beim f 2. umferð Evrópubikarsins, þrátt fyrir 0:4 tap gegn hinum hörðu Þjóðverjum, sem gengu inn á völlinn „hreinlega til að drepa okkur“ eins og forstjóri Dundee sagði eftir leikinn. Celtic lék fyrsta leik sinn í ..nter-citics FairCup og urðu úrslit þau að Valencia vann með 4:2, en heimaleikur Skotanna er eftir. Heim komu liðin blá og marin, með glóðaraugu, bólgur, rispur og sár, rétt eins og allir leikmennirnir hefðu fengið sinn Sonny Liston til að slást við og haldið út 15 lotur gegn honum. Af leikjum Skotanna varð leikur Rangers og Seinn í faðmlögum við einn Spánverjann en lögreglu og á myndinni er hinn góðkunni Ralp Brand kominn í faðmlög við einn Spánverjann en lögregluþ þjónar horfa á álengdar. /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.